Fréttablaðið - 07.10.2009, Síða 23
umhverfisþing 2009
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2009
Umhverfisráðherra boðar til Um-
hverfisþings dagana 9. og 10. okt-
óber. Sjálfbær þróun verður aðal-
umfjöllunarefni þingsins að þessu
sinni.
Nú stendur yfir endurskoðun á
áherslum stjórnvalda á sviði sjálf-
bærrar þróunar og þátttakendum
á Umhverfisþingi verður boðið
að leggja fram hugmyndir í þá
vinnu. Efnt verður til svokallaðs
heimskaffis þar sem hugmynd-
ir verða ræddar og þær kynntar
þinggestum. Í kjölfarið verða til-
lögurnar teknar saman í skýrslu
sem stjórnvöld munu nýta við
endurskoðun stefnu um sjálfbæra
þróun.
Á þinginu verður einnig lögð
áhersla á þátttöku ungs fólks til
að stuðla að umræðu milli kyn-
slóðanna um framtíðarþróun Ís-
lands. Þau Sigríður Ólafsdótt-
ir og Unnsteinn Manuel Stefáns-
son, nemendur í Menntaskólanum
við Hamrahlíð, flytja erindi fyrir
hönd ungmenna á þinginu.
Í málstofum á þinginu verður
fjallað um umhverfismál í sveit-
arfélögum og atvinnulífinu.
Hjalti Þór Vignisson, sveitar-
stjóri Sveitarfélagsins Horna-
fjarðar, verður heiðursgestur.
Þóra Arnórsdóttir og Freyr Eyj-
ólfsson verða þingforsetar.
Þingið er haldið á Hótel Hilton í
Reykjavík og hefst klukkan 9 með
ávarpi umhverfisráðherra. Hægt
er að nálgast nánari upplýsingar
um þingið á heimasíðu umhverf-
isráðuneytisins, umhverfisradu-
neyti.is/umhverfisthing09.
Umhverfisþing um sjálfbæra þróun
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráð-
herra boðar til umhverfisþings.
● SJÁLFBÆR SAM-
GÖNGUSTEFNA Kristj-
án Möller samgönguráðherra
mun flytja erindi á Umhverf-
isþingi um samgöngustefnu
stjórnvalda. Ríkisstjórnin sam-
þykkti nýlega að hefja gerð
áætlunar um sjálfbærar sam-
göngur. Áætlunin verður undir
stjórn Svandísar Svavarsdóttur
umhverfisráðherra og Kristjáns
Möllers samgönguráðherra en
auk þess verður haft náið sam-
starf við fulltrúa fjármálaráð-
herra vegna breytinga sem
lúta til dæmis að sköttum og
öðrum gjöldum.
Umhverfisráðherra og
samgönguráðherra hafa orðið
sammála um að leggja áherslu
á nokkrar aðgerðir, þar á
meðal stuðning við hjólreið-
ar almennings, breytingar á
skattlagningu ökutækja og að
hvetja stofnanir og fyrirtæki
til að taka upp heildstæða
samgöngustefnu.
Ákvörðun rík-
isstjórnarinn-
ar um gerð
sjálfbærrar
samgöngu-
stefnu er í
samræmi við
samstarfsyf-
irlýsingu
hennar.
● NÝ SKÝRSLA UM UM-
HVERFISMÁL Á Umhverf-
isþingi verður fjallað um nýja
skýrslu umhverfisráðuneytisins
um stöðu umhverfismála hér á
landi. Eitt af helstu verkefnum
ráðuneytisins er að safna upp-
lýsingum um stöðu og þróun
umhverfismála, meta þær og
miðla til almennings og þeirra
sem taka ákvarðanir.
Skýrslunni svipar til Velferð-
ar til framtíðar sem kom út
fyrir sjö árum og nær til sömu
málaflokka. Í henni er þó ekki
að finna stefnumörkun stjórn-
valda heldur ítarlega grein-
ingu á ástandi og þróun mála.
Vægi mála hefur einnig breyst
og til dæmis er í skýrslunni
fjallað ítarlega um loftslags-
breytingar, sjálfbæra neyslu og
framleiðslu.
Meðal þess sem kemur
fram í skýrslunni er að Íslend-
ingar losa meira af gróður-
húsalofttegundum á mann en
meðaltal þróaðra ríkja þrátt
fyrir að losun frá staðbundinni
orkuframleiðslu sé líklega
minni á mann en í nokkru
öðru þróuðu ríki. Þetta skýrist
að stórum hluta af miklu vægi
stóriðju og sjávarútvegs í
efnahag Íslendinga.
„Sumir halda að umhverf-
isvernd snúist um að fara
aftur í torfkofa,“ segir Berglind
Viktorsdóttir, umhverfisfræð-
ingur og gæðastjóri Ferða-
þjónustu bænda, en hún segir
mikilvægt að auka skilning á
mikilvægi ferðaþjónustu hér á
landi. Hlutverk hennar hafi far-
ið vaxandi og gjaldeyristekjur
af henni aukist.
Berglind bendir á að rekstur
ferðaþjónustu sé alls engin trygg-
ing fyrir virðingu fyrir umhverf-
inu. Of mikið álag sé á sum svæði
vegna ferðamannastraums, þau
þurfi að undirbúa betur með hlið-
sjón af auknum átroðningi. Þá sé
einnig mikilvægt að dreifa ferða-
mannastraumi markvissara um
landið, úr mörgum stöðum sé að
velja. „Við eigum mikið af földum
perlum sem ekki hafa verið mark-
aðssettar,“ segir hún. Auk þess
telur hún þörf á því að miðla frek-
ar upplýsingum um svæði, kynna
sögu þess og kennileiti í auknum
mæli svo hægt sé að lengja heim-
sóknir fólks og gera veru þess
innihaldsríkari.
Þá bendir Berglind á mikilvægi
sjálfbærrar ferðaþjónustu en í
stuttu máli er slík ferðaþjónusta
skilgreind sem: starfsemi sem ber
virðingu fyrir umhverfinu, trygg-
ir verndun náttúrulegra og menn-
ingarlegra auðlinda til langs tíma,
og er ásættanleg og réttlát frá fé-
lagslegu og efnahagslegu sjónar-
miði.
Nokkuð vantar upp á sjálfbærni
ferðaþjónustu hér á landi en
hjá Ferðaþjónustu bænda hefur
markvisst verið unnið að því að
auka þekkingu og skilning á mik-
ilvægi þess með fræðslu og nám-
skeiðahöldum. „Það eru um 140 fé-
lagar í Ferðaþjónustu bænda um
allt land og fjölbreytni og umfang
starfsemi mjög margbreytileg,“
segir Berglind. Lagður hafi verið
grunnur að markvissri vinnu í um-
hverfismálum innan Ferðaþjón-
ustu bænda árið 2002 en þá setti
þjónustan sér sérstaka umhverf-
isstefnu. „Við vildum vekja fólk
til umhugsunar og kenna fólki að
ná markmiðum og svo hvernig það
getur orðið sér úti um gæðavott-
un,“ segir Berglind en hún segir
vottanir á borð við Svaninn, ISO
14001 og Green Globe mikilvæga
við að ná fram markmiðum og
mæla árangur. Þessir þrír staðl-
ar geta þó verið of umfangsmiklir
og kostnaðarsamir til að þeir henti
minni fyrirtækjum. Leita þurfi
fleiri leiða til að umbuna fyrir það
sem vel er gert í þessum efnum.
Fáum sem ferðast um land-
ið dylst að margt er ógert í upp-
byggingu á innviðum ferðaþjón-
ustunnar. Salernisaðstaða er víða í
ólestri og átroðningur á viðkvæm
svæði mikill. Berglind segir að í
því ástandi sem nú ríkir á Íslandi
felist mörg tækifæri. Fólk kanni
rætur sínar og uppruna í aukn-
um mæli, læri að meta matargerð
og fatnað þjóðarinnar. Þá ferðist
fólk meira um landið sitt og læri
þannig að meta hve mikilvægt það
er því sjálfu og þeim kynslóðum
sem eru og eiga eftir að vaxa hér
úr grasi. Því eigi fólk eftir að gera
sér betur grein fyrir mikilvægi
sjálfbærrar ferðaþjónustu. - kdk
Fjöldi falinna náttúruperlna
Þekki ferðamenn sögu staðanna staldra þeir lengur við og ferð þeirra verður innihaldsríkari. Myndin sýnir Herðubreið og Lindará í námunda við dvalarstað Fjalla-Eyvinds.
Berglind Viktorsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/G
VA