Fréttablaðið - 07.10.2009, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 07.10.2009, Qupperneq 30
MARKAÐURINN 7. OKTÓBER 2009 MIÐVIKUDAGUR8 F R É T T I R / S K O Ð U N Í mörgum hrollvekjum eru fyr- irbæri sem nefnast uppvakning- ar í aðalhlutverki. Uppvakning- ar eru, samkvæmt íslenskri þjóð- trú, verur sem vaknað hafa upp eftir dauðann og ganga meðal lif- enda. Yfirleitt gera þessar verur ekki annað en ógagn, stundum óskunda. UPPVAKNINGUM FJÖLGAR Þegar gengi krónunnar féll um páska 2008 og svo aftur við hrun fjármálakerfisins varð fjöldi fyr- irtækja á Íslandi gjaldþrota. Fyrst og fremst gerðist það vegna þess hve skuldir jukust (gengis- eða verðtryggðar) og eignir rýrnuðu samhliða. Í framhaldinu gerðu háir vextir og óstarfhæfur fjár- magnsmarkaður, samdráttur eft- irspurnar og almennt minnkandi umsvif í hagkerfinu fyrirtækjum enn erfiðara fyrir og hefur því bæst í hóp gjaldþrota fyrirtækja. ÓJÖFNUÐUR UPPVAKNINGA Einhver hluti þessara fyrirtækja er þó enn starfandi, sum fyrir- tækjanna við aðstæður sem stuðla síður en svo að heilbrigðu við- skiptaumhverfi. Fjöldi fyrirtækja hefur færst undir forsjá ríkisins, með óbeinum hætti, í gegnum yfir- töku ríkisbankanna á þeim. Önnur búa við það óvissuástand að ekki hefur verið tekið á þeirra málum í bankakerfinu og því óljóst um framtíð reksturs og eignarhalds. Þetta ástand leiðir til vinnu- bragða sem skapa mikla röskun á almennu rekstrarumhverfi og getur hún verið af margvísleg- um toga. Til að mynda getur betri fjár- hagsstaða fyrirtækis í ríkiseigu, vegna eftirgjafar skulda eða sér- stakrar fyrirgreiðslu sem sam- keppnisaðilar njóta ekki, gert því kleift að keppa um hylli viðskipta- vina af meiri hörku en annars. Vonlaus staða annars fyrirtækis, sem ekki hefur verið tekið á með greiðslustöðvun, gjaldþrotaskiptum eða afskrift skulda, svo félagið verði rekstrarhæft, getur einnig leitt til skað- legra vinnubragða. Fyrirtækjum sem ekki hafa skýrar rekstrarforsend- ur og heilbrigðan efnahagsreikning verður ekki stýrt til lengdar á eins hagkvæman máta og unnt er. Segja má að fyrirtæki í þessari stöðu séu uppvakning- ar viðskiptalífsins. DRAUGAR KVEÐNIR NIÐUR Á undanförnum mánuðum hafa komið upp allt of mörg dæmi um óheppileg vinnubrögð af því tagi sem nefnd eru hér að ofan og þau finnast í nánast öllum grein- um atvinnulífsins. Því verður að linna. Nú er ár liðið frá falli ís- lenska fjármálakerfisins og mik- ilvægt er að gengið verði rösklega til verks við endurskipulagningu skulda fyrirtækja. Uppvakninga viðskiptalífsins verður að kveða niður, annaðhvort með hefðbundinni gjaldþrota- meðferð eða meðhöndlun skulda sem gerir viðkomandi fyrirtæki rekstrarhæft. Verði það ekki gert skemmist rekstrarumhverfi fyr- irtækja enn frekar og heilbrigð fyrirtæki velta í kjölsogi þeirra sem haldið er gangandi á óeðli- legan hátt. Kostnaðurinn af löskuðu sam- keppnisumhverfi fellur á heim- ili landsins og líklegra er að við horfum fram á mun lengra tímabil stöðnunar en ella þyrfti. Vítin eru til varnaðar og er japanska hag- kerfið ágætt dæmi um langvar- andi stöðnun sem varð vegna þess að ekki var tekið á vandamálum óstarfhæfra fyrirtækja. FÓRNARLÖMB AÐSTÆÐNA Rétt er að halda því til haga að mörg fyrirtæki sem nú starfa við óvenjulegar aðstæður, undir rík- isbanka, skilanefnd eða í annarri óvissu, eru rekin á eðlilegan og sanngjarnan hátt. Fyrir það eiga stjórnendur þeirra hrós skilið en um leið er ljóst að það er hagsmunamál þeirra, banka, skila- nefnda, viðskipta- vina, keppinauta og samfélagsins í heild að rekstur þessara fyrirtækja verði sem fyrst færður á eðlileg- an grunn. Í þessu felst að tekið verði á skulda- vanda fyrirtækja af samkvæmni, festu og heiðarleika. Mörg þeirra fyrir- tækja sem nú standa illa eru mun frekar fórnarlömb ytri aðstæðna en óskynsemi í rekstri. Því ber að halda til haga og leita í þeim tilfell- um leiða til að koma til móts við stjórnendur og eigendur þeirra við endurskipulagningu skulda. SUMIR EIGA RÉTT Á LÍFI Að undanförnu hefur skortur á trúverðugleika og stefnufestu við- skiptalífs, fjármálageira, embætt- is- og stjórnmálakerfis staðið end- urreisn fyrir þrifum. Skref í átt að meira trausti til allra viðkom- andi er að úrvinnsla á vanda fyr- irtækja fari fram fyrir opnum tjöldum eftir skilvirku og gagn- sæu ferli. Eftir fremsta megni verður að koma í veg fyrir að illa löskuðum fyrirtækjum, uppvakn- ingum, sé leyft að ráfa um meðal þeirra sem eiga góða lífsvon í eðli- legu rekstrarumhverfi. Þessi fyr- irtæki þarf annað hvort að vekja aftur til lífsins með endurskipu- lagningu skulda og skýru eign- arhaldi, eða fara með þau í þrot og selja eignir þeirra. Heppileg- asta leiðin að þessu marki er að eignum og fyrirtækjum verði sem fyrst komið úr höndum banka og ríkis þangað sem framtak og hags- munir geta farið saman. Þetta á við jafnvel þó aðstæður til sölu eigna séu ekki sem bestar. Ávinn- ingur af heilbrigðu rekstrarum- hverfi sem getur af sér þróttmikið atvinnulíf verður í öllum tilvikum meiri en væntur ávinningur ríkis eða ríkisbanka af sölu fyrirtækja síðar meir. Uppvakningar viðskiptalífsins Finnur Oddsson Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands O R Ð Í B E L G Fjölmargir sóttu fyrstu TEDx- ráðstefnuna sem var haldin í Reykjavík í gær. Íslenskir fyr- irlesarar komu fram og fluttu innblásnar ræður um hin ýmsu efni sem tengjast því sem TEDx stendur fyrir, Technology, Ent- ertainment, Design; eða tækni, skemmtun og hönnun á íslensku. Auk þess var örfyrirlestrum varpað á skjá, svokölluðum TED- TAlk, eftir hina ýmsu athafna- menn og konur. Nánar má fræðast um ráð- stefnuna og efni hennar á http:// tedxreykjavik.com/# . Á síðunni www.ted.com er að finna allar upplýsingar um TED auk þess sem hægt er að horfa á fyrir- lestra þar. Þeir fyrirlestrar sem notendur síðunnar hafa sent oftast síðustu viku í tölvupósti fjalla um fjöl- breytileg efni á borð við sköpun- argáfu, arkitektúr og innsæi. - sbt Fjölsótt ráðstefna Fyrsta TEDx-ráðstefnan fjölsótt og vel heppnuð. GLATT Á HJALLA Gestir skemmtu sér vel á ráðstefnunni eins og sjá má. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þeir sem eru forfallnir tækja- dellumenn fá eitthvað fyrir sinn snúð á næsta ári ef allt geng- ur eftir. Stærstu raftækjafram- leiðendur í Japan undirbúa nú að setja á markað flatskjá sem sýnir kvikmyndir og tölvuleiki í háskerpu í þrívídd. Frumgerðir af slíkum flatskjám voru meðal sýningargripa á raftækjasýn- ingu í grennd við Tókíó sem hófst í gær. Raftækjarisarnir Sony og Panasonic ætla að ríða á vaðið og setja sína þrívíddarflat- skjái á markað strax á næsta ári, jafnvel þótt kvikmyndir og tölvuleikir, sem hægt er að horfa á í þrívídd, séu af skorn- um skammti. Að sögn tals- manna fyrirtækjanna verður þess skammt að bíða að úrval- ið snaraukist. Áhorfendur þurfa að setja upp sérstök rafeindagleraugu til þess að myndin á skjánum birtist í þrívídd. Það er því enn þó nokkur bið í að tæknin komi að notum þegar horft er á dæg- urefni í sjónvarpinu. Flatskjár í þrívídd Remake Electric

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.