Fréttablaðið - 08.10.2009, Síða 16
16 8. október 2009 FIMMTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Aðildarumsókn Íslands að Evrópu-
sambandinu verður vafalítið eitt
helsta átakamálið í íslenskum stjórn-
málum á komandi árum. Baráttan
verður þó ekki einungis háð í þing-
sölum, með leiðaraskrifum, á borg-
arafundum og bloggsíðum heldur
líka í auglýsingum. Auglýsingastofan
Fíton beið ekki boðanna; þar á bæ
voru grafískir hönnuðir fengnir
til að draga um afstöðu og hanna í
framhaldinu áróðursspjöld með eða
á móti inngöngu Íslands í ESB. Niður-
stöðurnar birtust í nýútkomnu riti,
Fítonblaðinu. Óhætt er að segja að
að þær veiti áhugaverða nasasjón af
því sem ef til vill koma skal, eins og
meðfylgjandi myndir bera með sér.
Evrópumál full
Fítonskrafti
HVALFJÖRÐUR
ÖRNEFNI
■ Nafn Hvalfjarðar, nafn hæsta
foss landsins í firðinum, Glyms
í Botnsá, fjallsins Hvalfells og
Hvalvatns sem Botnsá rennur úr
eru örnefni sem öll eru dregin
af ferð illhvelisins „Rauðhöfða“
inn fjörðinn, upp Botnsá og
Glym, allt upp í Hvalvatn, þar
sem hann bar beinin, samkvæmt
þjóðtrúnni.
Má einnig geta þess að
norðan í Hvalfelli er hellir, þar
sem Arnes útileguþjófur bjó í tvö
ár að talið er.
„Ég er að ljúka mjög skrítnum mánuði eða mán-
uðum í tónsmíðavinnu, þar sem ég var annars
vegar að ljúka við tónlistina fyrir heimildarmynd-
ina Guð blessi Ísland og hef þar fengið
útrás fyrir reiði, vonbrigði og tortryggni,
og hins vegar tónlist við heimildarmynd
þar sem verið er að selja hina fallegu
ímynd Íslands. Þar hef ég þurft að sækja í
fegurðina, kærleikann og slíka hluti,“ segir
Hilmar Örn Hilmarsson, tónlistarmaður og
allsherjargoði, og kveðst þannig vera að
ná áttum eftir tímabil þar sem svart
og hvítt hafi barist í kolli hans.
Efniviðinn í Guð blessi Ísland
þekkja sjálfsagt velflestir, en
þar er fjallað um efnahags-
hrunið. Hin myndin er Ultimate
Journeys: Iceland fyrir National
Geographic HD (háskerpusjón-
varpsstöðina) og fer í dreifingu um heim allan.
„Þetta er ógurlega falleg mynd þar sem landslag
og náttúrufar fær að njóta sín í háskerpu. Ég hef
því farið úr svartasta ömurleika í allt sem er
bjart og upphafið og yndislegt,“ segir hann.
Tónlistin er enda ólík í myndunum, en í
Guð blessi Ísland segir Hilmar Örn tóninn
hafa verið sleginn í kröftugum bumbu-
slætti mótmælanna á Austurvelli sem svo
endurómi í tónsmíðinni.
Annars segist Hilmar Örn vera að fara
að undirbúa allsherjarþing Ásatrúar-
félagsins en á þeim vettvangi séu
verkefni nóg. „Lítið hefur dregið úr
brúðkaupum og veruleg aukning
hefur verið í nafngiftum. Maður
fær því að taka þátt í góðu og
björtu stundunum í lífi fólks,“
segir Hilmar Örn.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA: HILMAR ÖRN HILMARSSON
Þjakaður af baráttu ljóss og myrkurs
LITLI OG STÓRI Höfundur: Anna Karen Jörgens-
dóttir.
HVER VILL EKKI VERA Í BANDI MEÐ ÞESSUM?
Höfundar: Arnar Geir Ómarsson og Bragi Valdi-
mar Skúlason.
ESB VILL LÁTA GREIPAR SÓPA Höfundur: Bobby
Breiðholt.
LÁTTU EKKI VERÐTRYGGINGUNA ÉTA BARNIÐ
ÞITT Höfundur: Helga Valdís Árnadóttir.
„Ætli maður sé ekki í sömu spor-
um og flestir aðrir í að vilja helst
geta verið laus við samstarfið við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn [AGS],“
segir Jóhannes Sveinbjörnsson,
bóndi í Þingvallasveit. „Mér finnst
hins vegar ábyrgðarlaust að ætla að
slíta samstarfinu núna. Allar okkar
áætlanir hafa byggst á að fara í
þetta samstarf.“
Þá segir Jóhannes augljóst að
málefni Icesave og fyrirgreiðsla
AGS verði ekki sundur slitin. „Alveg
sama hvað menn reyna að telja sér
trú um annað. Allt er þetta svo for-
senda allrar annarrar fyrirgreiðslu,“
segir hann og bætir við að enn hafi
ekki verið í umræðunni bent á aðrar
leiðir sem sýna hafi mátt fram á
að væru færar. „Ég hefði hins vegar
verið rosalega ánægður ef hægt
hefði verið að semja við Norðmenn,
Rússa eða aðrar þjóðir til að losna
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, en það
virðist vera fullreynt.“
Jóhannes áréttar að hann sé eng-
inn aðdáandi AGS og er ósáttur við
að þjóðin skuli þurfa að feta þessa
slóð. Verði samstarfinu við sjóðinn
slitið segist hann hafa áhyggjur af
áhrifunum á gengi krónunnar og þar
af leiðandi á verðbólgu og starfhæfi
bæði atvinnulífs og þess sem eftir
stendur af fjármálakerfinu.
SJÓNARHÓLL
Á AÐ ENDURSKOÐA SAMSTARFIÐ
VIÐ ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐINN?
JÓHANNES SVEINBJÖRNSSON
Bóndi
Sitjum uppi
með AGS
Hreinskilinn
„Það var búið að vera
langvarandi ósætti um það
hvernig ætti að æfa og hvern-
ig ætti að standa að tónleik-
um og hvaða atriði skiptu
máli hjá hljómsveitinni.“
VALLI Í FRÆBBLUNUM UM STEBBA
TROMMARA SEM ER HÆTTUR.
Fréttablaðið 7. október
Hvað næst? UMFÍ?
„Þegar lán sem við tókum
upp á 16 milljónir var komið
í um 40 milljónir neyddumst
við til að fara í Landsbankann
og óska eftir að klúbburinn
yrði tekinn til gjaldþrota-
skipta.“
ÓNEFNDUR STJÓRNARMAÐUR Í
GOLFKLÚBBNUM Á ESKIFIRÐI.
Morgunblaðið 7. október
Gigtarganga - Gigtarfólk- Gigtarganga
Verður í dag 8. október
Gengið frá Lækjartorgi upp á Skólavörðuholt undir kjörorðinu
“Vinnum saman” Við stöndum fyrir dugnað, einurð og útsjónarsemi.
Úrræði við gigtarsjúkdómum er fjárfesting.
17:00 - Safnast verður saman á Lækjartorgi
17:20 - Upphitun fyrir gönguna
17:30 - Gengið upp Bankastr. og Skólavörðust.*
18:05 - Göngufólki er boðið að hlusta á stutt orgelverk í
Hallgrímskirkju, Haukur Guðlaugsson spilar.
* Hægt er að koma inn í gönguna við Bergstaðastræti.
Verum sýnileg, tökum fjölskylduna með.
Allar frekari upplýsingar er að fá á skrifstofu
GÍ í síma 530 3600.
www.gigt.is
"Af stað".
Kanilsnúðadagar voru haldnir
í IKEA um helgina til styrktar
Grensásdeild Landspítalans. Þar
bökuðu nokkur bakarí kanilsnúða
fyrir viðskiptavini að smakka, og
máttu viðskiptavinir síðan velja
besta snúðinn með því að stinga
peningum í bauk merktum honum.
Alls söfnuðust 432 þúsund krónur
til styrktar Grensási, og raunar
gott betur, því IKEA tvöfaldaði þá
upphæð. Samtals runnu því 864
þúsund krónur til deildarinnar.
Bakarar úr Mosfellsbakaríi
urðu hlutskarpastir í keppninni
um bestu snúðana. Þeir höfðu
undir bakara frá Sandholti,
Veislunni, Konditori Copenhagen
og framkvæmdastjóra IKEA. Edda
Heiðrún Backman tók á móti söfn-
unarfénu fyrir hönd Grensáss í
gær og veitti bökurunum verðlaun
fyrir þátttökuna, og sigurliðinu
sérstakt viðurkenningarskjal. - sh
Grensásdeildin fær 864 þúsund krónur eftir söfnun í IKEA um helgina:
Bökuðu snúða fyrir Grensás
VERÐLAUN AFHENT Edda Heiðrún Backman tók við söfnunarfénu í gær og afhenti
bökurunum viðurkenningar fyrir framlag sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI