Fréttablaðið - 08.10.2009, Side 24
24 8. október 2009 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 5 Velta: 14,7 milljónir
OMX ÍSLAND 6
820 +0,94%
MESTA HÆKKUN
CENTURY ALU. +3,95%
FØROYA BANKI +0,36%
MESTA LÆKKUN
ÖSSUR -0,41%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atlantic Airways 145,00 +0,00%
... Atlantic Petroleum 240,00 +0,00% ... Bakkavör 1,45 +0,00% ...
Eik Banki 90,00 +0,00 ... Føroya Banki 139,00 +0,36% ... Icelandair
Group 2,45 +0,00% ... Marel Food Systems 65,90 +0,00% ... Össur
122,50 -0,41%
Auglýsingasími
– Mest lesið
Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri hefur
ekki verið meiri en í nýliðnum mánuði frá því eftir
hrun bankanna fyrir ári.
Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka
í gær. Að jafnaði var veltan 380 milljónir króna
á dag í september, eða 2,1 milljón evra. „Hlut-
deild Seðlabankans í veltunni hefur einnig verið
að minnka, en í september greip bankinn einungis
tvisvar sinnum inn í markaðinn og keypti krónur
fyrir 3 milljónir evra. Í ágúst greip bankinn hins
vegar sex sinnum inn í markaðinn,“ segir Grein-
ing Íslandsbanka.
Bent er á að gengi krónunnar hafi verið nokkuð
stöðugt þrátt fyrir minni inngrip Seðlabankans.
Þá hafi afgangur á vöruskiptajöfnuði í september
verið minni en síðustu mánuði og um leið dregið
úr afganginum á þjónustujöfnuði vegna minni
tekna af erlendum ferðamönnum.
„Það er því styrkleikamerki að þrátt fyrir þetta
hafi krónan ekki lækkað um meira en ríflega eitt
prósent yfir mánuðinn. Í lok september var mið-
gildi evrunnar 181,6 krónur en í lok ágúst var
það 179,4 krónur,“ segir í umfjöllun bankans og
um leið sagt styrkleikamerki að gengi krónunn-
ar hafi hækkað erlendis. „Í lok ágúst var evran
skráð á aflandsmarkaði á 214,5 krónur samkvæmt
miðlunar kerfi Reuters en 190 krónur í lok
september.“ - óká
PENINGAR Það þykir styrkleikamerki að krónan hafi einungis
veikst um eitt prósent í nýliðnum mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Krónan sýnir merki um styrk
„Við þróuðum þetta til að leysa
vandamál innanhúss hjá okkur.
Nú er viðbótin fullbúin og notuð
til að leysa vandamálin úti í hinum
stóra heimi,“ segir Pétur Ágústs-
son, hópstjóri hjá TM Software.
Fyrirtækið hefur þróað viðbót
við Jira-verkbeiðna- og þjónustu-
kerfið sem gerir notendum kleift
að tengja við tímaskráningar og
koma í veg fyrir tvískráningar
beiðna og reikninga.
Pétur segir mikla ánægju með
lausnina og sé hún í notkun víða,
svo sem hjá Apple, Sony í Evrópu
og bandaríska netrisanum Amer-
ica Online og fleiri fyrirtækjum
jafnt hérlendis sem erlendis.
Markaðssetning á lausninni
erlendis er hluti af viðbrögðum
TM Software við áhrifum hremm-
inganna hér eftir hrunið fyrir ári
þegar innlend fyrirtæki drógu
hratt saman seglin. Á vordögum
sótti fyrirtækið á erlenda mark-
aði af meiri krafti en áður. Það
hefur skilað sér í því að þrjátíu
prósent tekna TM Software koma
nú erlendis frá. - jab
TM Software sótti
á erlend mið
PÉTUR ÁGÚSTSSON Innanhússlausn hjá
TM Software er orðin fullbúin vara fyrir
erlendan markað. MARKAÐURINN/GVA
Erlendir ferðamenn hér voru 3,3
prósentum færri í síðasta mánuði
en á sama tíma í fyrra. Alls fóru ríf-
lega 42 þúsund erlendir gestir frá
landinu um Leifsstöð. Þrátt fyrir
fækkunina er þetta annar stærsti
septembermánuður frá upphafi
talningar, samkvæmt tölum sem
Ferðamálastofa birti í gærmorgun.
Greining Íslandsbanka bendir á
það í Morgunkorni sínu að á fyrstu
níu mánuðum ársins hafi tæplega
396 þúsund erlendir gestir farið
frá landinu og er það fjölgun upp á
hálft prósent á milli ára.
Ferðaþjónusta hafi því notið góðs
af lágu gengi krónunnar á tímum
alþjóðlegs samdráttar og bendi
ýmsar tölur til að erlendir ferða-
menn sem leggi leið sína hingað geri
mun betur við sig en fyrri ár, svo
sem í mat, drykk og afþreyingu.
Svipuðu máli gegnir um íslenska
ferðamenn en brottferðum þeirra
héðan fækkaði um rúm átta pró-
sent á milli ára í september. Frá
áramótum hafa ferðirnar dregist
saman um tæp 44 prósent. - jab
Ferðamenn gera vel
við sig í mat og drykk
KEFLAVÍK Ferðaþjónustan hérlendis
hefur notið góðs af lágu gengi og teikn
eru um að ferðamenn eyði meiru en
áður. FRÉTTABLAÐIÐ GVA
VIÐSKIPTI „Eftirlitsstofnanir Evr-
ópusambandsríkja ættu að hafa
heimild til að takmarka starfsemi
útibúa erlendra banka sem standa
höllum fæti og sæta ekki nægilegu
eftirliti heima fyrir,“ hefur Wall
Street Journal eftir Adair Turner,
stjórnarformanni Fjármálaeftir-
lits Breta (FSA), í gær.
Adair Turner segir betur fara
á að eftirlitsstofnanir ættu rétt á
að fá allar viðeigandi upplýsingar
um erlenda banka sem reka útibú
í landinu, þar á meðal nákvæm
gögn um eigið fé, lausafjárstöðu
og hvernig staðið er að áhættu-
stýringu.
Wall Street Journal segir eftir-
litsstofnanir Evrópusambands-
ríkja fást við þann vanda að eftir-
litsstofnanir í heimaríkjum hafi
engin formleg yfirráð yfir útibúum
erlendra fjármálastofnana, sem þó
kunni að vera að safna innlánum
meðal þegna landsins.
Reglur í Evrópusambandinu
og á Evrópska efnahagssvæðinu
kveða á um að banki eins ríkis
geti stofnað útibú í öðru ríki, en
lúti eingöngu eftirliti heima fyrir.
Wall Street Journal segir að þessi
„gloppa í kerfinu“ hafi komist í
hámæli þegar bresk stjórnvöld
þurftu að bæta eigendum innlána
þar í landi tjón sem komið hafði til
vegna hruns íslensku bankanna í
fyrra.
Formaður breska fjármálaeftir-
litsins segir að líkt og alþjóðlegu
reikningsskilareglurnar MIFID
gefi löndum Evrópska efnahags-
svæðisins verkfæri til að stýra
því hvernig útibú erlendra banka
selji fjárfestingarafurðir þá ætti
að vera hægt að
ná meiri stjórn
á annarri fjár-
málastarfsemi
í hverju landi,
svo sem söfnun
innlána.
Gunnar Andersen, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins (FME), segir
tillögu formanns breska fjármála-
eftirlitsins um að gefa gistiríki
víðtækar heimildir þegar eftir-
liti heimaríkis fjármálastofnunar-
innar sé ábótavant kalla á að
svarað sé spurningunni
um hverjum sé ætlað að
meta hæfi eftirlitsstofn-
ana í heimaríkinu. „Þetta
er útfærsluatriði sem þarf
að skilgreina betur, en auðvitað
getur þetta verið vandamál og
ekki bundið við Bretland,“ segir
Gunnar og bendir á að sú staða
gæti komið upp hvar sem er á Evr-
ópska efnahagssvæðinu að erlend-
ur banki vildi hefja störf þar sem
vafi kynni að leika á getu fjármála-
eftirlits í heimaríki hans. „Breyt-
ingarnar þurfa hins vegar að vera
innan ramma tilskipunar Evr-
ópusambandsins,“ áréttar hann.
olikr@frettabladid.is
GUNNAR ANDERSEN
PICCADILLY CIRCUS Íslenskar eftirlitsstofnanir áttu í vandkvæðum með að elta
hraðan uppgang íslensks fjármálakerfis árin fyrir hrun. Meðal eftirlitsstofnana
heimsins er umræða um hvernig koma megi í veg fyrir vandamál viðlíka þeim sem
Icesave-reikningar Landsbankans hafa valdið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FME í Bretlandi vill
auknar heimildir
Reynslan af íslenskum bönkum endurspeglar galla í eftirlitskerfum. Formaður
breska fjármálaeftirlitsins vill auka heimildir eftirlitsstofnana vegna ríkja þar
sem eftirliti er ábótavant. Kallar á nákvæmari útfærslu segir forstjóri FME.
Hollenska flugiðnaðarfyrirtækið
Stork Aerospace hefur enn haft
betur í útboði tengdu svonefndu
JSF-herþotuverkefni, tengdu F-
35 orrustuþotum, frá Lockheed
Martin.
Útboðið sneri að framleiðslu á
flapastýrum fyrir F-35 Lightning
II þotuna allt til ársins 2014. Velta
tengd verkinu er metin á 200 millj-
ónir dala. Vefritið Defence Professi-
onals segir að út tímabilið geti pant-
anir numið allt að milljarði dala.
Stork Aerospace er í eigu iðnsam-
stæðunnar Stork B.V. í Hollandi,
sem er að stórum hluta í íslenskri
eigu, en Eyrir Invest fer þar með
sautján prósenta eignarhlut.
- óká
Stork Fokker
fær samning
Öll innistæðubréf Seðla-
bankans gengu út í
útboði bankans í gær.
Tilkynnt var um útgáf-
una fyrir hálfum mán-
uði samhliða vaxta-
ákvörðun bankans en þá
var ákveðið að gefa út
bréf fyrir fimmtán til 24
milljarða króna í viku
hverri.
Már Guðmundsson
seðlabankastjóri sagði
á vaxtaákvörðunar-
fundinum, spurður um
ástæðu útgáfunnar,
að ákvörðunarfælni
bankastarfsmanna og minnkandi láns-
fjáreftirspurn hefði valdið því að pening-
ar söfnuðust fyrir í viðskiptabönkunum.
Innlánsreikningar
bankanna hefðu bólgn-
að út eftir bankahrunið
og lægju þeir nú á vel
á annað þúsund millj-
örðum króna. Því byði
Seðlabankinn bönkunum
að fjárfesta í innistæðu-
bréfum.
Í gær voru seld bréf
fyrir 25 milljarða króna
og bera þau 9,75 pró-
senta nafnvexti. Fram
kemur í Hagsjá Lands-
bankans í gær að fyrir
viku hafi vextir inni-
stæðubréfanna numið
9,67 prósentum. Innistæðubréfaflokkurinn
er nú kominn í 50 milljarða króna, sam-
kvæmt upplýsingum Landsbankans. - jab
Ásókn í innistæðubréf
FRÁ VAXTAÁKVÖRÐUNARFUNDI Már Guð-
mundsson, hér í miðjunni, segir innláns-
reikninga bankanna hafa bólgnað út eftir
bankahrunið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA