Fréttablaðið - 08.10.2009, Side 32
32 8. október 2009 FIMMTUDAGUR
UMRÆÐAN
Ágúst Guðmundsson
skrifar um kvikmynda-
gerð
Það kemur verulega á óvart hve hart er gengið
að kvikmyndagerðinni í
landinu í nýframkomnu
fjárlagafrumvarpi. Niður-
skurður þar er tæp 34%. Það mætti
halda að kvikmyndagerðin hafi verið
meira til óþurftar en aðrar starfs-
greinar.
Til samanburðar má nefna að
framlög til Sinfóníuhljómsveitar-
innar lækka um 3,25%, til Listasafns
Íslands um 2,25%, og nýendurráðinn
þjóðleikhússtjóri fær sérstakt hrós
fyrir að vita hvernig bregð-
ast eigi við 5,41% niður-
skurði til sinnar stofnunar.
Hins vegar verður að fyrir-
gefa íslensku kvikmynda-
fólki það að hafa ekki hug-
mynd um hvernig eigi að
höndla þriðjungs niður-
skurð.
Öll skiljum við að þörf er
á aðhaldi og niðurskurði.
Þessi stefnubreyting gagn-
vart kvikmyndaiðnaðinum er bara
einum of brött og á eftir að hafa
sérlega óheppileg áhrif. Íslenskar
kvikmyndir draga fé að frá útlönd-
um, framleiðendur fá aldrei meira
en 50% af kostnaðinum frá því
opinbera, hitt þarf að koma ann-
ars staðar frá. Erlendir sjóðir hafa
veitt milljónatugum í innlenda
kvikmyndagerð – og á því verður
hlé komi ekkert framlag frá hinu
opinbera. Erlenda framlagið kemur
ekki nema fyrst sé lagt í verkefnin á
heimaslóð. Menn skyldu gæta að því
að hér er verið að slátra mjólkurkú,
ekki geldri kvígu.
Niðurskurðurinn kemur ekki
aðeins niður á bíómyndum og heim-
ildarmyndum, heldur líka leiknu
sjónvarpsefni. Allir leiknir sjón-
varpsþættir fá verulegt fjármagn
úr Sjónvarpssjóði Kvikmyndamið-
stöðvar. Án þess framlags telja sjón-
varpsstöðvarnar sig ekki geta staðið
að slíkri framleiðslu. Efni á borð við
Fangavaktina og Hamarinn mun þá
heyra til liðinni tíð.
Því skal svo haldið til haga að
verðmætasköpunin í kvikmynda-
gerðinni er tvenns konar: í beinum
tekjum og í menningarauði. Íslensk-
ar kvikmyndir eru hið raunveru-
lega þjóðarleikhús – myndirnar eru
teknar upp um land allt og þær fara
auðveldlega fyrir augu allra, hvar
á landinu sem fólk býr. Þær hafna
gjarnan í sjónvarpinu, þar sem þær
hafa löngum verið helsta leikna
innlenda efnið, einkum á stórhátíð-
um. Enn fremur eru þær fluttar til
útlanda, sýndar í kvikmyndahúsum
og í sjónvarpi víða um heim. Kunn-
ugir telja að fátt selji Ísland betur
en íslenskar kvikmyndir. Þær eru
hin óbeina auglýsing sem gagnast
betur en bein sölumennska. Á tímum
niður lægingar Íslands er meiri þörf
á slíku en nokkru sinni fyrr.
Það er afar misráðið að setja þessa
ákveðnu starfsstétt á ís um ófyrir-
séða framtíð – og vitaskuld í hreinni
þversögn við samning ríkisins við
kvikmyndageirann, sem gerir ráð
fyrir árlegri aukningu á fjárfest-
ingu ríkisins í kvikmyndagerðinni.
Í krafti samningsins fóru sprota-
fyrirtæki á stúfana og fjárfestu m.a.
í stafrænni tækni svo að nú má vinna
hér mun fleiri þætti framleiðslunn-
ar en á dögum filmunnar. Á erfiðum
tímum má fyrirgefa hringl með pró-
sentutölur, en öðru máli gildir um
svo drastíska ráðagerð sem þessa,
sem líkleg er til að kreista líftóruna
úr þessum fyrirtækjum.
Enn hafa ekki heyrst röksemdir
fyrir því að þessi eina stétt eigi að
þola meiri niðurskurð en aðrar á
landinu. Á meðan ástæður þess eru
í móðu verður að gera þá kröfu að
þessi málsmeðferð, sem líklega má
rekja til vankunnáttu eða flumbru-
gangs, verði endurskoðuð svo að
ekki verði búið verr að kvikmynda-
gerðinni en að öðrum starfsgreinum
landsins.
Höfundur er forseti BÍL.
Kvikmyndir skornar niður
UMRÆÐAN
Sigurður Magnússon skrifar
um stjórnmál á Álftanesi
Margrét Jónsdótt-
ir, sem klauf sig
frá Á-lista fyrir
skömmu og gekk
yfir til D-list-
ans, hefur komið
sér og sínum,
Sveinskotsfjöl-
skyldunni, vel
fyrir í stjórn-
sýslunni á Álfta-
nesi. Margrét hefur raðað ætt-
ingjum og venslafólki í nefndir og
stjórnir. Sjálfstæðisfélagið á Álfta-
nesi og D-listinn víla ekki fyrir sér
að mynda meirihluta með þessum
hætti og hafa fagnað samstarfi við
Margréti.
Margrét, sem er bæjarfulltrúi, er
auk þess í eftirfarandi nefndum og
stjórnum: formaður bæjarráðs, for-
maður framkvæmdanefndar, for-
maður skólanefndar, í stjórn Strætó,
í stjórn Almannavarnanefndar
höfuð borgarsvæðisins, varamaður
í stjórn Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu, varamaður
í stjórn Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins, varamaður í samstarfs-
nefnd lögreglu og sveitarfélaga og
varamaður í stjórn Sorpu.
Elín Jóhannesdóttir, móðir Mar-
grétar, er varamaður fyrir dóttur
sína í framkvæmdanefnd og aðal-
fulltrúi í kjörstjórn vegna sveitar-
stjórnarkosninga á næsta ári. Jón
Höskuldsson, faðir Margrétar,
er varaformaður byggingar- og
skipulagsnefndar. Sigrún Jóhanns-
dóttir, móðursystir Margrétar, er
varamaður í félagsmálanefnd. Elín
Jóhannsdóttir (yngri), bróður dóttir
Margrétar, er varaformaður íþrótta-
og tómstundanefndar og maki Elín-
ar (yngri), Ólafur Ívar Baldvinsson,
varamaður í tónlistar skólanefnd.
Andrés J. Snorrason, sonur Snorra
móðurbróður Margrétar, er vara-
maður í búfjár eftirliti. Samtals eru
sjö fjölskyldumeðlimir Sveinskots-
fjölskyldunnar í stjórnum eða vara-
stjórnum átján nefnda og stjórna
og þar af situr Margrét sjálf í níu
nefndum/stjórnum.
Er nema von að Álftnesingar séu
undrandi. Ætli nokkurt hliðstætt
dæmi finnist í íslensku sveitar-
félagi? Enda tala Álftnesingar um
að yfirtakan í bæjarstjórn hafi fyrst
og fremst snúist um völd fremur en
málefni. Það er von að vel fari á með
Margréti og Guðmundi G. Gunnars-
syni, oddvita D-listans, en hann er
þekktur af sérkennilegum áherslum
í stjórnsýslu. En mér er spurn,
hvernig ætli sómakæru fólki sem
kosið hefur D-listann líði í svona
bandalagi eða ættar samfélagi?
Höfundur er oddviti Á-lista.
Valda-
stjórnmál
ÁGÚST
GUÐMUNDSSON
SIGURÐUR
MAGNÚSSON