Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 33
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
FYRIRSÆTAN JOURDAN DUNN tók þátt í tískusýningu Jeans Pauls
Gaultier í París nýlega. Þetta þætti ekki tiltökumál ef ekki væri fyrir þá staðreynd
að Jourdan á að eiga barn í desember og er því komin sjö mánuði á leið.
„Þessa kápu keypti ég nú bara á
útsölu í Debenhams fyrir um ári,“
segir Anna Gulla Rúnarsdóttir um
kápuna sem hún klæðist á mynd-
inni hér að ofan. Hún tekur fram
að hún eigi sér reyndar enga sér-
staka uppáhaldsflík um þessar
mundir en þær hafi hún þó átt
ófáar í gegnum tíðina. „Mér finnst
þessi kápa hins vegar mjög sæt
og svart og hvítt er alltaf mjög
fallegt,“ segir hún.
Anna Gulla er lærður fata-
hönnuður frá Kaupmannahöfn og
starfaði við fatahönnun í mörg ár,
allt fram til ársins 2000. Síðan þá
hefur hún aðeins tekið að sér ein-
staka verkefni. „Mér finnst þægi-
legt að hafa þetta svona afslappað
því það var of stressandi að hafa
þetta að aðalstarfi,“ segir hún.
Anna Gulla lýsir fatastíl sínum
sem klassískum. Hún kaupir yfir-
leitt aðeins vönduð föt sem end-
ast lengi. „Ég er enn að nota föt
frá níunda áratugnum,“ segir hún
og hlær. Hún bætir við að dóttir
hennar sé einnig dugleg við að
endurnýta föt úr fataskápnum
hennar. „Hún fer af og til í gegnum
skápinn hjá mér og finnur alltaf
eitthvað sem hún vill nota. Síðan
breytist tískan og stundum finnur
hún flíkur sem henni leist ekkert
á í síðustu umferð,“ segir hún
glettin.
Hún bendir á að það margborgi
sig að kaupa föt úr vönduðum
efnum og með góðu handbragði.
„Maður getur átt slíkar flíkur nán-
ast að eilífu,“ segir hún.
solveig@frettabladid.is
Velur frekar vönduð föt
Anna Gulla Rúnarsdóttir hefur klassískan stíl og segir það margborga sig að kaupa föt úr vönduðu efni
og með góðu handbragði. Slík föt dugi lengi og megi nota nánast að eilífu.
Anna Gulla Rúnarsdóttir í kápu sem hún keypti sér á útsölu. Hún heillaðist af mynstrinu enda segist hún hrifin af svörtu og hvítu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
SKARTHÚSIÐ • LAUGAVEGI 44 • SÍMI 562 24 66