Fréttablaðið - 08.10.2009, Síða 35
FIMMTUDAGUR 8. október 2009 3
Harpa Jónsdóttir sigraði í keppn-
inni 1000 Fabulous Knit Hats
og mun verðlaunahúfan birtast
í bók með sama nafni víða um
heim.
Keppnin ber nafnið Þúsund frábær-
ar húfur eða „1000 Fabulous Knit
Hats,“ og var haldin af útgáfufélag-
inu Rockport Publishers sem sér-
hæfir sig í útgáfu rita um arkitekt-
úr og hönnun.
„Þeir ætla að gefa út bók með
sama nafni og keppnin og mun
hönnuðurinn Annie Modesitt rit-
týra henni,“ segir Harpa Jónsdóttir,
sem sigraði í keppninni með undur-
fagra útsaumaða húfu.
En hvernig kom það til að hún tók
þátt í keppninni? „Ég hafði misst af
auglýsingunni en svo var kanadísk
kona, sem ég þekki ekki neitt en
vissi greinilega af mér og minni
hönnun, sem sendi mér póst og
hvatti mig til
að taka þátt,“
svarar Harpa.
Hú n send i
því myndir
a f n o k k r -
um húfum út.
„Síðan sendi
A nnie mér
póst um að ég
hefði unnið
með í raun
hvaða húfu
sem var,“ segir
Harpa en ákveðið var að velja eina
húfuna sem þótti auðveld í fram-
kvæmd. Harpa útbjó síðan upp-
skrift að henni til að birta í bókinni
eftir að hún vann.
Harpa segir að þó að verðlaun-
in séu ekki mikil, aðeins um 500
dalir, fylgi þeim höfundarréttur
að húfunni. „Og það sem er verð-
mætast, auðvitað kynningin,“ segir
hún. Rockport Publishers er enda
stórt fyrirtæki með útibú bæði
í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Bókinni, sem áætlað er að komi út
næsta haust, verður dreift mjög
víða. „Þetta er mun stærra dæmi
en mig óraði fyrir þegar ég ákvað
að taka þátt,“ segir Harpa ánægð
með árangurinn. Þeim sem vilja
kynna sér útslit keppninnar nánar
er bent á vefsíðuna http://1000 -
fabulous knithats.com/ - sg
Verðlaun fyrir bestu húfuna
Vinningshúfan eftir Hörpu sem mun birtast í bók næsta haust sem dreift verður víða
um heim.
Harpa Jónsdóttir.
Margt var að sjá á hönnunar-
hátíð í London í september.
Hönnunarhátíðin í London var
haldin dagana 19. til 27. septem-
ber. Hátíðin er haldin árlega til
að koma London á framfæri sem
höfuð borg hönnunar í heiminum.
Yfir tvö hundruð uppákomur
af ýmsum toga voru í boði þessa
daga og því höfðu gestir úr nógu
að velja.
Á hátíðinni koma fram margir
ungir og upprennandi hönnuð-
ir í bland við víðfræga reynsl-
ubolta. Unnið var með söfnum
borgarinnar, verslunum, háskól-
um og tímaritum til að gera hátíð-
ina sem besta úr garði. - sg
Hönnun í London
Verk eftir Marc Newson. Hann hannaði
stálmannvirki undir nafninu Supercell.
Shigeru Ban, japanskur arkitekt, hannaði
þennan turn úr pappa.
Eitt meginverkefni hönnunarhátíðar var verk sem ber heitið The Tournament eftir
hönnuðinn Jaime Hayon. Það er taflborð með 32 tveggja metra háum taflmönnum á
Trafalgar-torgi.
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
NÁM