Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 36
8. október 2009
FIMMTU- DAGUR
4
Mikil eftirvænting var fyrir vor- og
sumartískusýningu Yves Saint Laurent
sem haldin var í París fyrr í vikunni
og voru flestir sammála um að ítalski
hönnuðurinn Stefano Pilati hefði
tekið meiri áhættu nú en oft áður.
Hann steig þó engin feilspor og þótti
hönnunin bera vott um náðargáfu.
Pilati lék sér með hefðbundin form
og fagrar litasamsetningar en tók
þó upp á ýmsum óknyttum. Má þar
nefna jarðarberjaeyrnalokka og hvítan
flamenco-kjól alsettan jarðarberjum.
Ekki er gott að segja til
um hvort það er eitt-
hvað sem koma
skal en uppátæk-
ið vakti þó mikla
lukku. „Mig langar í
þennan jarðarberja-
kjól,“ sagði Kate
Moss, andlit nýj-
ustu auglýsinga-
herferðar Yves
Saint Laur-
ent, bak-
sviðs. - ve
Jarðarber til skrauts
Á NÝJUSTU TÍSKUSÝNINGU YVES SAINT
LAURENT VAKTI JARÐARBERJASKRAUT
NOKKRA ATHYGLI.
Kate Moss
lýsti hrifn-
ingu sinni
á jarðar-
berjunum að
sýningunni
lokinni.
NORDICPHOTOS/
GETTY
LILY ALLEN vakti verðskuldaða athygli þegar hún söng á tískusýningu
Chanel í París á dögunum. Fleiri frægir mættu á staðinn til að fylgjast með nýj-
ustu tísku og má nefna Prince, Claudiu Schiffer, Sean Lennon og Rihönnu.
Í Lykkjufalli á Laugavegi fást kápur sem
er hægt að nota á tvo vegu. Þær eru ýmist
munstraðar eða í lit öðrum megin og dökkar
hinum megin og er hægt að velja hvaða hlið
snýr út eftir því sem hentar. Sigrún Bald-
ursdóttir, eigandi verslunarinnar, byrjaði
að hanna kápurnar í sumar en þegar leið á
ferlið datt henni í hug að búa þær þessum
eiginleika.
„Það voru í raun hagsýnissjónarmið sem
réðu för enda er þarna hægt að eignast tvær
kápur í einni. Eina dökka og klassíska og
aðra munstraða eða í lit. Það eina sem þarf
að gera er að snúa kápunni við og færa band-
ið í mittinu yfir. Kragann má svo ýmist hafa
opinn eða krækja saman í hálsinn,“ segir Sig-
rún sem hefur mjög gaman af því að hanna
föt sem er hægt að breyta og hefur einnig
á boðstólum peysur sem má nota á marga
vegu.
Kápurnar, sem eru handgerðar, hafa
rokið út og situr Sigrún því löngum stund-
um við saumavélina en hún er með aðstöðu
inn af búðinni. „Ég reyni að vera alltaf
með eina kápu í hverri stærð í búðinni
en legg mikið upp úr því að hafa ekki
margar eins. Ég geri kannski eina
til tvær úr sama efni og ef ég nota
sama efnið oftar í aðra hliðina hef
ég hina öðruvísi,“ útskýrir Sig-
rún en þannig geta konur geng-
ið að því vísu að þær séu að
eignast sérstaka flík. Sigrún
tekur einnig við pöntunum
en þá er hægt að velja lit og
munstur auk þess sem tekin
eru mál. Sigrún tekur fram
að Svandís Friðbjörnsdóttir, sem
starfaði hjá henni í sumar, var með
henni í upphafi hönnunarferlisins og
á heiðurinn að skemmtilegri útfærslu á
olnboganum.
Í Lykkjufalli fæst nær eingöngu íslensk
hönnun og framleiðir Sigrún stóran hluta
hennar sjálf. „Eitthvað er síðan framleitt
fyrir mig erlendis og er ég því með þetta
svolítið í bland.“ Vetrarlínan er nú komin í
hús en þar er meðal annars að finna bróder-
aða barnaboli úr Merion-ull og ný peysusnið.
Sigrún gerir mikið af barnafötunum sjálf og
nú eru jólakjólarnir á teikniborðinu.
vera@frettabladid.is
Tvær kápur í einni
Hagsýnissjónarmið réðu för þegar Sigrún Baldursdóttir byrjaði að hanna kápur sem
má nota á tvo vegu. Önnur hliðin er dökk og klassísk en hin munstruð eða í lit.
Hér má sjá klassísku útgáfuna
en á einu augabragði er kápan
orðin munstruð.
Sigrún hefur gaman af því að hanna föt sem er
hægt að breyta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sérverslun með
FÁKAFENI 9
(við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18
& laugard. 11-16
Skór & töskur
www.gabor.is
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
System kr. 33.900,-
Flex Max kr. 27.900,-
Flex kr. 22.900,-
FLOTT
Í VETUR...
MATUR