Fréttablaðið - 08.10.2009, Síða 38
8. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR
Skór eru helsta ástríða Svövu
Johansen, forstjóra NTC-versl-
anakeðjunnar, og deilir hún
henni með fjölmörgum íslensk-
um kynsystrum sínum.
„Mér finnst íslenskar konur hafa
mikið vit á skóm og eiga margar
það til að falla ítrekað fyrir
fallegum pörum,“ segir Svava og
telur skýringuna meðal annars að
finna í íslensku veðurfari. „Hér
er allra veðra von og við þurfum
meira á „góðum“ skóm að halda en
konur á suðlægari slóðum. Þeir eru
því í mikilli notkun og stór hluti af
heildar útliti okkar.“
Svava er sérstaklega ánægð með
skótískuna í ár. „Leðrið er þykkara
en oft áður og mikið er um hamrað
leður þó að slétt leður sé líka á
sínum stað. Eins er gaman að sjá að
rúskinn er að koma sterkt inn aftur.
Þá erum við með margar nýjar út-
færslur af ökklaskóm, sem hafa átt
vinsældum að fagna undan farin ár,
og eru þeir bæði fínir og grófir.“
Svava segir talsvert um skó með
spennum, ólum og öðrum áherslu-
atriðum og minna sumir um margt
á mótorhjólastígvél eða svokall-
aða „bikera“. Eins eru hermanna-
klossar afar heitir og eru þeir flat-
ir eða jafnvel með kubbahæl. Svava
segir tískuna líka henta mjög breið-
um hópi en mikið er um lágbotna
skó jafnt sem himin háa hæla auk
þess sem fylltir skór eru enn mjög
vinsælir. „Mér finnst skótískan
fara mjög vel við fata tískuna og
þá til dæmis við leður jakka, viðar
harem buxur, niðurmjóar gallabux-
ur eða leggings sem nú eru hafðar
síðari en oft áður og eiga að detta
niður á skóna.“
Svava segist finna fyrir því að
konur leiti að skóm sem þær geti
notað við ólík tilefni og þannig
dressað sig bæði upp og niður. „Þá
finnst mér íslenskar konur leggja
mikið upp úr gæðum og þá kannski
sérstaklega í ljósi veðurskilyrða.
Það er meira um að þær kaupi sér
ódýrari tískuskó sem einungis er
ætlunin að nota yfir ákveðið tíma-
bil en við bjóðum upp á skó á mjög á
breiðu verðbili. Við tökum vandaðri
og dýrari týpur inn í Evu, Kultur
og Companys eins og Free lance,
Strategia, Fruit, Nero Giardini og
Moma en ódýrari inn í Focus auk
þess sem við erum að keyra inn
mjög breitt verðbil í GS-skóm. Við
höfum lagt mikla áherslu á að finna
viðráðanlegt verð en halda gæðum.
Það er það sem viðskiptavinurinn á
Íslandi vill sjá. Við höfum átt löng
og traust viðskiptasambönd við
mörg skófyrirtækjanna í gegnum
árin og birgjarnir okkar eru bara
þó nokkuð skilningsríkir hvað varð-
ar efnahagsástandið á Íslandi og ég
kann mjög vel að meta það.
Dýrari skórnir eru yfirleitt frá
ítölskum eða spænskum framleið-
endum en Billi Bi, sem meðal ann-
ars er selt í GS-Skóm, hefur um ára-
bil án efa verið vinsælasta merkið.
Þetta er dönsk hönnun, framleidd
á Spáni og Ítalíu. Stígvélin frá Billi
Bi eru meðal annars framleidd
í mismunandi víddum yfir kálf-
ann, en það hefur fallið sérstak-
lega vel í kramið hjá viðskiptavin-
um okkar.“
Svava fer ekki leynt með það
að hún er alger skófíkill og hefur
áhugi hennar á skóm bara aukist
með árunum. „Skórnir setja punkt-
inn yfir i-ið og er hægt að breyta
öllu útlitinu með því að fara í lág-
botna eða hæla.“ Af öllu því sem
Svava gerir innan NTC finnst henni
skemmtilegast að snúast í kringum
skó. „Ég hlakka alltaf mest til að
fara á skósýningar og gæti gleymt
mér þar í marga daga.“ Svava hefur
ekki tölu á þeim skópörum sem
hún hefur átt. „Ég er voða dugleg
að endurnýja enda fylgir það vinn-
unni að vera í nýjum skóm. Það er
þó eitt og eitt par sem situr eftir og
ég tími ekki að láta og geymi ég þau
á góðum stað í kjallaranum.“
- ve
Við íslenskar konur elskum skó
Skótískan fer vel við fatatískuna. Mikið er um ökklaskó með spennum og öðrum
áhersluatriðum en þeir eru flottir við leðurjakka, þröngar buxur eða síðar leggings.
Svava er ánægð með tískuna í ár en hún hentar mjög breiðum hópi. Mikið úrval er af lágbotna skóm en líka af konfektmolum
með himinháum hælum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Hlynur Steingrímsson hlynurf@365.is s. 512 5439
1. City Shoes, st. 36–41.
Verð 14.990,-. Fást í GS skóm.
2. Bronx, st. 36–41.
Verð 23.990,-. Fást í GS skóm.
3. City Shoes, st. 36–41.
Verð 9.990,-. Fást í GS skóm.
4. Billibi, st. 36–41
Verð 42.990,-. Fást í GS skóm.
1.
2.
3.
4.