Fréttablaðið - 08.10.2009, Side 39
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2009
1.
2.
3.
4.
1. Cool Girl Design, st. 36–41
Verð 13.990,-. Fást í Focus.
2. City Shoes, st. 36–41
Verð 7.990,-. Fást í Focus.
3. Bronx, st. 36–41
Verð 34.990,-. Fást í Companys.
4. Cool Girl Design, st. 36–41
Verð 9.990,-. Fást í Focus.
Að ganga á háum hælum
er engum eðlislægt. Það
tekur æfingu og tíma
að komast upp á lag
með að ganga á háum
hælum eins og flestir
vita sem horft hafa á
leitina að næstu ofur-
fyrirsætu Banda-
ríkjanna. Hér eru
nokkrar leiðbeiningar
til þeirra sem eru að
stíga sín fyrstu skref
á háhæla skóm og
annarra sem vilja
bæta göngulagið.
1. Stígðu alltaf fyrst í
hælinn og láttu sólann
fylgja fljótt og lipurt
á eftir.
2. Tærnar skulu ávallt vísa
beint fram eða eins nálægt
því og hægt er.
3. Sveiflaðu höndunum létt
með til þess að fá sem best
jafnvægi.
4. Hafðu fæturna beina og gakktu
ekki gleiðfætt.
5. Taktu mjúk og jöfn skref.
Jafnvel mætti stytta skrefið ör-
lítið.
6. Reyndu að komast hjá því að
ganga á ís, í krapa, drullu, grasi,
sandi, möl eða á ójöfnu yfirborði.
Hætta er á að skrika fótur eða að
hællinn sökkvi niður. Ef þú ert í
vafa er betra að fara úr skónum og
halda á þeim yfir illfærar götur.
Fyrirsætur þurfa góðan göngustíl.
Horft aftur til fortíðar á tískusýningu Dior-tískuhússins.
Augljós áhrif frá film noir eða rökkurmyndum mátti greina á
sýningu Dior á tískuvikunni í París á dögunum. Brugðið var á
leik með ljós og skugga þar sem sýningarstúlkur stigu fram
úr skugganum eins og tálkvendi þessarar langlífu kvik-
myndagreinar; leggjalangar, stífmálaðar og gjarnan í að-
sniðnum klæðnaði og áberandi skóm til að undirstrika
kynþokkann og um leið hættulegt eðlið. - rve
Fyrirsæturnar liðu áfram eftir sýningarpallinum leyndardómsfullar á svip.
NORDICPHOTOS/AFP
Fagrir fótleggir fengu að njóta
sín á sýningunni líkt og í noir-
myndum.
Tálkvendi noir-mynda eru oft óútreiknanleg
í hegðun og það var undirstrikað á sýning-
unni með ýmsu móti. Hvað skyldi til dæmis
leynast í handtöskunni hjá þessari?
Aðsniðnir kjólar og flegin
hálsmál voru áberandi á sýning-
unni þar sem Dior tefldi fram
djörfum litum í bland við svart
og grátt.
Þessari snoppu-
fríðu fyrirsætu
svipar óneitan-
lega til leikkon-
unnar Veronicu
Lake sem gerði
garðinn frægan í
rökkurmyndum
á sínum tíma.
NORDICPHOTOS/AFP
Reglur þeirra sem vilja
ganga á háum hælum
Pan Asian Repertory-leikhúsið
í New York frumsýndi í vikunni
nýjan söngleik sem ber hinn æv-
intýralega titil Imelda: A New
Musical, eða Imelda: Nýr söng-
leikur. Frá þessu er greint í Wall
Street Journal.
Söngleikurinn er byggður á
sögu Imeldu Marcos, fyrrverandi
forsetafrú á Filippseyjum og fræg-
asta skósafnara sögunnar.
Aðallagið í söngleiknum heitir
„3.000 pör af skóm“, en það er sá
fjöldi sem talið er að Imelda hafi
keypt af skóm um ævina. Aðal-
leikkonan Jaygee Macapugay, sem
leikur Imeldu, notar einungis átta
pör í sýningunni. Önnur tuttugu
pör eru þó til taks ef ske kynni að
eitthvað færi úrskeiðis. - kg
Söngleikur um
skósafnara
Talið er að Imelda Marcos hafi eignast
um 3.000 pör af skóm á lífsleiðinni.
Hæfileikinn til að ganga á
hælum er ekki meðfæddur.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sumir skórnir voru
óneitanlega
litríkir.
Gyðjur og
glæponar í París