Fréttablaðið - 08.10.2009, Side 40
8. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR
1. Studio London, st. 36–41.
Fást í gráu.
Verð 10.995,-
2. Six Mix, st. 36–41.
Fást í svörtu, fjólubláu, rauðu og bláu.
Verð 15.995,-
3. Six Mix, st. 36–41
Fást í svörtu og rauðu.
Verð 24.995,-
4. Nike, st. 36–41
Verð 21.995,-
1.
2.
3.
4.
„Þetta er lífsstílsbúð fyrir alla
aldurshópa,“ segir Áslaug
Karlsdóttir, verslunarstjóri
Skór.is í Kringlunni. Hún er
bjartsýn fyrir jólavertíðina og
segir uppháa strigaskó vera
það vinsælasta í dag.
„Það má segja að ungt fólk sé
stærsti hópur viðskiptavina
okkar, en samt verslar hér fólk
úr öllum aldurshópum,“ segir Ás-
laug Karlsdóttir, verslunarstjóri
hjá Skór.is í Kringlunni. Verslun-
in er einnig til húsa í Smáralind.
Spurð um helstu áherslur í
innkaupum segist Áslaug leggja
mikið upp úr því að hafa á boð-
stólum strigaskó frá öllum helstu
merkjunum, til að mynda Adidas,
Hummel og Puma. „Strigaskórnir
eru alltaf jafn vinsælir. Núna eru
uppháir strigaskór, svokallaðir
„high-top“-skór, vinsælastir hjá
unga fólkinu. Þegar viðskipta-
vinir koma inn í búðina sjá þeir
hreinlega heilu staflana af slíkum
skóm og margir þeirra eru mjög
litríkir,“ segir Áslaug.
Skór.is bjóða einnig upp á
mikið úrval af dömustígvélum.
„SixMix, sem er portúgalskt fyrir-
tæki, á sér stóran aðdáendahóp.
Það framleiðir meðal annars afar
vönduð leðurstígvél og eins loð-
fóðruð stígvél. Hjá okkur er líka
hægt að fá ódýrari stígvél frá
Studio London og þau hafa notið
aukinna vinsælda að undanförnu.
Það segir sig sjálft að sumir leita
í ódýrari vörur þessa dagana.“
Áslaug hefur verið verslunar-
stjóri hjá Skóm.is í rúmlega eitt
og hálft ár.
Hún segir starfsfólkið bjart-
sýnt fyrir jólavertíðina. „Við
höfum tekið eftir því að fólk
byrjar fyrr en áður að huga að
jólainnkaupunum. Líklega skiptir
meiru máli nú en áður að gera góð
kaup.“
Að sögn Áslaugar ber að auki
helst á því að ökklaskór og plat-
form-hælaskór séu að slá í gegn
hjá kvenþjóðinni. „Vandaðir götu-
skór frá Skechers fyrir dömur og
herra seljast líka vel. Svo eru
alltaf einhverjir sem kaupa sér
Crocs-skóna þægilegu. Til dæmis
er upplagt að nota þá í innivinnu,“
segir Áslaug Karlsdóttir.
Strigaskór frá öllum
helstu merkjunum
Áslaug, verslunarstjóri Skór.is í Kringlunni, segir viðskiptavini á öllum aldri sækja í verslunina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Litla stúlkan hún Suri Cruise er
dæmalaust sæt og á foreldra sem
þykir augljóslega sérlega gaman
að klæða hana í falleg föt. Þótt hún
sé aðeins þriggja ára hefur fatnað-
ur hennar vakið eftirtekt um allan
heim.
Fyrir skömmu náðust myndir af
litlu elskunni á búðarrölti ásamt
móður sinni Katie Holmes. Það
væri þó vart saga til næsta bæjar
ef sú stutta hefði ekki verið á háum
hælaskóm á göngunni en slíkur
skófatnaður verður seint sagður
kjörinn fyrir þriggja ára hnátur.
Suri var þó ekki lengi í þeim
því þegar mæðgurnar komu út úr
leikfangabúð var sú yngri komin í
strigaskó sem eru öllu hentugri á
búðarrápi með mömmu. - kdk
Suri Cruise á háum
hælum á búðarrápi
Lítil stjörnuhnáta á háum hælum. Suri
Cruise sást nýverið í fylgd móður sinnar
Katie Holmes og var þá í þessum skóm.
Áhugasamir um tísku bíða sjálfsagt
með öndina í hálsinum eftir frum-
sýningu seinni Sex and the City-
kvikmyndarinnar þar sem klæðn-
aður Carrie, Miröndu, Charlotte
og Samönthu virðist ætla að verða
fyrirferðarmikill sem endranær.
Ef marka má myndir á netinu virð-
ast framleiðendurnir að minnsta
kosti ekki ætla að svíkja áhorfend-
ur um vænan skammt af hátísku.
Þannig hefur sést til leikkonunnar
Söruh Jessicu Parker, sem fer með
hlutverk Carrie Bradshaw, í sand-
ölum frá Dior og svo háhæla skóm
frá Christian Louboutin.
Nýjasta tíska í
aðalhlutverki
Vinkonurnar á góðri stundu en stílistinn
Patricia Field hefur umsjón með fatnaði
þeirra.