Fréttablaðið - 08.10.2009, Qupperneq 43
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2009
Í Eurosko-Skóhöllinni í verslunar-
kjarnanum Firðinum í Hafn-
arfirði má sjá skýrt dæmi um
hve vel getur tekist til þegar
Íslendingar og Norðmenn taka
höndum saman. Hafnfirsku
hjónin Vigdís Grétarsdóttir og
Helgi Rúnar Gunnarsson keyptu
skóverslun ina fyrir um fjórum
árum og bjóða þar upp á gæða-
skó frá norsku skókeðjunni
Eurosko, allt frá fyrstu sporum
til þeirra síðustu.
„Við höfum alltaf haft þægindin í
fyrirrúmi,“ segir Vigdís. Sú full-
yrðing á ekki aðeins við um þá
áherslu þeirra hjóna á að skórnir
fari sem best á fæti heldur einnig
þá áherslu sem þau leggja á að
verðið komi sér ekki óþægilega
fyrir viðskiptavini þeirra. „Við
leggjum áherslu á að bjóða upp á
sem vandaðasta skó á sem viðráðan-
legustu verði,“ segir Vigdís.
Þar sem Norðmenn þekkja
rysjótt veðurfar nokkuð vel líkt
og Íslendingar henta skópörin
í Eurosko-Skóhöllinni íslensku
veður fari betur en oft er með
skó sem framleiddir eru í hlýrri
heimshlutum. Flestir eru skórnir
úr leðri en Vigdís segir að ákveð-
ið hafi verið að taka inn fleiri skó
úr gerviefnum en tíðkast hefur.
Lágt gengi krónunnar hafi spilað
inn í þá ákvörðun en einnig sú stað-
reynd að gerviefni sem notuð eru í
skó eru allt önnur og betri en þau
sem áður voru notuð. Oft á tíðum
sé erfitt að átta sig á því hvort um
leður eða gerviefni sé að ræða, svo
mikil séu gæðin orðin.
Eurosko-keðjan var stofnuð
árið 1982 og er stærsta skókeðja á
Norður löndum og ekki að ástæðu-
lausu. Rekstur þar sem lögð er
áhersla á klassík, þægindi, gæði
og verð við hæfi venjulegs fólks
gengur venjulega vel þótt kreppt
geti að í erfiðu árferði. Segir Vigdís
tískuna í ár einkennast af áherslu
á að fólk geti notað skóna við sem
flest tilefni. Fólk hafi ekki áhuga
á því að kaupa sér skó sem það er
ekki visst um að koma til með að
nota mikið. Notagildi og smekkleg-
heit séu einkunnarorð hversdagsins
og það sé einmitt það sem Eurosko-
Skóhöllin vilji bjóða upp á.
Skór sem henta íslensku
veðri og venjulegu fólki
Súrrealísk stemning
ríkti á sýningu kór-
eska fatahönnuðarins
Lie Sang Bong í París.
Seint verður sagt að
kóreski fatahönnuður-
inn Lie Sang Bong feti
troðnar slóðir, eins og
bersýnilega kom í ljós
þegar hann sýndi vor-
og sumar línu sína í París
fyrir skemmstu. Silfrað-
ur og hvítur klæðnaður,
framúrstefnuleg höfuð-
föt og sérstæðir skór
voru þar áberandi. - rve
Skleggings gæti þessi sérstæða sam-
blanda af skóm og leggings kallast.
Á sýningunni mátti greina viss áhrif frá
sjötta áratugnum eins og sést af þessum
skemmtilegu skóm og veski í stíl.
Hvítir og támjóir skór í stíl
við topp og niðurþröngar
buxur.
Þessa skó sýndi Bong í París fyrr á árinu
en þeir tilheyra haust- og vetrarlínu
kappans. NORDICPHOTOS/GETTY
Vigdís í Eurosko-Skóhöllinni leggur áherslu á klassík, gæði, þægindi og gott verð.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fljúgandi furðuhlutir
Bong notaði bronsaða og gyllta
tóna í haust- og vetrarlínunni en
hefur nú snúið blaðinu við með
hvítum og silfruðum.
E.T. go home. Þessi
hattur minnir einna
helst á fljúgandi
furðuhlut.
2.
3.
4.
1. Chilli st. 36–41
Verð 13.995,-
2. Softwalk st. 36–41
Verð 15.995,-
3. Softwalk st. 36–41
Verð 14.995,-
4. Gino Venturi st. 36–41
Fást einnig í svörtu
Verð 15.995,-
1.