Fréttablaðið - 08.10.2009, Side 44
8. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● skór
Konur hafa í gegnum tíðina grip-
ið til ýmissa ráða til að huga að út-
litinu. Í vöruskortinum sem fylgdi
síðari heimsstyrjöldinni var til
dæmis galdurinn að endurnýta
sem mest.
Sem dæmi um það voru gamlir
skór málaðir, skór sólaðir með
korki, tré eða bíldekkjum, stál-
kantar voru settir á tá og hæla,
skóáburður var notaður sem fót-
leggjalitur, vasaklútar og gömul
sængurver nýtt í undirfatnað og
gömul gluggatjöld eða áklæði
notuð í fatnað.
Þá var herrafatn-
aði oft breytt í
dömufatnað.
Frökkum
v a r t i l
dæmis
breytt í
hálfsíða
kvenjakka,
pils eða barna-
kápur. Jakkar
urðu að dragtarjökk-
um, fóðruðum með dagblöðum og
svo framvegis. Heimild: visindavefur.is
Galdurinn var
að endurnýta
Mikill vöruskortur var í seinni heims-
styrjöldinni og þá tóku konur upp á því
að endurnýta fatnað og fylgihluti.
Ekki gera ráð fyrir því að þú
munir nota sama skónúmer ævina
á enda. Meðganga, þyngdarbreyt-
ingar og lífið sjálft getur valdið
því að skóstærðin breytist. Fæt-
urnir vaxa ekki eins og þeir gerðu
þegar þú varst barn en þeir geta
lengst vegna breytinga á liðbönd-
um, ekki síst eftir að komið er yfir
fertugt og fimmtugt.
● 1. Mundu svo að skóstærðir eru
breytilegar. Þótt þú notir yfirleitt
stærð 38 er oft mikill munur eftir því
frá hvaða framleiðanda skórnir koma.
● 2. Börn vaxa hratt og því er gott
að miða við að þú komir þumli aftan
við hælinn eftir að barnið er komið
í skóinn.
● 3. Best er að máta skó seinni part
dags. Þá er fóturinn ögn þrútnari en
hann er snemma dags og minni líkur
eru á að þú kaupir skó sem þig á eftir
að verkja undan.
● 4. Það er ekki ófrávíkjanleg regla
að skór séu betri eftir því sem þeir
kosta meira. Þú getur fengið góða
skó á góðu verði.
● 5. Ef þér líður ekki vel í skóm sem
þú mátar skaltu ekki kaupa þá.
Góð ráð um skó
● VISSIR ÞÚ AÐ... Í Mið-Austurlöndum,
sumum Afríkuríkjum, Kóreu og Taílandi þykir
dónalegt að sýna iljarnar. Annars staðar,
til dæmis á Indlandi, þykir skókast versti
dónaskapur. Á Taílandi þykir það jafnframt
mesta móðgun ef fótur, sokkur eða skór
snertir höfuð. Skemmst er að minnast
þess þegar blaðamaðurinn Muntadhar al-
Zaidi henti skó sínum í George W. Bush
Bandaríkjaforseta. Al-Zaidi var ákærður
fyrir að vanvirða erlendan þjóðhöfð-
ingja og dæmdur til þriggja ára fang-
elsisvistar. Hann var hins vegar
látinn laus í september vegna
góðrar hegðunar.
● SKÓNOTKUN
HÓFST FYRIR
ÞÚSUNDUM ÁRA
Elstu skór sem vitað
er um eru frá 8.000
til 7.000 f.Kr. og fund-
ust í Oregon í Banda-
ríkjunum árið 1938. Þó
telja sumir, og þeirra á
meðal mannfræðing-
urinn Erik Trinkaus, að
skónotkun hafi hafist
fyrr, jafnvel fyrir 40.000
árum. Helstu rök Trinkaus eru að á því tímabili hafi tábein manna þróast
og minnkað, en sannanir eru fyrir því að hið gagnstæða gerist þegar
menn ganga um berfættir.
Dæmigerðir miðaldaskór.