Fréttablaðið - 08.10.2009, Qupperneq 64
48 8. október 2009 FIMMTUDAGUR
> HÁRIÐ BURT
Pete Wentz, bassaleikari
hljómsveitarinnar Fall Out Boy,
leyfði Mark Hoppus úr hljóm-
sveitinni Blink 182 að raka af
sér hárið á tónleikum í New
York. Wentz tilkynnti áhorf-
endum að nú skyldi emo-
greiðslan af og rakaði af sér
allt hárið við mikinn fögnuð
tónleikagesta.
folk@frettabladid.is
„Reyk Veek er samstarfsverkefni nokk-
urra tónlistarmanna sem allir spila og
semja teknótónlist. Við þekktumst lítið
áður en samstarfið hófst en áttum það
sameiginlegt að vilja spila gott teknó,“
segir plötusnúðurinn Heimir Héðins-
son um tónlistarverkefnið Reyk Veek.
Hann telur að samstarf sem þetta
geri tónlistarmönnum kleift að koma
ýmsu í framkvæmd sem erfiðara væri
að gera einn síns liðs, líkt og útgáfu
hljómdiska. „Þetta gerir líka sköpunar-
ferlið skemmtilegra og í leiðinni kynnist
maður nýju fólki og nýjum hugmynd-
um.“
Heimir hefur unnið sem plötu-
snúður frá árinu 2005 og hefur auk
þess verið að vinna að eigin tónlist
ásamt Raffaele Manna sem þeir
hyggjast gefa út bráðlega undir
merkjum Reyk Veek. „Mér finnst tónlist
vera eitt það persónulegasta sem maður
getur látið frá sér og þess vegna höfum
við ekki verið að flýta okkur við að gefa
efnið okkar út. Við spilum undir nafninu
Karíus & Baktus og komumst nýlega á
samning hjá umboðsskrifstofu sem sér
um að bóka okkur erlendis, nú er bara að
bíða og sjá hvernig þetta þróast.“
Tvö danskvöld hafa verið haldin eftir
að Reyk Veek var komið á laggirnar,
þriðja kvöldið fer fram á Jacobsen hinn
17. október. Heimir segir kvöldin hafa
verið vel sótt og leggja listamennirnir
mikið kapp á að leika lifandi tónlist í
bland við skífuþeytingar. „Það sem er
heillandi við raftónlist er að þessi tón-
listarstefna er enn að þróast og því eru
engin takmörk fyrir því sem hægt er að
gera,“ segir Heimir að lokum. - sm
Teknóið er enn að þróast
REYK VEEK Heimir Héðinsson og vinir hans spila
teknó undir heitinu Reyk Veek. Heimi finnst
tónlistarstefnan heillandi.
Listamaðurinn Jóhannes
Níels, eða Nilli eins og hann
er betur þekktur, opnaði
listasýningu á Kaffi Energiu
í Smáralind á þriðjudaginn
var. Jóhannes Níels hefur
unnið að leikmyndagerð
um nokkurt skeið og hefur
mikið unnið með leikhópn-
um Vestur port. Sýningin
var vel sótt og lét Gísli Örn,
leikari í Vestur porti, sig að
sjálfsögðu ekki vanta. - sm
Nilli sýnir í Smáralind
Jóhannes Níels fyrir framan nokkur verka sinna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gísli Örn Garðarsson, leikari hjá Vestur-
porti, lét sig ekki vanta á opnunina.
Baggalúturinn Karl Sigurðsson, Haraldur
Halldórsson og Tom Dugan, sem vinnur
leikmyndina fyrir Faust sem Vesturport
mun setja upp í Borgarleikhúsinu.
Sýningargestir voru á öllum aldri. Hér
er listamaðurinn ásamt syni sínum Agli
Andra og Ritu Jóhannesdóttur.
Guy Ritche, fyrrverandi eigin-
maður Madonnu, hrósar
og uppnefnir sína fyrr-
verandi í viðtali í nýj-
asta tölublaði banda-
ríska tímaritsins
Esquire. Hann byrj-
ar á hrósinu og
sagði Madonnu
standa fullkom-
lega jafnfætis
konum sem
eru tuttugu
árum yngri
en hún.
„Madonna lætur hlutina ger-
ast,“ sagði Ritchie. „Skelltu
henni við hliðina á 23 ára
skvísu og hún skilar meiri
vinnu, betri dansi og flottari
árangri. Konan er svaka-
leg.“
Madonna og Ritchie
skildu í október í fyrra.
Hann hefur blendnar til-
finningar í garð hennar.
„Ég elska hana ennþá,“
sagði hann. „En hún er
líka þroskaheft.“
Guy Ritchie segir Mad-
onnu vera þroskahefta
MADONNA Þroskaheft í
augum fyrrverandi eigin-
manns síns.
GUY RITCHIE Hefur
blendnar tilfinngar í
garð sinnar fyrrver-
andi.
„Friðrik er eini viðskiptavinurinn
enda er ég hættur í bili með skær-
in,“ segir Jógvan Hansen, fyrr-
verandi hárgreiðslumaður. Hann
stundar nú nám við Keili, háskól-
ann í Reykjanesbæ, á félagsfræði-
braut og hefur tekið sér ársleyfi
frá hárskerðingum og litun. Sam-
starfsmaður hans í tónlistinni,
Friðrik Ómar, nýtur hins vegar
þess heiðurs að vera eini viðskipta-
vinur Jógvans. Þeir félagar eru á
leiðinni norður á land í dag, spila
á Græna hattinum í kvöld og svo á
Dalvík á morgun. Litun og klipping
heima hjá Friðriki er liður í undir-
búninginum. „Ég sé um kaffið og
hann „sjænar“ á mér hárið,“ segir
Friðrik en þeir félagar kynntust
einmitt þegar Friðrik tók að venja
komur sínar á hárgreiðslustofu
Jógvans. Færeyingurinn og Birna
á Akureyri eru þau einu sem fá
að hafa hendur í hári Eurovision-
stjörnunnar.
Samstarf þeirra Friðriks og Jóg-
vans er nú að geta af sér plötu. Þar
syngur Jógvan íslensk dægurlög á
færeysku og Friðrik færeysk lög
á íslensku. Þeir félagar hyggjast
leggja land undir fót síðar í þess-
um mánuði, með fimm manna
hljómsveit og leika lög af þessari
plötu. Friðrik Ómar kveðst vera
spenntur fyrir því að koma til
Færeyja, þangað hafi hann aldrei
komið áður. „Nei, býr ekki þarna
hið vænsta fólk? Þeir lánuðu okkur
allavega fyrstir pening eftir 6.
október,“ segir Friðrik.
Jógvan unir hag sínum vel í
Reykjanesbæ þar sem hann býr
ásamt konu sinni en hún er stærð-
fræðikennari. Hann segir hátt
bensínsverð hafa gert gæfumun-
inn í þeirri ákvörðun sinni að
leggja hárgreiðsludótið á hilluna í
bili. „Já, það er ekkert sérstaklega
hagstætt að keyra milli Reykja-
nesbæjar og Reykjavíkur þrisvar
í viku.“ - fgg
Friðrik Ómar eini við-
skiptavinur Jógvans
HÁRGREIÐSLUMAÐUR Í HEIMSENDINGU
Jógvan mundar sig við að lita hárið á
Friðriki og klippa fyrir landsbyggðarferð
þeirra félaga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN