Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 66
50 8. október 2009 FIMMTUDAGUR
Líney Inga Arnórsdóttir
útskrifaðist í vor frá Miami-
háskóla í Bandaríkjunum
með hæstu einkunn á MA-
prófi í almannatengslum.
Henni hefur verið boðið
starf hjá Ketchum, sem er
annað stærsta almanna-
tengslafyrirtæki heims, en
hertar innflytjendareglur
í Bandaríkjunum gera
henni ómögulegt að starfa
hjá fyrir tækinu þegar
tímabundið landvistarleyfi
hennar rennur út.
„Já, það er búið að herða lögin.
Obama setti nýjar reglur um inn-
flytjendur,“ segir Líney. „Þetta er
samt skiljanlegt þar sem það er
næstum því níu prósenta atvinnu-
leysi hér úti og Bandaríkjamenn
eru að reyna að halda störfum
fyrir ríkisborgara. Eins og er, þá
er ómögulegt fyrir mig að fá leyfi,
en það verður hægt eftir nokkur
ár. Þetta er allt mjög flókið og það
tók lögfræðinga Ketchum nokkra
daga að fara yfir alla pappírana
mína til að komast að niðurstöðu.
Ég var mjög spæld að frétta þetta
þar sem ég hefði viljað hækka í
tign innan fyrirtækisins. En ég
held samt að þetta gæti verið fyrir
bestu. Ég hef búið úti svo lengi og
það er tími til kominn að flytja
aftur til Íslands og reyna að gera
eitthvað gott úr hlutunum þar.“
Tekin fram yfir 700 umsækjendur
Líney hóf starfsþjálfun hjá
Ketchum í New York í vor eftir að
hún og átta aðrir voru valdir úr
hópi 700 umsækjenda. „Þetta varð
í raun tíu vikna keppni um eitt til
tvö störf,“ segir hún. „Fyrstu fimm
vikurnar unnum við í okkar eigin
deildum. Ég var í rannsóknar-
deildinni og skrifaði yfirlit um
allt frá kjarnorkuiðnaðinum yfir
í félags- og fjölmiðlagreiningu
um snyrtivörur. Ég vann fyrir
viðskiptavini eins og IBM, Ikea,
Levis, McDonald‘s, Nokia, PepsiCo
og Sony. Síðustu fimm vikurnar
unnum við lærlingarnir saman að
tillögu að markaðsherferð fyrir
Hertz-bílaleiguna, sem við kynnt-
um á síðasta degi starfsþjálfunar-
innar. Forstjóri Hertz mætti ásamt
forstjóra Ketchum og öllum starfs-
mönnum höfuðstöðvarinnar hér í
New York. Eftir 90 mínútna ræðu
ákvað Hertz að kaupa herferðina
á 300.000 dollara. Það var í fyrsta
skipti sem viðskiptavinur kaupir
herferð af sumarlærlingum. Þegar
ég lýsti þessu fyrir fjölskyldunni
minni spurði pabbi hvort ég væri
nokkuð á vitlausum stað, hvort
ég væri óvart í þáttunum The
Apprentice. Mér leið að minnsta
kosti þannig!“
Það er kreppa í almannatengsla-
bransanum eins og annars staðar.
Ketchum réði því engan af sumar-
lærlingunum í fullt starf, en Lín-
eyju var boðin tímabundin staða
innan fyrirtækisins. „Ég er búin
að vera að vinna þar síðan. Þeir
buðu mér svo varanlega stöðu
fyrir tveimur vikum, þannig að
ég var sú sem fékk starfið eftir þó
nokkra áreynslu!“
Á heimili Russells Simmons
Líney hefur tekið að sér ýmis auka-
verkefni á meðan hún hefur verið
búsett í New York, meðal annars
fyrir útgáfufyrirtækið Condé Nast.
„Ég hjálpaði til við að skipuleggja
ráðstefnu fyrir Condé Nast Travell-
er þar sem öllum helstu fjölmiðlum
er boðið að hlusta á sérfræðinga
flytja fyrirlestra um ýmis mál-
efni. Allir helstu blaðamenn New
York Times og Wall Street Journal
voru þarna. Til að auka spennu hjá
almenningi mættu stjörnur á svæð-
ið og voru talsmenn fyrir góðgerða-
stofnanir. Edward Norton talaði
um reynslu sína með Masaí-stríðs-
mönnum, Wyclef Jean um fátækt
á Haítí og Mandy Moore um börn
í Afríku.“
Þrátt fyrir þétta dagskrá segir
Líney að tími hafi gefist fyrir
skemmtun inni á milli. Hún fór
meðal annars í heimsókn í milla-
hverfið Hamptons í tengslum við
verkefni. Þar endaði hún á fjáröfl-
unarsamkomu heima hjá hiphop-
mógúlnum og milljarðamæringnum
Russell Simmons. „Þeir sem hafa
séð þættina með Russell og Kimoru
Lee Simmons, Life in the Fab Lane,
vita að húsið hans er nánast smíðað
úr gulli,“ segir hún. „En þó að hann
sé þriðji ríkasti maður rappiðnaðar-
ins þá keyrir hann um á grænni
blæju-bjöllu. Ég er líka búin að hitta
aðra; Charlize Theron, stelpurnar
úr The Hills, Gossip Girl, Kate Hud-
son, Gerard Butler og fleiri. Lenny
Kravitz býr líka hérna beint á móti
mér og ég vildi að ég gæti njósnað
um hann, en hann er búinn að setja
þvílík gluggatjöld upp að ljósmynd-
arar ná ekki myndum af honum. Ég
held samt að flestir sem búa hérna
í New York hafi upplifað það sama;
fólk er ekkert að kippa sér upp við
þetta enda eru stjörnur bara eins og
allt annað fólk. Ég hef mun meiri
áhuga á málefnum sem geta bætt
heiminn. Þessi hluti starfsins er
smá plús til að hrista upp í degin-
um!“
Ísland þarf að taka ímyndina
alvarlega
Líney hyggst flytja til Íslands á
næstu mánuðum og reyna fyrir
sér í sínu fagi. „Vonandi eru tæki-
færi fyrir fagmenn þar eins og
annars staðar,“ segir hún. „Ég
er líka búin að vera í viðræðum
við starfmannastjóra Ketchum
í London um að hoppa þangað ef
hlutir ganga ekki upp. Ég vil vinna
aftur hjá Ketchum. Þetta er næst-
stærsta almannatengslafyrirtæki
heims. Það eru endalausir mögu-
leikar þarna. Þetta kann að hljóma
skringilega fyrir þá sem eru fast-
ir á Íslandi í kreppunni, en maður
saknar alltaf landsins. Ég vil taka
þátt í að hjálpa landsmönnum að
snúa ástandinu við. Ég hef mikinn
áhuga á alþjóðasamskiptum, bæði
fyrir ríkistjórn og fyrirtæki. Von-
andi get ég notað þekkinguna mína
í að kynna landið með jákvæðum
hætti. Mér finnst við ekki vera
nógu dugleg í skipulagðri ímyndar-
stjórnun og við þurfum að taka það
alvarlega, sérstaklega í dag.“
atlifannar@frettabladid.is
Flytur heim og gerir gott úr hlutunum
Á HEIMLEIÐ Líney Ingu var boðið starf hjá öðru stærsta almannatengslafyrirtæki heims en hertar innflytjendareglur í Bandaríkjunum gera það að verkum að hún getur ekki
ílengst í starfi þar.
Ingó Veðurguð, Magnús Þór Sig-
mundsson og Fjallabræður eru
á meðal þeirra sem koma fram
á styrktartónleikum fyrir
Rebekku Maríu Jóhannes-
dóttur í Ráðhúskaffi í Þor-
lákshöfn í kvöld klukkan
20.
Rebekka berst nú fyrir
að fá forræði yfir bræðrum
sínum tveimur, sem
eru sjö og tveggja
ára, en þau misstu
föður sinn og
móður með stuttu
millibili.
Hljómsveitirnar Hitakútur og
Sirkuz koma einnig fram ásamt
Jónasi úr Sólstrandargæjunum,
Huldu Gestsdóttur og Sævari
Helga Geirssyni. Kynnir kvölds-
ins verður Magnús Hlynur
Hreiðarsson.
Aðgangseyrir er 2.000 kr
og rennur hann óskiptur til
Rebekku Maríu og bræðra henn-
ar. Forsala verður sama dag
í Ráðhúskaffi og hefst
klukkan 13. Þeim sem
vilja leggja söfnun-
inni lið er bent á
reikningsnúmerið
140-05-070155 og
kennitöluna 160287-
2259.
- afb
Ingó á styrktartónleikum
STYRKIR GOTT MÁL-
EFNI Ingó lætur ekki
sitt eftir liggja.
Matt Groening, skapari Simpsons-
þáttanna, segir að önnur kvikmynd
sé ekki væntanleg á næstunni.
„Það tók okkur átján ár að byrja
á fyrstu myndinni. Svo héldum
við að það tæki tvö ár að fram-
leiða hana, en það tók fjögur ár.
Við vorum mjög pirruð,“ sagði
Groening. „Einhvern tíma gerum
við nýja, en ekki halda niðri í
ykkur andanum.“
Það er sem sagt möguleiki á
nýrri mynd, þó að enginn geti
sagt hvenær hún er væntanleg.
Groening er með góðar útskýring-
ar á því. „Við getum ekki spáð til
um framtíðina vegna þess að við
trúum ekki einu sinni að við séum
ennþá að.“
Simpsons-framhald
ekki væntanlegt
SIMPSONS-FJÖLSKYLDAN Fjölskyldan
gula er ekki væntanleg á hvita tjaldið.
MAGNÚS HLYNUR
Leggur sín lóð lá
vogarskálarnar.
Handritshöf-
undurinn Marc
Vorlander vinn-
ur nú að fram-
haldi á hinni
æðislega lélegu
Showgirls, sem
gladdi drengi á
öllum aldri árið
1995 með slæm-
um söguþræði,
afleitri fléttu
og nóg af beru
holdi.
Showgirls:
Story of Hope
gerist í Þýskalandi. Fatafellan
Hope úr fyrstu myndinni lætur
lífið úr kókaíneitrun og bróðir
hennar er staðráðinn í að hefna
sín á þeim sem olli dauða hennar.
Hvort hann ætli að hefna sín á
kókaíninu sem slíku er með öllu
óljóst.
Rena Riffel snýr aftur sem
Hope í framhaldinu, en hún hefur
undanfarið leikið í myndum á
borð við Trasharella og Dark
Reel. Þá er Trasharella in Space
í framleiðslu. Engum sögum fer
af því hvort aðalleikkonurnar
Gina Gershon og Elizabeth Berkl-
ey snúi aftur sem komplexuðu
strippararnir Kristal og Nomi.
en hlutverkin voru hryðjuverk
við ferilskrár þeirra. Þá hefur
Kyle MacLachlan ekki stokkið
um borð, en hann hefur gert
góða hluti undanfarið í þáttunum
Desperate Housewives. - afb
Showgirls 2?!
ELIZABETH
BERKLEY Eftirminni-
leg sem fatafellan
Nomi í Showgirls.
Sjónvarpsstöðin Spike TV, sem
er sérstaklega ætluð ungum karl-
mönnum, tók sig til og bjó til lista
yfir leikkonur sem þykja hafa
dalað hvað mest í vinsældum síð-
ustu ár.
Fyrsta sætið hreppti banda-
ríska leikkonan Julia Roberts.
Annað sætið vermdi fyrirsætan
fyrrverandi Cameron Diaz og í
þriðja sæti sat Meg Ryan. Leik-
konurnar Teri Hatcher og Nicole
Kidman voru svo í níunda og
tíunda sæti. Það væri gaman að
sjá hvaða karlleikar-
ar kæmust á sam-
bærilegan lista yfir
leikara sem mega
muna fífil sinn
fegurri.
Dalandi vin-
sældir
ALLT Í MÍNUS Stjarna
Cameron Diaz og
Juliu Roberts er á
niðurleið.