Fréttablaðið - 08.10.2009, Qupperneq 67
FIMMTUDAGUR 8. október 2009 51
Grínistinn Russell Brand sagði í
viðtali við The Sun að hann væri
ástfanginn af bandarísku söng-
konunni Katy Perry, en þau hafa
verið að stinga saman nefjum í
nokkrar vikur. Vinur leikarans
segir hann hafa lengi verið hrif-
inn af Perry. „Russell hefur verið
skotinn í Katy í langan tíma og
var eins og lítill skóladrengur
þegar þau fóru að hittast. Hann
telur hana vera hina fullkomnu
kærustu og er tilbúinn að hætta
að hitta aðrar stúlkur,“ sagði
vinur inn.
Samkvæmt heimildarmanni
veit Katy af glaumgosaorðspor-
inu sem fer af Brand en
henni finnst hann
þó svo heill-
andi og fynd-
inn að hún
er tilbúin að
láta reyna á
sambandið.
Brand elskar
Katy Perry
HEILLUÐ Katy Perry
er heilluð af glaum-
gosanum Russell
Brand.
Fyrrverandi eiginkona leikarans
Eddie Cibrian kvartar sáran
undan nýrri kærustu hans, söng-
konunni LeAnn Rimes. Brandi
Glanville segir Rimes hafa sýnt
mikið tillitsleysi þegar hún flutti
í hverfið sem Glanville býr í
ásamt börnum sínum og Cibrian,
en hjónaband þeirra fór í súginn
eftir að upp komst um framhjá-
hald Cibrians og Rimes.
„LeAnn Rimes flutti í næstu
götu við mig og börnin. Hún er
komin inn á mitt svæði og mér
finnst það mjög óþægilegt. Mér
finnst að hún hefði getað sýnt
smá tillitssemi og
haldið sig fjarri
mér og börnun-
um. Það er eins
og hún þrái líf
mitt. Hún vill
börnin. Hún
vill manninn
minn. Hún má
fá manninn en
hún fær ekki
börnin mín,“
sagði Glan-
ville í nýlegu
blaðaviðtali.
LeAnn flutt
í hverfið
NÝR
NÁGRANNI
Fyrrverandi
eiginkona
Eddie Cibri-
an vill LeAnn
Rimes burt úr
hverfinu.
Fyrrverandi eiginmaður grínist-
ans Matt Lucas fannst látinn á
heimili sínu í fyrradag og telur
lögreglan að um sjálfsmorð hafi
verið að ræða. Lucas, sem skaust
á stjörnuhimininn í kjölfar gaman-
þáttanna Little Britain, er sagður
miður sín vegna fréttanna.
Lucas og Kevin McGee létu
pússa sig saman árið 2006. Þeir
skildu fyrir ári vegna erfiðleika í
sambandinu, en McGee stríddi við
eiturlyfjafíkn.
Hinn 32 ára gamli McGee hafði
skrifað á fésbókarsíðu sína stuttu
áður en hann fannst látinn á heim-
ili sínu að honum þætti dauðinn
ákjósanlegri en lífið.
„Kevin átti erfitt með að takast á
við frægðarsól Matts og hann sökk
dýpra í eiturlyfjaneyslu. Matt er
aftur á móti mjög jarðbundinn og
hefur aldrei snert eiturlyf. Brest-
ir komu í sambandið í kjölfarið því
Matt gat einfaldlega ekki sætt sig
við þetta,“ sagði sameiginlegur
vinur þeirra tveggja.
Matt Lucas í sárum
MIÐUR SÍN Matt Lucas, til hægri, er
miður sín yfir fréttum um andlát Kevins
McGee. NORDICPHOTOS/GETTY
Á föstudaginn, sem hefði orðið 69 ára afmælisdagur
Johns Lennon, verður Friðarsúlan í Viðey tendruð í
þriðja sinn. Yoko Ono kemur enn og aftur til lands-
ins og býður ókeypis ferðir til Viðeyjar á föstudag-
inn og um næstu helgi. Einnig býður hún á tónleika
til heiðurs John Lennon í Listasafni Reykjavíkur
– Hafnarhúsi sem hefjast kl. 22 á föstudagskvöld.
Dagskráin hefst hins vegar klukkan 20, þegar sýnt
verður beint frá tendrun Friðarsúlunnar. Því næst
verður sýnd myndin The Bed-In, um friðarbaráttu
þeirra hjóna, og svo sýndar stiklur úr væntanlegri
heimildarmynd Ara Alexanders Ergis um tilurð
Friðarsúlunnar, Imagine Peace Tower.
Íslenska stórskotaliðið tekur þátt í minningartón-
leikunum. Þarna munu söngvarar eins og Krummi,
KK, Egill Ólafsson, Páll Rósinkranz og Björg-
vin Halldórsson syngja lög úr söngbók Lennons,
bæði Bítlalög og sólóefni. Yoko og Sean Lennon
verða á svæðinu, svo Bítlaaðdáendur ættu ekki
að missa af þessu kvöldi. Nú er bara að vona að
fleiri hörmungar dynji ekki yfir þjóðina samfara
Friðarsúlutendruninni, því fyrst logaði borgarstjórn
og svo hrundi fjármálakerfið. Varla er þó við Yoko
að sakast og hún hvetur fólk til að koma við í Naust-
inu í Viðey og skrifa á óskatré sitt. - drg
Lennon-veisla í boði Yoko Ono
FRIÐARSÚLUÁFORMIN KYNNT 2006 Yoko, Sean, Stefán og
Alfreð kynna Viðeyjarverkefni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR