Fréttablaðið - 08.10.2009, Side 69
FIMMTUDAGUR 8. október 2009 53
„Mig hefur langað til að gera þetta
í langan tíma og fæ kjörið tæki-
færi til að kýla á þetta,“, segir upp-
tökustjórinn og lagahöfundurinn
Örlygur Smári.
Örlygur lætur gamlan draum
rætast annað kvöld þegar hann
verður plötusnúður á 90‘s-kvöldi
á skemmtistaðnum Spot. Hann
hefur hingað til verið þekktari
fyrir gæfuríkt samstarf þeirra
poppkóngsins Páls Óskars ásamt
því að hafa tvisvar samið framlag
Íslands í Eurovision.
„Ég hef aldrei unnið sem
plötusnúður, en ég var í þessum
bransa,“ segir Örlygur, spurður
hvort hann ætli að rifja upp gamla
takta. „Ég var í hljómsveit í gamla
daga og spilaði á böllum. Þá sá ég
um tónlistina í pásunni. Þannig að
maður ætti að vita hvað fólkið vill
heyra.“
Plötusnúðsferillinn náði aldrei
svo langt að Örlygur fengi DJ-
nafn. Undirritaður stingur upp á
DJ Smári, en hann býst ekki við
að nota það. „Nei, ætli það?“ segir
hann og hlær.
Spurður um framhaldið segir
Örlygur að það sé aldrei að vita
hvort plötusnúðsferillinn verði far-
sæll. „Ég ætla að sjá hvernig þetta
gengur og þróast,“ segir hann. „Ég
er mikið að vinna dansmúsik. Það
er gaman að sitja ekki bara heima
í stúdíóinu og búa þetta til heldur
spila þetta líka.“
Haffi Haff og Anna Hlín koma
einnig fram á 90s-kvöldinu sem
dúettinn A.K.A og þá mun Valli
Sport einnig þeyta skífum. - afb
Örlygur Smári gerist plötusnúður
DJ SMÁRI? Örlygur Smári stígur á svið
sem plötusnúður á föstudaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STE´FAN
Fréttir af meintum sambands-
slitum söngvarans Justins
Timberlake og leikkonunnar Jess-
icu Biel virðast lífseigar. Nýjustu
fregnir herma að Biel eigi erfitt
með að einbeita sér að vinnu þessa
dagana, en hún er í Vancouver við
tökur á kvikmyndinni A-Team. Á
meðan Biel sást döpur og þreytt á
matsölustað í Vancouver skemmti
Timberlake sér í góðra vina hópi í
Los Angeles.
Haft var eftir ömmu söngvarans
í viðtali við Cover að fjölskyldan
liti á Timberlake sem einhleypan
mann. „Jessica vill gifta sig en
Justin finnst hann ekki tilbúinn
að festa ráð sitt. Hann er of upp-
tekinn við að sinna tónlistinni og
vinnur hörðum höndum að því að
halda sér á toppnum. Hvað okkur
varðar, þá finnst okkur
hann alltaf hafa verið
einhleypur. Kærust-
urnar koma og fara
og samböndin hafa
ekki verið alvar-
leg. Justin fer
sínar eigin leið-
ir og hann er
ekki tilbúinn
að kvænast,“
sagði amman um
barnabarn sitt.
Biel döpur
og þreytt
EINHLEYPUR
Amma Timber-
lakes lítur á hann
sem einhleypan
mann.
Fjórða ævisaga glamúrfyrirsæt-
unnar Katie Price er nú í burðar-
liðnum en breskar bókaútgáfur
hafa lýst því yfir að þær hafi
ekki áhuga á að gefa bókina
út. Þetta er fjórða ævisaga
Price á fimm árum og í
þeirri nýjustu mun hún
fjalla um skilnað sinn við
Peter Andre.
„Bóksalar vilja ekki
ergja viðskiptavini sína
með því að taka inn enn
eina ævisöguna eftir
Price, sem hefur nú þegar
skrifað og gefið út þrjár
slíkar á síðustu fimm
árum. Svo virðist sem Price ætli
sér að mjólka aðdáendur sína
og hafa af þeim hvern ein-
asta eyri,“ sagði starfsmaður
bókaútgáfunnar Random
House í viðtali við The Sun.
Síðasta bók Price, Pushed to
the Limit, kom út í febrú-
ar á þessu ári.
Ævisaga Peter Andre,
fyrrverandi eiginmanns
Katie Price, er væntan-
leg í hillur breskra bóka-
verslana fyrir jólin.
Katie Price skrifar
fjórðu ævisöguna
SAGAN ÖLL? Katie Price hyggst
skrifa fjórðu ævisöguna á fimm
árum.
Brad Pitt segist ekki hafa orku
til að fara út að skemmta sér nú
þegar hann er sex barna faðir.
Þess í stað býður hann vinum
sínum heim til sín þegar hann
hefur þörf fyrir félagsskap.
Samkvæmt heimildum hefur
Pitt útbúið sérstakt „leikherbergi“
fyrir sig og vini sína og hefur ekk-
ert verið til sparað. Pitt og sam-
býliskona hans, Angelina Jolie,
eiga þrjú heimili og er „leikher-
bergi“ í hverju þeirra. Í herbergj-
unum má meðal annars líta stóran
bjórkæli og mótorhjól af ýmsum
gerðum. Herbergið í New Orleans
er ríkmannlegast. Þar geymir Pitt
gömul Harley-Davidson-mótor-
hjól og einstakt safn gamalla vínyl-
platna með rokktónlist.
Leikherbergi
Brads Pitt
UNGT OG LEIKUR SÉR Brad Pitt er of
þreyttur til að fara út að skemmta sér og
býður vinum sínum þess í stað heim.
NORDICPHOTOS/GETTY
Aðeins 8.-18. október
Opið 12 - 18 alla daga
Dúndur
útsölumarkaður Skeifunni 17
Buxur 2.500,-
Jakkar 5.000,-
Bolir 1.500,-
Toppar 1.500,-
Fylgihlutir 500,-
Kjólar 3.000,-
Peysur 2.000,-
Jólapappírog jólakort áklink!