Draupnir - 01.05.1908, Page 11
DRAUPNIR.
847
»Oss mun nú samt úr þessu eklci verða
til setunnar boðið«, mælli biskup fyrir munni
sér og var nokkurn veginn rólegur. Svo vék
hann að öðru.
Þó að þessi nýung kæmi svo að segja
yíir biskup sem þruma úr heiðskíru lofli,
voru þó trúarbragðahorfurnar engan veginn
svo glæsilegar, að hann hefði ekki mátt bú-
ast við þessu. Því að bæði liafði Ögmundur
biskup í síðustu utanferð sinni kynt sér
rækilega trúarástandið og frætt stéttarbróður
sinn um það, og svo höfðu honum borist
ýmsar fréttir, sem staðfestu þetta.
Vetur þessi, er í hönd fór, byrjaði og
endaði á vanalegan hátt. Frost og fannir,
sólbráð og lilýviðri, stormar og rigningar
skiftust sí og æ á í fulla 7 mánuði. En þó
að náttúran væri mislynd að vanda, var
heimilislífið á Hólum það ekki. Þar ríkti
friður og eindrægni, gleði og glaumur. Börn
biskups voru nú í námunda hvert við annað
að heita mátti, og brugðu sér oft, þó vetur
væri, öll saman heim á æskuheimili sitt.
Préttir fi’á Danmörku og Noregi bárust ná-
^ega engar um veturinn; en nú, er farið var
að vora, fóru menn að vænta eftir skipaferð-
um og fréttum, en engan veginn æskilegum
fréttum eftir ástæðum að dæma.