Draupnir - 01.05.1908, Page 28
864
DRAUPNIK
til að fá samþykki hans til vígslunnar. Hon-
um fanst sér liggja ekki svo mikið á, þar
eð hann ætlaði sér að hafa vetrarsetu í Kaup-
mannahöfn, og ætlaði svo að halda heim
með vorinu eða fyrir alþingi.
Gisli prestur Jónsson, er ætlaði með
honum í utanförina, hindraðist frá þvi, en
hélt svo nokkru síðar á fund hans til Ham-
borgar, og féklc ótrúlega skjóta ferð, eftir
þvi sem þá tíðkaðist. Hann hafði dvalið
á Þingvelli um þingtímann, og gat því sagt
Gissuri, hvað þar hefði gerst. Sérstaklega
það, að Diðrik von Mynden var gerður sek-
ur fyrir aðtektir sínar í Viðej7 o. fl., og að
l)úið væri að lirekja þaðan alia danska menn
og setja þar aftur klaustur og klausturregl-
ur undir stjórn hins fyrri ábóta, Alexíusar.
Enn fremur, að Diðrik hefði eftir þessi
málalok sezt að á Bessa-stöðum með lið sitt,
og hefði lagt þaðan aí' slað austur til að
leggja undir sig bæði klaustrin þar, Kirkju-
bæjar- og Þykkvabæjar-klaustur; en liefði
sjálfur ekki farið nema austur yfir Ölfusá,
en lialdið þaðan heim í Skálhoit með nokkra
menn á fund Ögmundar biskups, en hinir
liafi haldið áfram og átt að bíða lians í Odda.
Svo 'þagnaði prestur og sagði eftir slutta
yfirvegun:
»Nú slcal eg fara fljótt yfir söguna. í