Draupnir - 01.05.1908, Page 53
DRAUPOTR
889
liolti skömnni áður en hann lagði af stað,
og átti hún að sitja þar í festum um vetur-
inn. Hún hafði að sönnu heyrt margt um
n57ja siðinn í suðurstiftinu — margt óvið-
feldið og henni andslætt, — en þar eð forni
siðurinn hélzt óbreyttur í norðurstiftinu, þar
sem hún dvaldi að langvistum, bárust lienni
ekki svo greinilegar sögur um hluttölcu Giss-
urar í nýbreytninni, eða um föngun Ög-
mundar biskups, sem nú var dáinn, að hún
þyrði að trúa þeim. Hún þóttist vita, að
hann yrði undir þáverandi ástandi eða kring-
umstæðum, að haga sér viturlega og fara
varlega með vald silt. Þær systur fengu
greinilegar fregnir frá ættingjum sínum í
Noregi um aðfarir konungs við klerka- og
biskupalýðinn þar. Föngun Ögmundar bisk-
ups var því aigerlega í samræmi við tíðar-
andann og það sem átti sér stað í öðrum
löndum, svo liún bjóst alls ekki við öðru,
en að Gissur j7rði að sætta sig við það ó-
umtlýjanlega, og þau bæði, en hún var samt
efablandin.
Gissur biskup var að búa sig til ulan-
fararinnar, og höfðu þau því nauman tíma
til að tala saman«.
»Eg hélt«, sagði hann, »að þú kæmir
fyrri, min ástkæra! og við liefðum lengri