Draupnir - 01.05.1908, Page 88
924
DRAUPNIR
Þeir kváðu allir já við því og hrópuðu:
Kathólska trúin lifi!
»Nú sjáið þér, að í hinum tíu iagaboð-
orðum hljóðar eitt þeirra upp á, að ekki
megi drýgja liórdóm. En Daði Guðmunds-
son í Snóksdal, prófastur, s57slumaður og
bóndi, — stórauðugur maður, sem fékk mikið
herfang, þá er Gissur — sællar minningar —
afnumdi klaustrið að Helgafelli, og hefir þar
að auki dregið undir sig ógrynni auðæfa og
arfa af lítilsigldum mönnum og konum, sem
mist hafa forstöðu sína. Þessi maður held-
ur tvær hjákonur, aðra á Sauðafelli en liina
í Snóksdal. Og með annari þeirra, s'em er
systkinabarn við hann, hefir liann getið 4
eða 5 börn í lxórdómi, því Guðrún Einars-
dóttir — systir hins nýkjörna biskups, Mar-
teins, — er enn þá lifandi. Síðan héfir hann
með auðmagni sínu keypt kvittunarbréf af
hirðstjóranum, Ögmundi biskupi og Gissuri
biskupi. Það var eilt af hans síðustu em-
bættisverkum« — sagði biskup og hló — »að
staðfesta hina fyrri gerninga. Meðan Daði
lieldur sínum fyrra lifnaði áfram. Fyrir
þessa greiða, vernd og varðveizlu hefir svo
Daði heitið Skállioltskirkju eilifri hollustu.
Svo hefi eg engan mann dýru verði keypt í
mínu stifti!« — Biskup hló kuldahlátur og
hélt svo áfram. »Og nú vill þessi sami Daði