Draupnir - 01.05.1908, Page 101
DRAUPNIR
937
Staðarhól í Saurbæ, hann hefir lengi verið
nokkurskonar óskilafé, og er stundum sagð-
ur vera bóndaeign, eins og hann er, en líka
stundum kirkjueign eins og núna, fyrir að-
gerðir Ögmundar biskups, en jörðin hefir
verið í eign nánustu ættingja Steinunnar
minnar og er henni ánöfnuð. Eg ætla mér
að taka jörðina og hafa þar aukabú«.
Biskup brosti, og sagði við Ara son sinn:
»En livað ætlar þú að taka þér fyrir
höndur, þvi það er mælt, að þegar herskáir
tímar eru, þá geti jafnvel þeir meinlausustu
orðið framtakssamir«.
»Ekki er því að leyna faðir«, sagði Ari,
»að heitastan hef eg huginn til Þorleifs gamla
Pálssonar i Skarði, liann liefir um hríð setið
í minu lögmannssæti og litlu góðu að oss
vikið. Nú hefir hann sagt af sér, en hann
rær nú að því öllum árum að fá Daða í
Snóksdal kosinn fyrir lögmann í sinn stað —
Daða sem nú er að sölsa undir sig Sauða-
fellið sem mér er inarg veðsett«. Biskup brosti
og sagði:
»Taktu hann þá fanginn frændi, því
kosningu Daða skal hann aldrei fá framgengt!
— Við Porleifur gamli skulum fá okkur marg-
an góðan taflleik er hann er kominn liingað
— hann er afburða taflmaður — hérna hefir
þú fyrirliða fararinnar!« og biskup benti mein-