Draupnir - 01.05.1908, Page 105
DRAUFNIN.
941
»Þetta fór alt saman vel, séra Þorlákur
minn, — alt saman vel! — Eg kann þér
þakkir fyrir förina. Þessi för er fyrirboði
miklu stærri lierferða«.
»í nafni guðs og sankti Maríu, gefið mér
frí frá þeirri för, herra«, mælti prestur.
»Þessa bæn skal eg fúslega veita þér«,
mælti biskup kýmileitur, »því eg hefi hugað
þér alt annað verkefni, sem þú ert hæfari
fyrir en herferðir. Við skulum ganga upp
að kirkju og sjá virki það, sem eg er að
láta gera«, Svo gengu þeir þangað.
Prestur leit á smíðið og mælti: »Til
hvers skulu göng þessi, önnur í kirkju en
hin út?«
»Þau tákna það, sem þau benda á«,
sagði biskup. »Eftir því, ef ófrið ber að
höndum, hvort maður á vopnaviðskifti við
menn kristna eða djöfla. í fyrra tilfellinu
fer maður út með leynd, en í hinu síðara
leitar maður sér friðar inn í guðs hús«.
»Já, þannig er þessu háttað«, sagði
prestur.
í þessu bili var biskupi fært bréf að
norðan. Biskup las það í ílýti og brá svo
við það, að hann hvarf lieim frá virkinu og
setti prest fyrir byggingarmeistara.
»Ólafur prestur Hjaltason er orðinn sann-
ar að sök um trúmálin«, sagði biskup við