Draupnir - 01.05.1908, Page 106
942
DEADPOTR
Ara son sinn, er var þar gestlcomandi. »Skyldi
hann nú fá nokkurn mann til að bera sig
undan sökum, eftir þær staðliæfingar, sem í
bréfi þessu standa?« Hann rétti það að
Ara, sem kvað ósennilegt að hann gæti það.
»En hvernig ætlarðu að snúa þér í þessu
máli?«
»Auðvitað ætla eg mér að dæma þann
hræsnara frá prestskap«, svaraði biskup reið-
ur mjög. »En eg get ekki snúið mér að
honum að sinni, af þvi að um Mikjálsmessu
í haust ætlum vér að ríða með lióp manna
vestur í Dali á fund Daða Guðmundssonar í
Snóksdal, og stefna honum fyrir 12 presta
dóm að Hvammi í Hvammssveit, til þess að
svara þar fyrir sjö stórsakir, er vér berum á
hann, og eru óbættar sakir, af því að það,
sem Gissur biskup og umboðsmaður konungs
liafa kvittað hann um fyrir mútugjafir, það
höfum vér að engu. Hin heilaga kathólska
kirkja hefir aldrei látið hórsakir og — blóð-
sk'ammir óátaldar, og vér ætlum oss ekki
heldur að gera það. Á meðan á þessu ferða-
lagi voru stendur, verður gamli refurinn í
Laufási« — biskup stundi við — »að hvíla
í greni sínu«.
Um Mikjálsmessu reið biskup að heiman
og synir liáns með mikið íjölmenni vestur í