Draupnir - 01.05.1908, Síða 108
944
DRAUPNIR
með Ingveldi Árnadóttur, náfrænku sinni,
og hann hefði bæði verið ámintur og lofað
að skilja við hana, en sé þrem sinnum þó
eftir það bæði heitrofi og skriftrofl; fyrir
þetta var hann dæmdur útlægur, skyldur til
að skilja við þá konu og taka lausn af bisk-
upi sjálfum. í fjórða máta að Daði liefði
verið hermannaflokksforingi í Skálholti, og
hindrað þar með biskup og hans kennimenn
frá að gera á almennri prestastefnu guðs
embætti í kirkjunni, vígja hana, leysa bann-
færða menn o. s. írv. í fimta máta hefði
Daði þrifið bréf með hendi og innsigli
Jóns biskups, iir hendi Ólafs prests í kirkju-
garðinum í Hvammi og rifið í sundur, en
það bréf liefði til heyrt páfans valdi, o. s.
l'rv. I sjötta máta héldi liann ranglega tveim
hundruðum eða meira, sem til heyrði Skál-
holtskirkju. Var dæmt, að það skyldi skoð-
ast á almennilegri prestastefnu í Skálholts-
biskupsdæmi, fyrir dómi Jóns biskups, en
um jörðina Hvamm í Hvammssveit, og þær
jarðir, sem biskup kærði að Daði hefði und-
ir sig dregið, kom fram prestadómur Skál-
holtsbiskupsdæmis, að Jón biskup skyldi
halda Hvammi til laga. Var sá dómur
dæmdur myndugur í öllum greinum o. s. frv.
Hið sjöunda kærði biskup til Daða, að hann
liefði haldið jörð sinni, Skarfsstöðum, með