Draupnir - 01.05.1908, Page 109
DRAUPNIB.
945
9 málnytu-kúgildum um 9 ár eða lengur í
óleyfi sínu. Var það dæmt, að Daði skyldi
sýna lagakaup fyrir þeirri jörð o. s. frv.
ella borga biskupi jörðina og kúgildin aftur
með landsskuld og lagavöxtum, og 60 merk-
ur í fullrétti Iians. Svona hljóðuðu nú sak-
argiftirnar og eru þær hvorki fáar né smáar,
og er þó mörgu slept, einkum persónulegum
viðskiftum þeirra biskups og Daða, þar sem
fjárupptektir á búum Daða eru nefndar o. fl.
En þessi slcýringargrein er nauðsynleg, svo
menn líti ekki einhliða á málefnin.
Daði rnætti ekki, en ritaði Kristjáni
skrifara, sem þá var umboðsmaðnr hirðstjóra,
klagaði þetta fyrir honum, þennan prestadóm,
og bað hann um að koma sér til hjálpar,
eða láta Erlend Þorvarðarson lögmann og
hina vitrustu lögréttumenn og höfðingja ó-
njda dóminn, eða þó að minsta kosti að
senda sér verndarbréf. En Kristján lét sér
oægja, að vísa honum til Orms Sturlusonar
— er þá var orðinn lögmaður — með því
að þetta heyrði undir hans lögdæmi.
Eftir að þeir biskup komu heim úr för
þessari, sat hann heima um hríð, en var
samt engan veginn ánægður yfir ferðinni, þar
sem hann fann ekki Daða og kom þess
Vegoa engum lögum yfir hann, hvorki sjálfs