Draupnir - 01.05.1908, Page 141
DRAUPNIN.
977
og klaustrið, sem var orðið mikið breytt,
bæði að luísaskipun og öðru því er fyr hafði
verið. Og að þessu gerðu, setti hann aftur
Alexíus, íyrrum ábóta aftur fyrir klaustrið.
Þaðan reið biskup um Kjalarnesið og
Borgarfjörðinn og framdi þar sjálfur — þó hann
hefði nóga presta með í förinni — messnr
og biskupanir svo nefndar. Svo riðu þeir
vestur yfir Hvítá og útsveitir, og taldi biskup
hvívetna þar sem hann kom trú fyrir mönn-
um. Á ferð þessari bentu sveinar biskups
lionum á bæ einn reisulegan, og spurðu hvert
biskup vissi hver þar byggi.
»Vist veit eg það, piltar minir«, svaraði
liann. »Þetta eru Kolbeinsstaðir í Kolbeins-
staðahrepp, og býr þar Brandur Einarsson,
mágur Daða í Snóksdat og bróðir Marteins
biskups, og hann hefir aldrei gert neitt á hluta
vorn«.
»Er samt ekki gaman að vér heilsum
upp á hann. — Vér gerum það —«.
Biskup lét það svo vera, og flokkurinn
reið heim. Sveinarnir spurðu eftir Brandi og
kváðu maklegt að hann fengi eitthvað ílt, en
þeir er við garðlileðslu voru heima sögðu þeim
nð Brandur væri ekki heima, og hið sama
sagði kona hans biskupi, og bað þeim þó
vægðar; en sá er flutti lieim torfið og hinn
sem hlóð vegginn fengu svo tilstilt, að inenn