Draupnir - 01.05.1908, Page 166
1002
DRAUPNIK.
ast og fyrirlíta þá kenningu, sein gagnstæð
er hinu guðlega orði, heldur einnig að eg
berjist karlmannlega á móti lienni og úthelli
fyr blóði mínu, en að eg aðhyllist rangar og
ofstækisfullar kenningar.
í fjórða lagi skal eg kappsamlega lesa
hin heilögu rit og rækja þau og það sem
þeim er jafnstætt, hinar truarlegu greinar með
kostgæfni, eg skal eigi láta það viðgangast,
að nokkur dagur líði svo, að eigi verji eg
einhverri stund hans til lesturs heilagrar ritn-
ingar, nema því að eins að lieilsa eða óhjá-
kvæmilegar hindranir banni.
í fimta lagi skal eg lifa því lífi, sem
samboðið er þjóni liins guðlega orðs, og
kosta kapps um það, að [Ijóma fyrir heyr-
endunum með lofsverðri guðhræðslu og ráð-
vendnis og heilagleika dæmi, svo að bæði
verði það guði til dýrðar og að eg á síðan,
er eg hefi lokið verki mínu, verði slcrýdduv
þessari heilögu og lotningarverðu vigslu með
réttu.
í sjötta og síðasta lagi tek eg upp
og lofa því heilaglega, fyrir utan liina skyld-
ugu hlýðni við veraldlega valdsmenn, að eg
vil sýna alla lej'filega tilhliðrunarsemi við
páfann og erkibiskup, og fremja skipanir
þeirra með hinu mesta jafnaðargeði, og hegða
mér svo meðal embættisbræðranna og bræðr-