Iðnneminn


Iðnneminn - 01.09.1949, Side 32

Iðnneminn - 01.09.1949, Side 32
Gleriðnaðurinn í Bandaríkjunum £fnr joL 3. W. anon hagkvæmari, þegar til dreifing- arinnar kemur. En þegar flytja á riðstraumsorku mörg hundruð km. koma fram örðugleikar vegna riðstraumsöldunnar, svo að mikill spennu- og straum- munur getur orðið á ýmsum út- taksstöðum á langri línu. Hafa því verið ræddir möguleikarnir á að sameina kosti beggja þess- ara aðferða og ná með því nýju stigi í þróuninni. Svíar eru nú m. a. forgöngumenn í tilraun- um, bæði með háspenntar rið- straumslínur upp í 400 og 500 kV. svo og með rakstraums-sæ- strengi. Er trúlegt, að takast megi að veita hinu mikla vatns- afli úr norðurhluta Sviþjóðar til suðurhluta landsins, yfir um lOOOkm. langan veg, og frá Nor- egi til Danmerkur eða Englands sjóleiðis. Gæti þá að því komið síðar á þessari öld, að rætt yrði al- varlega um það, sem leikmenn spyrja oft um, hvort ekki megi veita raforkunni á íslandi til útlanda gegnum háspennta sæ- strengi. Það má telja víst, að þetta verði tæknilega fram- kvæmanlegt innan nokkurra áratuga, en þá er hitt jafn víst, að hagnýting vatnsaflsins í iðjuverum eða öðrum atvinnu- rekstri, eða í framtíðarheimil- um hér á landi veitir miklu meiri atvinnumöguleika í land- inu og betri lífsskilyrði, en með því að flytja orkuna út, sem kalla mætti óunnið hráefni í þessu sambandi. Þótt ekki sé enn komið lengra en svo, að eygja megi 3% er hagnýtt verða af vatnsaflinu innan fárra ára, (Úr Commercial America). Saga glersins er svo nátengd sögu mannsins sjálfs, að segja má að saga þess og saga mann- legra framfara hafi haldist í hendur. Glergerð í hinum ná- lægari austurlöndum og Evrópu, svo og í Indlandi, Persíu og Kína, átti mikla sigra í vænd- um er hinir fyrstu fullhugar undu segl að hún og stefndu til Ameríku. Mönnum verður tíð- rætt um hina frægu ævintýra- menn, sem voru í för með hin- um fyrstu landnemum, en fáir hafa heyrt getið hinna átta hollenzku og pólsku glergerðar- manna, sem stigu á land við Jamestown í Virginia árið 1608. Varningur frá þeim var meðal hins fyrsta, sem flutt var frá Ameríku árið 1609. í glergerðarsögu Ameríku ber þrjú nöfn mjög hátt — Caspar Wistar, Stiegel og Boston and má þó segja, að mjór sé mikils vísir og vonandi er, að vöxtur- inn verði áfram jafn og stöð- ugur, þar á eftir, því skilyrðin eru að ýmsu leyti hagkvæm. Ætti því að verða okkur keppi- kefli að stuðla að því, að vatns- aflið yrði hagnýtt sem bezt og í sem stærstum stíl í landinu sjálfu. Sandwich Glass Company. Þess- ir aðilar áttu mestan þátt í við- gangi þessa inðnaðar í Banda- ríkjunum fyrstu ár hans. Wistar stofnaði glergerð þar sem nú heitir Salemhérað i Norður- Carolina, árið 1727 og réði þang- að glergerðarmenn frá Belgíu. Sú stofnun var við lýði þangað til 1782 og stjórnaði Wistar henni sjálfur og sonur hans. Ár- ið 1764 hóf Stiegel starfrækslu sína og framleiddi í Manheim í Pennsylvaníu muni, sem safnar- ar vorra daga hafa mætur á. Á 19. öld var Boston and Sandwich Glass Company stofnað og var það starfrækt 1825—1887. Mikið af sjaldgæfum glervarningi, s. s. fögrum lömpum og ölglösum, sem raðað var á hverja búrhyllu á síðari hluta Viktoríutímabils- ins, komu frá þessu félagi. Corning-glerverksmiðj urnar, helztu glerverksmiðjur Banda- ríkjanna á vorum dögum, urðu til með nokkuð kynlegum hætti. Amory Houghton, stofnandi þeirra, hóf starfsemi sína í Massachusetts árið 1851, en fluttist síðar til Brooklyn í New York-fylki. Árið 1868 brunnu verksmiðjurnar og Houghton flutti þær aftur. Hann valdi þeim nú stað í Corning í New York-fylki, en þar í sveit höfðu menn aðallega stundað viðar- 26 IÐNNEMINN

x

Iðnneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.