Fréttablaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 2
2 17. október 2009 LAUGARDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL „Ég hef aldrei
kynnst öðru eins ástandi,“ segir
Dagrún Ársælsdóttir, leikskóla-
stjóri í leikskólanum Vinagerði í
Reykjavík.
Svínaflensan hefur herjað á
börn og starfsmenn í leikskólan-
um svo um munar. Í honum eru 62
börn og í gær mættu 18 börn. Þá
voru fimm starfsmenn af fimmt-
án veikir.
„Það eru tvær flensur í gangi,“
segir Dagrún enn fremur. „Það
er haustflensan og svínaflensan.
Þetta er rosalega smitandi. Maður
hefur ekki kynnst því á þrjátíu ára
ferli að þetta gangi svona jafnt yfir
skólann. Stundum hefur megnið
af yngstu börnunum veikst en nú
er þetta allur leikskólinn. Á elstu
deildinni er 31 barn en í dag eru
fjögur þeirra mætt.“
Dagrún segir svínaflensu hafa
verið staðfesta bæði í hópi barna
og starfsmanna. Brýnt sé að for-
eldrar fari ekki of snemma af stað
með börnin eftir veikindin. Þá sé
hætta á að þau fái lungnabólgu.
„Veikindin hafa varað í um það
bil viku, svo ég vona nú að börnin
fari að skila sér,“ segir Dagrún.
„Það er hundleiðinlegt að vera í
barnlausum leikskóla.“
Ólöf Ingimundardóttir, aðstoð-
arskólastjóri í Fellaskóla, segir
ástandið í skólanum nokkuð gott.
Örfáir nemendur hafi greinst með
svínaflensu en þar sé enginn far-
aldur enn sem komið sé.
Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir,
aðstoðarskólastjóri í Hamraskóla,
segir að fella hafi þurft niður
kennslu í efri bekkjum skólans
vegna veikinda kennara.
„Við látum litlu börnin að sjálf-
sögðu ganga fyrir,“ segir hún.
Á heimasíðu skólans segir að
mikil veikindi séu meðal nemenda
og starfsmanna hans um þessar
mundir. Nokkuð hafi borið á því
að foreldrar hafi ekki náð sam-
bandi við skrifstofu skólans til að
tilkynna forföll, vegna álags á sím-
kerfið. Útlit sé fyrir að halda þurfi
áfram að fella niður kennslu í efri
bekkjunum um sinn.
Í tilkynningu sem menntamála-
ráðuneytið sendi frá sér í gær
segir að nemendur í framhalds-
skólum þurfi tímabundið ekki að
skila veikindavottorðum. Sótt-
varnalæknir höfuðborgarsvæðis-
ins beinir þeim tilmælum til Sam-
taka atvinnulífsins að vegna álags
á heilsugæslustöðvar séu atvinnu-
rekendur beðnir um að leita ann-
arra leiða til að staðfesta veikindi.
jss@frettabladid.is
VINAGERÐI Fimm starfsmenn af fimmtán voru veikir í leikskólanum Vinagerði í gær.
Hef aldrei kynnst
öðru eins ástandi
Svínaflensan kemur misjafnlega hart niður í leikskólum og grunnskólum í
borginni. Í leikskólanum Vinagerði í Reykjavík vantaði 44 börn. Í Hamraskóla
hefur orðið að fella niður kennslu í eldri bekkjum vegna veikinda starfsmanna.
LÖGREGLUMÁL Grunur lögreglunn-
ar á Suðurnesjum um að litháíska
konan sem kom til landsins um síð-
ustu helgi sé fórnarlamb mansals
hefur styrkst, að sögn Öldu Hrann-
ar Jóhannsdóttur, staðgengils lög-
reglustjórans á Suðurnesjum.
Þrír karlmenn sem handteknir
voru í tengslum við komu konunnar
hingað til lands skulu sæta áfram-
haldandi gæsluvarðhaldi til næsta
miðvikudags, samkvæmt úrskurði
Héraðsdóms Reykjaness í gær.
Lögreglan ræddi við konuna í
gær. Í ljós hefur komið að hún heit-
ir öðru nafni en hún gaf upp við
komuna hingað til lands. Jafnframt
að hún var með fölsuð skilríki. Hún
telur sig hafa komið hingað til að
vinna við eitthvað sem landar
hennar hafi verið búnir að útvega
henni. Þeir hafi ætlað að taka á
móti henni í flugstöðinni. Sam-
kvæmt upplýsingum Fréttablaðs-
ins virðist konan ekki hafa hug-
mynd um hvað hún átti að starfa
við hér á landi.
Rannsókn lögreglunnar beinist
meðal annars að því að upplýsa
hver konan er auk mansalsþáttar-
ins. Sjálf kveðst hún vera frá Lithá-
en. Henni hefur verið komið fyrir
í góðu og öruggu húsnæði að sögn
Gunnars Schram, yfirlögreglu-
þjóns á Suðurnesjum.
Lögregla telur fullvíst að fjórði
maðurinn sem talinn er tengjast
málinu, Vitalius Gejer, hafi farið
af landi brott í síðustu viku. - jss
RANGT NAFN Konan heitir ekki því nafni
sem var á skilríkjum hennar. Þau eru
fölsuð.
Þrír karlmenn úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald:
Grunur lögreglu um mansal styrkist
Sjúklingum með svínaflensu
fjölgar á hverjum degi á Landspít-
alanum. Alls 25 einstaklingar lágu
inni í gær, þar af fjórir á gjörgæslu.
Í fyrradag voru sjúklingarnir 21.
SJÚKLINGUM Á
SPÍTALA FJÖLGAR
Arna, verða ekki eintómir
hnakkar þarna?
„Ég veit ekki hvort þeir myndu ríða
feitum hesti þaðan, því það verður
ekki boðið upp á skinku.“
Hrossablót verður haldið í Hótel Varma-
hlíð í kvöld. Arna Björg Bjarnadóttir er
forstöðumaður Söguseturs íslenska
hestsins.
STJÓRNMÁL Framsóknarmenn telja, eins og málum er
háttað, rétt að stjórnvöld óski með formlegum hætti
eftir þúsund milljarða króna lánalínu frá Noregi. Af
þeirri fjárhæð kunni að vera þörf fyrir að draga um
þriðjung, það er fá rúmlega 300 milljarða að láni.
Segja þeir margt vinnast með slíkri fyrirgreiðslu
í stað efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins. Til dæmis losni Ísland úr þeirri
pattstöðu sem ríki gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um, Bretum og Hollendingum og vaxtabyrðin verði
mun lægri.
Framsóknarmenn kalla áætlun sína í þessum
efnum Plan B og hafa þegar kynnt hana ýmsum
norskum stjórnmálamönnum, líkt og frægt er orðið.
Hafa þeir nú óskað eftir fundi með Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra til að fara yfir málið
með henni.
„Við ætlum að kynna þetta fyrir forsætisráðherra
og leiðrétta ýmsan misskilning sem er í gangi,“
segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsókn-
ar. „Það var aldrei ætlun okkar að ræða þetta við
alla aðra en forsætisráðherra og nú viljum við koma
á betra talsambandi.“ - bþs
Framsóknarmenn vilja bætt samskipti við forsætisráðherra og útskýra Plan B:
Vilja þúsund milljarða lánalínu
HLÝTT Á ÞINGRÆÐU Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og
Höskuldur Þórhallsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGREGLUMÁL Lögreglunni á Akra-
nesi tókst í gær að bera kennsl
á lík sem fannst á Langasandi í
fyrradag. Hinn látni var 25 ára
gamall höfuborgarbúi.
Ekki er grunur um að andlát
mannsins hafi borið að með sak-
næmum hætti, að sögn Viðars
Stefánssonar hjá lögreglunni á
Akranesi. Enn er þó óvíst hvort
um sjálfsvíg eða slys var að ræða.
Dánarorsök er einnig óljós. - sh
Hinn látni 25 ára borgarbúi:
Búið að bera
kennsl á líkið
LÖGREGLUMÁL Banaslys varð á
Haukadalsheiði í gær, þegar
erlendur ferðamaður kastað-
ist af fjórhjóli og lést af sárum
sínum. Ferðamaðurinn, karl-
maður á sextugsaldri, var far-
þegi á hjólinu. Ökumaður þess
meiddist lítillega og var fluttur
til skoðunar á sjúkrahúsið á Sel-
fossi.
Um tuttugu manna hópur
erlendra ferðamanna var í fjór-
hjólaferð á heiðinni þegar slysið
varð. Tekin var skýrsla af þeim
og þeim boðin áfallahjálp.
Ekki er unnt að greina frá
nafni eða þjóðerni hins látna að
svo stöddu. - sh
Banaslys á Haukadalsheiði:
Kastaðist af
fjórhjóli og lést
VIÐSKIPTI Bank of America,
umsvifamesti viðskiptabanki
Bandaríkjanna, tapaði einum
milljarði dala, jafnvirði 124 millj-
arða króna, á þriðja ársfjórðungi.
Á sama tíma í fyrra hagnaðist
bankinn um tæplega 1,2 milljarða
dala.
Þetta er annar ársfjórðungurinn
í röð sem bankinn skilar tapi þrátt
fyrir 32 prósenta tekjuaukningu.
Afkoman er talsvert undir vænt-
ingum.
Bloomberg-fréttaveitan segir
bankann eiga erfitt með að fóta sig
eftir yfirtöku á tveimur fjármála-
fyrirtækjum sem stóðu höllum
fæti í fjármálahruninu fyrir rúmu
ári. - jab
Erfitt að fóta sig eftir hrunið:
Stærsti bank-
inn skilar tapi
BEÐIÐ VIÐ ÚTIBÚ Stærsti banki Banda-
ríkjanna skilaði mun verra uppgjöri en
menn bjuggust við. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÉLAGSMÁL Gestir Rauða kross-
hússins tóku fagnandi á móti Ólafi
Ragnari Grímssyni, forseta Íslands,
þegar hann kynnti sér starfsem-
ina í Borgartúni 25 í Reykjavík um
miðjan dag í gær.
Forsetinn fór á milli starfs-
stöðva, ræddi við starfsfólk og
gesti sem nýta sér þjónustu Rauða
krossins. Meðal annars gerði
hann stans hjá prjónahópi og hjá
aðstandendum hláturjóganám-
skeiðs.
Rauða kross-húsið býður upp á
ókeypis námskeið og stuðning, en
þar er þjónustumiðstöð þar sem
einstaklingar og fjölskyldur geta
leitað eftir stuðningi til að takast
á við breyttar aðstæður í kjölfar
efnahagshrunsins. Að sögn starfs-
fólks sækja um 50 manns Rauða
kross-húsið á degi hverjum. - óká
Í RAUÐAKROSSHÚSINU „Ertu að skoða
Facebook?“ spurði Ólafur Ragnar Gríms-
son forseti Íslands gest Rauðakrosshússins
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Forsetinn í Rauða kross-húsi:
Tóku vel á móti
Ólafi Ragnari
LÖGREGLUMÁL Þrír menn, tveir full-
orðnir og ungur piltur, voru fluttir
á slysadeild um kvöldmatarleytið
í gær eftir að bíll þeirra fór út af
veginum á Reykjanesbraut, vestan
við álver Alcan. Mjög hvasst var á
veginum þegar slysið varð.
Klippa þurfti mennina úr bíln-
um, en varðstjóri lögreglu taldi
að meiðsl þeirra hefðu ekki verið
mjög alvarleg. - sh
Bílslys á Reykjanesbraut:
Þrír fluttir á
spítala eftir slys
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
SPURNING DAGSINS