Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 8
8 17. október 2009 LAUGARDAGUR
Meðallestur á dagblöðum
Lesa bæði blöðin
34,8%
Lesa bara Morgunblaðið
8,0%
Lesa bara Fréttablaðið
57,2%
Samkvæmt nýjustu
lestrarkönnun lesa
144 þúsund, á
aldrinum 12 til 80
ára, Fréttablaðið á
hverjum degi sem
er rúmlega fimmtíu
þúsundum fleiri en
lesa Morgunblaðið.
VIÐSKIPTI Vísbendingar eru um
að auglýsingamarkaðurinn hafi
í heild dregist saman um þriðj-
ung frá því í fyrra. Að sögn Ara
Edwald, forstjóra 365, hljómar
sú tala nærri lagi fyrir félag-
ið, en það gefur meðal annars út
Fréttablaðið og rekur Stöð 2 og
Bylgjuna.
„Í krónum sýnist mér sam-
drátturinn verða 30 til 35 prósent
en raunlækkun meiri sem nemur
verðbólgu. Það hefur verið erf-
itt að laga reksturinn að þessum
samdrætti og erfiðast í blaðaút-
gáfunni þar sem kostnaðarþróun
á pappír hefur verið óhagstæð
ofan á allt annað.“
Ari bendir á að heilu sviðin,
á borð við fjármálageirann og
bílaumboðin, hafi nánast horfið
af markaðnum eins og staðan er
núna.
„Þessir aðilar voru meðal
helstu auglýsenda og minnkandi
umsvif þeirra hafa haft verulega
mikið að segja.“
Að sögn Ara er engin fyrir-
tækjasamsteypa með meira en
átta prósent af auglýsingunum í
Fréttablaðinu í dálksentrimetrum
talið það sem af er árinu 2009.
Ari tekur fram að þetta hlutfall
sé enn lægra þegar miðað er við
tekjur en ekki dálksentimetra,
þar sem stærstu auglýsendurn-
ir noti mest af heilum síðum og
opnum, sem eru hlutfallslega
ódýrari en minni auglýsingar.
„Ég fullyrði að rekstur Frétta-
blaðsins er ekki háður neinum
einum auglýsanda eða fyrir-
tækjasamsteypu. Auglýsandahóp-
urinn er miklu breiðari og sterk-
ari en það, enda er Fréttablaðið
langsterkasti prentmiðill lands-
ins og með Evróvisjón-dekkun á
höfuðborgarsvæðinu á hverjum
degi.“
Spurður um hvernig landslag-
ið sé almennt í þessum efnum á
dagblaðamarkaðnum segir Ari að
eftir því sem hann komist næst
sé stærsti auglýsandinn í Morg-
unblaðinu það sem af er 2009 með
svipað hlutfall af dálksentrimetr-
um og sá stærsti hjá Fréttablað-
inu, jafnvel heldur hærra ef eitt-
hvað er.
Skiptingin milli Fréttablaðs-
1 Með hvaða liði ætlar Arnar
Gunnlaugsson að leika næsta
sumar?
2 Hvað fær Framsóknarflokk-
urinn marga þingmenn í nýrri
könnun Fréttablaðsins?
3 Hver er vinsælasti karakt-
erinn í eftirhermukeppninni
Laddanum á Rás 2?
SVÖR Á BLAÐSÍÐU 66
DÓMSMÁL Fjórir menn hafa verið
ákærðir fyrir fjölmörg brot, ýmist
saman eða hver í sínu lagi. Saman
stálu þeir til dæmis hraðbanka sem
innihélt 2,2 milljónir króna. Þeir
brutu bankann upp síðar sama dag
og skiptu þýfinu á milli sín.
Mennirnir, sem eru allir af
erlendum uppruna, stálu hraðbank-
anum aðfaranótt sunnudagsins 1.
febrúar. Hann var í anddyri versl-
unarmiðstöðvar að Sunnumörk 1 í
Hveragerði.
Nokkru síðar reyndi einn mann-
anna að brjóta upp hraðbanka
Landsbankans að Dalvegi 2 í
Kópavogi. Sá hinn sami er einnig
ákærður fyrir fjölmörg umferðar-
lagabrot. Í öllum tilvikum var um
hraðakstur að ræða.
Þá eru mennirnir ákærðir fyrir
fleiri þjófnaðarbrot af ýmsu tagi.
Þeim er gefið að sök að hafa stolið
verkfærum og vettlingum úr BYKO
fyrir á annað hundrað þúsund og
íþróttagalla í Útilífi.
Vátryggingafélag Íslands krefst
þess að mennirnir greiði skaðabæt-
ur að upphæð 2.313 milljónir króna.
Tvær aðrar skaðabótakröfur eru
gerðar á hendur þeim, að upphæð
83 þúsund og 202 þúsund. - jss
LANDSBANKINN Einn mannanna reyndi að brjóta upp hraðbanka Landsbankans.
Fjórir menn ákærðir fyrir stórfelldan þjófnað:
Stálu hraðbanka og
deildu þýfinu
PAKISTAN, AP Þrír sjálfsvígs-
árásarmenn réðust vopnaðir
sprengjum á lögreglustöð í Pesha-
war í Pakistan í gær, daginn eftir
að sprengjuárásir voru gerðar á
fjórar lögreglustöðvar í landinu.
Árásin kostaði þrettán manns
lífið.
Peshawar er stærsta borgin
í norðvesturhluta landsins, þar
sem talibanar og aðrir uppreisn-
arhópar hafa látið til sín taka
undanfarið. Alls hafa meira en
150 manns farist í sprengjuárás-
um í Pakistan síðustu tólf daga.
Pakistanski herinn gerði í gær
harðar loftárásir á stöðvar tali-
bana í Suður-Waziristan og segist
hafa fellt þar tugi manna. - gb
Fleiri sprengjuárásir í Pakistan:
Árás á lögreglu-
stöð í Peshawar
SÆRÐUR MAÐUR BORINN BURT Árás á
lögreglustöð í Peshawar kostaði þrettán
manns lífið. NORDICPHOTOS/AFP
Enginn auglýsandi stærri en
átta prósent í Fréttablaðinu
Auglýsingamarkaðurinn hefur dregist saman um þriðjung frá því í fyrra. Rekstur Fréttablaðsins er ekki
háður neinum einum auglýsanda eða fyrirtækjasamsteypu, segir Ari Edwald, forstjóri 365.
STJÓRNMÁL „VG tapar furðulega
litlu fylgi miðað við þau vandræði
sem flokkurinn hefur verið í,“ segir
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor
í stjórnmálafræði við HÍ, um könn-
un Fréttablaðsins á fylgi flokkanna
sem birt var í gær. „Steingrímur J.
Sigfússon hefur komið sterkur út úr
stjórnarsamstarfinu og virðist njóta
virðingar utan VG. Það er ágiskun
mín að flokkurinn njóti þess.“
Miðað við niðurstöður kosn-
inganna í apríl tapar VG tveimur
þingmönnum, Hreyfingin og Borg-
arahreyfingin ná ekki kjöri, Sjálf-
stæðisflokkurinn bætir við sig sex
og Samfylking og Framsókn standa
í stað.
Gunnar Helgi segir fylgi Sam-
fylkingarinnar athyglisvert í ljósi
þess að flokkurinn er í forystu rík-
isstjórnar í erfiðum aðgerðum.
„Samfylkingarfólk hlýtur að telja
þetta nokkuð viðunandi,“ segir
hann.
Fylgi við Borgarahreyfinguna og
Hreyfinguna mælist svo til ekkert.
„Þetta er hrunið eins og búast mátti
við,“ segir Gunnar Helgi. Sama hafi
gerst hjá Frjálslynda flokknum sem
hífði upp fylgið á ný með útspili í
innflytjendamálum. „Ef Borgara-
hreyfingin eða Hreyfingin fara í
einhvern slíkan afkima getur fylg-
ið kannski vaxið aftur.“
Hann segir fylgið við Sjálfstæðis-
flokkinn nokkuð hátt, sem þó sé ekki
óeðlilegt í ljósi þess að hann eigi í
höggi við ríkisstjórn sem standi í
erfiðum aðgerðum. Framsókn vinni
hins vegar ekki á þrátt fyrir harða
stjórnarandstöðu. - bþs
Gunnar Helgi Kristinsson: Fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins eðlileg
VG tapar furðulitlu miðað við vandræði
„Þetta er ósköp skiljanlegt og ég get vel sett mig í spor ringlaðra kjósenda því
það hefur gengið mikið á hjá okkur sem fólk botnar ekkert í,“ segir Margrét
Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar. „Við erum áhlaupsframboð,“ segir
hún „og skoðanakannanir skipta okkur minna máli en flokka með 90 ára sögu.“
Margrét býst við að landið rísi á ný því Hreyfingin hafi mörg góð mál í fartesk-
inu og ætli að láta til sín taka á næstunni.
„Það mátti búast við þessu því umræðan hefur verið ofboðslega neikvæð
eftir landsfundinn og klofninginn þegar þingmennirnir sendu kjósendum sínum
fingurinn,“ segir Valgeir Skagfjörð, formaður Borgarahreyfingarinnar.
Ekki standi til að hætta og gefast upp. „En við verðum kannski ekki stjórn-
málaflokkur áfram heldur frekar þverpólitísk hreyfing sem styður menn til
góðra verka og hefur áhrif á umræðuna.“
MARGRÉT OG VALGEIR: VIÐBÚIÐ
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
ins og Morgunblaðins á birtum
dálksentimetrum á árinu er 61
prósent á móti 39 prósent, Frétta-
blaðinu í vil.
Ari bendir jafnframt á að ítar-
legar upplýsingar um auglýsing-
ar, sem birtast í dagblöðum, sé
meðal annars hægt að nálgast hjá
CreditInfo Fjölmiðlavaktinni, ef
menn kæra sig um.
HEIMILD: BLAÐAKÖNNUN CAPACENT MAÍ - JÚL 2009
VEISTU SVARIÐ?