Fréttablaðið - 17.10.2009, Síða 26
26 17. október 2009 LAUGARDAGUR
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0
Ka
rlk
yn
Kv
en
ky
n
H
öf
uð
bo
rg
La
nd
sb
yg
gð
A
llt
la
n
d
ið
Steingrímur J.
Sigfússon
Vinstri Græn
Ka
rlk
yn
Kv
en
ky
n
H
öf
uð
bo
rg
La
nd
sb
yg
gð
A
llt
la
n
d
ið
Jóhanna
Sigurðardóttir
Samfylkingin
Ka
rlk
yn
Kv
en
ky
n
H
öf
uð
bo
rg
La
nd
sb
yg
gð
A
llt
la
n
d
ið
Bjarni
Benediktsson
Sjálfstæðisflokkurinn
Ka
rlk
yn
Kv
en
ky
n
H
öf
uð
bo
rg
La
nd
sb
yg
gð
A
llt
la
n
d
ið
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Framsóknarflokkurinn
Ka
rlk
yn
Kv
en
ky
n
H
öf
uð
bo
rg
La
nd
sb
yg
gð
A
llt
la
n
d
ið
Ögmundur
Jónasson
Vinstri græn
SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS
Hvaða íslenska stjórnmálamanni treystir þú best?
Samkvæmt könnun Fréttablaðsins 15. október
Allir
1. Steingrímur J. Sigfússon 29,5%
2. Jóhanna Sigurðardóttir 26,2 %
3. Bjarni Benediktsson 11,5%
4. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 9,8 %
5. Ögmundur Jónasson 4,9 %
6. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 2,7%
7. Davíð Oddsson 2,5%
8. Illugi Gunnarsson 2,2%
9. Pétur Blöndal 1,9%
10. Katrín Jakobsdóttir 1,1%
Karlar
1. Steingrímur J. Sigfússon 32,8%
2. Jóhanna Sigurðardóttir 18,3%
3. Bjarni Benediktsson 13,9%
4. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 11,7%
5. Ögmundur Jónasson 3,9%
6. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 3,3%
7. Illugi Gunnarsson 2,8%
8. Davíð Oddsson 2,2%
9. Pétur Blöndal 2,2%
10. Árni Páll Árnason 1,7%
Konur
1. Jóhanna Sigurðardóttir 33,9%
2. Steingrímur J. Sigfússon 26,3%
3. Bjarni Benediktsson 9,1%
4. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 8,1%
5. Ögmundur Jónasson 5,9%
6. Davíð Oddsson 2,7%
7. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 2,2%
8. Illugi Gunnarsson 1,6%
9. Pétur Blöndal 1,1%
10. Katrín Jakobsdóttir 1,1%
Tíu vinsælustu stjórnmálamennirnir
Spurt var: „Hvaða íslenska
stjórnmálamanni treystir þú best?“
Alls 366 manns tóku afstöðu til
spurningarinnar sem eru tæp 46
prósent aðspurðra. Niðurstöðurn-
ar gefa þannig ákveðna vísbend-
ingu um hvaða stjórnmálamönn-
um íslenskir kjósendur treysta.
S
teingrímur J. Sigfússon, fjár-
málaráðherra og formaður
Vinstri grænna, er sá íslenski
stjórnmálamaður sem flestir
treysta. 32,9 prósent þeirra sem
afstöðu tóku í nýrri skoðana-
könnun Fréttablaðsins treysta honum best
allra. Forsætisráðherra og formaður Sam-
fylkingarinnar, Jóhanna Sigurðardóttir,
fylgir fast á hæla hans með stuðning 26,2
prósenta. Mun fleiri treysta því Steingrími
en ætla að kjósa Vinstri græna sem njóta
stuðnings 19 prósenta kjósenda samkvæmt
könnun Fréttablaðsins. Ríflega 30 prósent
sögðust ætla að kjósa Samfylkinguna sem
er heldur hærra hlutfall en þeir sem treysta
Jóhönnu best.
„Það kemur ekkert á óvart að Steingrím-
ur skuli vera toppmaður, hann hefur verið
mikið í framlínu ríkisstjórnarinnar og í
meiri mæli en Jóhanna því Icesave hefur
mætt mikið á honum. Hann hefur þar komið
fram sem hinn ábyrgi og trausti maður,“
segir Valgerður Jóhannesdóttir, verkefna-
stjóri í blaða- og fréttamennsku við Háskóla
Íslands.
Undir þetta tekur Svanborg Sigmars-
dóttir stjórnmálafræðingur: „Steingrímur
hefur verið meira í fjölmiðlum en Jóhanna
og komið meira fram sem leiðtogi, hann er
með Icesave og niðurskurðinn á fjárlögun-
um á sinni könnu, sem eru erfið mál en hann
hefur virkað mjög traustur í þeim. Annars
verður að segja að leiðtogar stjórnarflokk-
anna megi vel við una að fá tæp 30 prósent
hvor miðað við þau erfiðu mál sem þeir eru
að fást við.“
Í þriðja sæti er Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, en nokk-
uð bil langt bil er á milli hans og Jóhönnu,
einungis 11,5 prósent aðspurðra sögðust
treysta honum best. Sjálfstæðisflokkurinn
hlyti hins vegar tæplega 35 prósenta fylgi
ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt
könnun Fréttablaðsins.
Svanborg segir lítinn stuðning við Bjarna
hljóta að benda til þess að hann hafi ekki
sterka stöðu innan síns eigin flokks. „Þetta
þýðir það að það eru margir sem segjast
ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn þrátt
fyrir Bjarna, ekki vegna hans. Það er að
minnsta kosti ekki Bjarni sem dregur fylgi
til Sjálfstæðisflokksins, frekar kannski að
fylgisaukning hans í nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins sé komin til vegna óánægju
með hina flokkana.“ Valgerður er sammála
þessu: „Það hlýtur að vera umhugsunarefni
fyrir hann að hann hafi svona lítið meira
fylgi en formaður Framsóknarflokksins,
sem er í forsvari fyrir miklu minni flokki.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarflokksins, nýtur mests
trausts 9,1 prósents þeirra sem tóku afstöðu
en sem er fimm prósentustigum minna en
flokkurinn fékk í skoðanakönnuninni. Í
fimmta sæti er svo Ögmundur Jónasson
Flestir treysta Steingrími J.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra nýtur mests trausts stjórnmálamanna samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar
Fréttablaðsins. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fylgir á hæla hans. Sigríður Björg Tómasdóttir rýndi í niðurstöðurnar.
EKKI EFTIRSPURN EFTIR DAVÍÐ ODDSSYNI
Á meðal tíu efstu sem komast á blað
sem stjórnmálamenn sem mest traust
er borið til er Davíð Oddsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, sem yfirgaf vettvang
stjórnmálanna árið 2005 og varð
seðlabankastjóri.
„Ég held ekki að þetta þýði að það
sé eftirspurn eftir Davíð Oddssyni í
stjórnmál á nýjan leik,“ segir Svan-
borg Sigmarsdóttir. „Hann kom hins
vegar aftur inn í umræðuna síðasta
haust í hruninu sem seðlabankastjóri
og Davíð hefur verið í umræðunni
undanfarið vegna ráðningar hans í
ritstjórastól Morgunblaðsins.“
„Mér þykir út af fyrir sig vera forvitni-
legt að í hugum einhverra sé Davíð
Oddsson enn þá stjórnmálamaður,“
segir Valgerður Jóhannesdóttir. „Hann
virðist alltaf eiga sína fylgismenn en
maður á kannski ekki að lesa svo
mikið í þessar niðurstöður, enda ekki
svo margir á bak við þær þegar komið
er svo neðarlega á listann.
með 4,9 prósenta fylgi en hann skorar hæst
þeirra sem ekki eru formenn stjórnmála-
flokka. Þess má geta að sá liðsmaður Hreyf-
ingarinnar sem komst hæst í könnuninni er
Þór Saari en 0,8 prósent, eða þrír svarendur,
sögðust treysta honum best.
Spurt var: Hvaða íslenska stjórnmála-
manni treystir þú best? Úr 800 manna úrtaki
svöruðu 366 sem er tæplega 46 prósent svar-
hlutfall.
Steingrímur vinsæll þvert á flokka
84 prósent þeirra sem sögðust ætla að kjósa
VG í könnun Fréttablaðsins segjast bera
mest traust til Steingríms J. Sigfússonar.
Sama á við um 22 prósent kjósenda Samfylk-
ingarinnar og 6 prósent kjósenda Framsókn-
arflokksins og 4 prósent kjósenda Sjálfstæð-
isflokksins. Enginn annar stjórnmálamaður
hefur svo mikið traust stuðningsmanna ann-
arra flokka.
Þó segjast 8 prósent kjósenda Sjálfstæð-
isflokksins bera mest traust til Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar formanns Fram-
sóknarflokksins. 44 prósent kjósenda Sjálf-
stæðisflokksins segjast treysta Bjarna
Benediktssyni best stjórnmálamanna en 9
prósent kjósendanna segjast treysta Davíð
Oddssyni best.
Jóhanna Sigurðardóttir nýtur mests
trausts 70 prósenta kjósenda Samfylkingar-
innar samkvæmt niðurstöðu könnunarinnar.
Tvö prósent kjósenda VG segjast bera mest
traust til Jóhönnu Sigurðardóttur.
DAVÍÐ ODDSSON