Fréttablaðið - 17.10.2009, Page 32

Fréttablaðið - 17.10.2009, Page 32
32 17. október 2009 LAUGARDAGUR G læpamaður stöðvar mann úti á götu og krefur hann um vesk- ið og önnur verðmæti. Hvern- ig bregst meðalmaðurinn við þessari árás? Með því að afhenda verðmætin og kæra svo glæpinn. Athæfið telst sannarlega glæp- samlegt og ekki líklegt að þolandinn þurfi að standa í stappi við að sannfæra yfirvöld um að á honum hafi verið brotið. Veskið er horf- ið, því var stolið. Sama er ekki upp á teningnum þegar kyn- ferðisglæpir eru annars vegar. Flestir sem er nauðgað berjast ekki á móti glæpnum, þora það ekki eða fá slíkt áfall við verknaðinn að þeir lamast og geta sig ekki hrært. Fórnar- lambið bhefur því samkvæmt skilgreiningu laganna ekki verið nauðgað. Ákveði brotaþoli að leggja fram kæru vegna nauðgunarinnar er líklegra en ekki að hún verði felld niður, en fari hún alla leið þá eru miklar líkur á því að nauðgarinn verði sýknaður í dómssal – hann braut ekki lögin. Þetta er óþolandi að mati Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur sem nýverið gaf út bókina Á mannamáli sem fjallar um kynferðisbrot og refsingar á Íslandi í víðu samhengi. Germönsk lagahefð „Okkar lög fylgja germanskri hefð, og sam- kvæmt henni er gert ráð fyrir að nauðgun fylgi annars konar ofbeldi, annars er ekki um nauðgun að ræða. Þetta er óþolandi því rann- sóknir hafa sýnt að aðrar tegundir ofbeldis fylgja alls ekki öllum nauðgunum, og fæst- ir sem fyrir þeim verða berjast á móti,“ segir Þórdís Elva. „Öll félagsmótun segir okkur líka að láta í minni pokann, mætum við ofjarl okkar. Og rannsókn- ir sýna það að ein- ungis fjórðungur þeirra sem verða fyrir nauðgun berj- ast á móti henni.“ Í lögum um kyn- ferðisbrot eru þrjár greinar er varða nauðgun, í þeirri fyrstu segir að „hver sem með ofbeldi eða hótun um ofbeldi þröngvar manni til holdlegs samræðis eða annarra kynferðismaka,“ skuli sæta fangelsisvist. Til ofbeldis teljist svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti. Í annarri grein segir: „Hver sem með annars konar ólögmætri nauð- ung þröngvar manni til samræðis eða annarra kynferðismaka,“ skuli sæta fangelsi allt að 6 árum í þeirri þriðju er kveðið á um að ekki megi otfæra sér geðveiki eða andlega anna- marka manneskju til að hafa við hana sam- ræði. Undir þriðju lagagreinina falla einnig brot gegn dauðadrukknum. Þess má geta hér að til ársins 2007 taldist það ekki vera nauðgun að hafa samræði við dauðadrukkna manneskju, heldur var það kallað misneyting. Ætlast til mótspyrnu Þórdís bendir hins vegar á það í bókinni að lögin verndi ekki þá sem ekki teljast nægilega ölvaðir til að þykja ófærir um að veita mót- spyrnu. Hún bendir meðal annars á dóm sem féll vorið 2008 máli sínu til stuðnings þar sem ákærði var sýknaður af því að hafa nauðgað konu. Konan hafði lagst til hvílu eftir nætur- langt rall með hóp af fólki, sem endaði með samsæti heima hjá henni þar sem hún, bróðir hennar og aðkomumaður voru að lokum ein eftir. Konan fór að sofa en skömmu síðar kom maðurinn inn í svefnherbergið og nauðgaði henni. Það er að segja í skilningi orðabókar- innar um málið, en þar segir að nauðgun sé samfarir gegn vilja viðkomandi. Íslensk lög líta öðrum augum á málið. Konan var nefni- lega með nokkurri meðvitund eins og það er orðað í dómnum og þótti ölvunarástand henn- ar og svefndrungi ekki geta skýrt hvers vegna hún barðist ekki á móti ofbeldismanninum. Konan sagði að hún hefði hugleitt að kalla á bróður sinn en ekki getað það vegna hræðslu. Hún var semsagt ekki nægilega ölvuð til þess að lögin vernduðu hana. Ef hún hefði verið algjörlega meðvitundarlaus hefðu lögin hugs- anlega verndað hana en þar sem hún var það ekki hefði hún átt að berjast á móti. Áfallið lamar En það er fáránleg krafa að leggja á þá sem verða fyrir nauðgun að mati Þórdísar, hræðsl- an lami hreinlega mjög marga brotaþola, áfall- ið sem nauðgun er komi í veg fyrir viðbrögð. Eins og Þórdís bendir á í bókinni er erfitt að sakfella mann sem kærður er fyrir brot á borð við nauðgun ef ekki tekst að sanna að hann hafi ásett sér að fremja það. Af þeim sökum er algengt að hinn ákærði beri fyrir sig að hann hafi hreinlega ekki vita að kyn- mökin væru gegn vilja brotaþolans, sérstak- lega ef sá spyrnir ekki á móti. Hún bendir á í þessu samhengi hvernig málum er háttað í öðrum brotaflokkum, til dæmis þegar um þjófnað sé að ræða. Þegar þjófur nappi fartölvu, segjum úr bíl, þá þurfi ekki að láta eiganda tölvunnar sanna að sam- þykki hans hafi ekki legið fyrir stuldinum, gengið sé út frá því að eigandinn hafi ekki vilj- að láta stela tölvunni og um leið gengið út frá því að þjófurinn hafi ætlað að stela henna. „Þjófnaður er þjófnaður þó að ekki sé bar- ist á móti honum en nauðgun er ekki nauðgun nema barist sé á móti henni,“ bendir Þórdís á. „Hvernig væri að við gengjum út frá því að fólk vilji ekki láta hafa við sig ósamþykkt kynmök? Hvernig væri að leyfi fyrir afnotum af skrokki annarrar manneksju yrði jafn sjálf- sagt og leyfi fyrir afnotum af örum eigum? Eins og málum er háttað í dag er hægt að kæra mann, sem ryðst óboðinn inn á heimili, fyrir innbrot hvort sem húsráðandinn streittist á móti eða lá sofandi í rúmi sínu þegar atburð- urinn átti sér stað. Slíkt hið sama gildir ekki um líkama fólks, ef marka má undangengna dóma. Mönnum er frjáls að áætla samþykki til kynmaka, jafvel þótt engin slík ósk hafi verið gefin til kynna,“ segir hún í bók sinni. Í dómnum áðurnefnda sagði sá ákærði að konan hefði engan áhuga sýnt á kynlífi um kvöldið, hún hefði heldur ekki tekið þátt í kyn- mökunum á neinn hátt, né sýnt viðbrögð við þeim. Þó var maðurinn sýknaður, enda ekki talið að hann hefði brotið lögin. Þegar ný lög kynferðisbrot voru samþykkt árið 2007 var gerð sú tillaga að nauðgunará- kvæðinu væri breytt, þannig að samræði án samþykkis beggja aðila teldist vera nauðg- un. Slík er venjan í engilsaxneskri lagahefði. Fallið var frá því og rökstutt þannig af Ragn- heiður Bragadóttur þáverandi prófessor við Háskóla Íslands og núverandi hérðasdómari sem gaf álit um málið að þannig nauðgunar- skilgreining yrð miklu óljósari og erfiðara yrði að sanna nauðgunina. Að mati Þórdísar Elvu er þessi röksemd ekki gild. „Sönnunarbyrðin yrði öðruvísi og hugsanlega snúnari, en lögin myndu vernda alla, sem hlýtur að vera það sem við viljum.“ Vilji til lagabreytinga Atli Gíslason lögmaður og þingmaður Vinstri grænna deilir þessari skoðun Þórdísar en hann hyggst leggja fram frumvarp um breyt- ingu á þessari lagagrein á alþingi á næstunni, með stuðningi þingmanna úr öllum flokkum. Hann hefur áður lagt frumvarpið fram á þingi en það hefur ekki komist upp úr nefnd enn. „Ég vil taka verknaðarlýsinguna út, nauðgun er hugtak eins og hvert annað hugtak.“ Atli segir að þó að lög um kynferðisbrot hafi lagast þá skorti enn á að þau séu nægilega góð. Málaflokkurinn sem slíkur mæti einnig miklu skilningsleysi. „Mjög fáar kærur, eða innan við fimm prósent, leiða til sakfellingar. Það þarf ekki að segja meira um ástandið.“ Atli fellst ekki á þau rök að sönnunarbyrðin verði of flókin, hann segir afleiðingu glæps- ins vera nægilega sönnun í sjálfu sér. „Þegar brotaþoli er enn nötrandi mörgum mánuðum síðar, fer í sjálfsvígshugsanir eða lokar á sig, ef kynlíf verður ónýtt í framhaldinu, þá er það full sönnun á nauðgun og það er öllum augljóst sem að vilja skoða það.“ Hann segir andstöðu við þessar breyting- ar vera til marks um skilningsleysi á mála- flokknum, ekki sé verið að slaka á raunveru- legum sönnunarkröfum. „Líkið eða meiðslin eru sönnun í ofbeldisglæpum, afleiðingarnar eru sönnun á nauðgun, svo einfalt er það.“ Atli segir lagabreytinguna sem slíka ekki vera töfralausn í málinu en þó skref í rétta átt. Þórdís Elva tekur undir þau sjónarmið. Auð- vitað sé vandi brotaþola meiri en þessi laga- grein. Viðhorfið til nauðgana einkennist til dæmis enn af fordómum, athyglin sé um of á brotaþolanum, ekki ofbeldismanninum. Refs- ingar séu einnig vægar í samanburði við það sem tíðkast í öðrum glæpum, og refsiramm- inn langt frá því að vera fullnýttur. Það sé hins vegar mikilvægt að breyta lög- unum, til þess að þau verndi alla. Slíkar breyt- ingar hlytu einnig að hvetja fleiri til að leita réttar síns þegar á þeim er brotið. „Mannrétt- indanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur skorað á íslensk yfirvöld að ekki sé latið hjá líða að refsa fyrir nauðgun og við hljótum að vilja bregðast við því.“ Hljótum að vilja vernda alla Lög um kynferðisbrot vernda minnihluta þeirra sem verða fyrir nauðgun og það er ótækt, segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sem skoðar umgjörð kynferðisglæpa í nýrri bók sinni, Á mannamáli. Sigríður Björg Tómasdóttir skoðaði málið. HVERN VERNDA LÖGIN? Fá fórnarlömb nauðgana leggja fram kæru og hátt hlutfall kæra leiðir til sakfellingar. Úr þessu þarf að bæta, segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höfundur bókarinnar Á mannamáli. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Á tímabilinu 2002 til 2006 bárust ríkissak- sóknara 155 kærur vegna nauðgana. Af þeim voru 105 felldar niður eða tæp 70 prósent. Ákært var í 50 málum og lauk 22 þeirra með endanlegri sakfellingu eða um 14 prósent. Á sama tímabili leituðu 472 einstaklingar á Neyðarmóttökuna í Fossvogi og 67 á Neyðarmóttökuna á Akureyri. Alls 408 mál komu á borð til Stígamóta og 156 leituðu í Kvennaathvarfið vegna kynferðisofbeldis. *Heimild Á mannamáli blaðsíðu 124 SJÖTÍU PRÓSENT KÆRA VORU FELLDAR NIÐUR* „Langstærstur hluti þeirra sem verður fyrir kynferðisofbeldi er skelfingu lostinn meðan á glæpnum stendur,“ segir Þórunn Þórarinsdóttir hjá Stígamótum. „Konur eru mikill meirihluti sem leita sér hjálpar hér og þær hafa lýst því hvernig áfallið lamar þær, þær finna að þær eru ofurliði bornar. Og svo skiptir iðulega ekki máli hvort þær berjast á móti, glæpamaðurin er búinn að ákveða að fremja glæpinn og gerir það. Þær konur sem hafa barist á móti hafa líka sagt frá því ofbeldi sem þær hafa þá verið beittar og það er skelfilegt.“ Mikill minnihluti þeirra kvenna og karla sem leita til Stígamóta leggur fram kæru vegna nauðgunar. „Ástæða sem er mjög oft nefnd er vantrú á kerfinu, þær treysta því ekki að það komi nokkuð út úr kærunni. Þær treysta sér ekki til þess að fara í gegnum ferlið sem kæra er og segja mjög oft, þeir fá hvort eð er engan dóm og til hvers á ég þá að leggja þetta á mig? Einn- ig óttast sumar nauðgarana,“ segir Þórunn sem segir starfsfólk Stígamóta styðja við þá sem leiti sér hjálpar og virði ákvarðanir þeirra, bendi á möguleikann til að kæra en þrýsti ekki á neinn. Þórunn segir margt gott hafa gerst í mála- flokki kynferðisbrota undanfarin ár en margt megi betur fara. „Erlendar rannsóknir sýna að 4. til 5. hver stúlka lendir í kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur og 9. hver strákur. Því miður bendir ekkert til þess að ástandið sé annað hér á landi. Ég vildi óska að þetta væri ekki svona en þetta er staðreyndin. Draumurinn er auðvitað að útrýma þessum glæpum, og til þess að það tak- ist verðum við til dæmis að þora að tala um þá. Þá þurfa kerfið og yfirvöld auðvitað að taka þá alvarlega og taka afleiðingar kynferðisglæpa alvarlega. Rannsóknir sýna að afleiðingar kynferðisofbeldis eru svipaðar því og að lenda í náttúruhamförum, hvernig ætli fólk þætti að þær væru bara hundsaðar? Kynferðisbrot eru samfélagsmein og ekki einkamál þeirra sem í þeim lenda. Við berum öll ábyrgð á því að reyna að koma í veg fyrir þau.“ HAFA EKKI TRÚ Á KERFINU ÞÓRDÍS ELVA ÞORVALDSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.