Fréttablaðið - 17.10.2009, Side 35
menning
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
október 2009
E
irún Sigurðardóttir, Jóní
Jónsdóttir og Sigrún
Hrólfsdóttir mynda
þessa skemmtilegu
grúppu sem hefur á und-
anförnum árum fengist við margs
kyns myndlist, frá fötum í stórar
innsetningar. Þessa sýningu
kenna þær við svarta svaninn,
sem eins og frændi hans hvíti
hrafninn, er undantekningin og
hefur á síðustu misserum fengið
nýja hagfræðilega merkingu: það
sem vænta má þótt það sé brot á
öllum reglum litarafts á svana-
stofninum. Að því talið var lengi
vel, ekki var mönnum kunnugt
um að á hinum helmingi jarðar-
innar var svartur svanastofn til
og þaðan breiddist hann út um
heiminn. Í Tasmaníu þykja svartir
svanir ekkert sérstaklega merki-
legir en það er einmitt þaðan sem
sá svarti er upprunninn, en á
norðurhveli jarðar er hann afar
sjaldséður og stundum jafnvel
óvelkominn.
Svartur svanur er myndlík-
ing sem búin hefur verið til fyrir
atburði sem gerast óvænt, koma
líkt og þruma úr heiðskíru lofti.
Viðburðir þessir valda gjarnan
miklum usla en eftir á að hyggja
hefði kannski mátt sjá þá fyrir:
„Allt er þetta spurning um það
hversu læsir menn eru á umhverfi
sitt, líkt og þegar heimilisköttur-
inn sleikir sig og rekur annan
afturfótinn út í loftið, svokall-
að gestaspjót. Þá er von á gesti,“
segja þær gjörningasystur.
Á sýningu Gjörningaklúbbsins
eru ný þrívíð verk og ein teikni-
mynd, sem sýnd hafa verið á
suður- og norðurhveli jarðar á síð-
asta ári en ekki ratað til Reykja-
víkur fyrr en nú. Hluti verkanna
var búinn til í Montreal síðasta
vetur þar sem Gjörningaklúbbur-
inn var með vinnustofu og heim-
ili í sex mánuði í boði The Canada
Council for the Arts.
Verk þessi eiga öll rætur sínar
að rekja til gjörninga þótt hér séu
engir lifandi líkamar á ferðinni …
nema áhorfendur. Einnig verður
kvikmyndasýning í Regnbogan-
um undir lok mánaðarins sem
hluti af myndlistarhátíðinni Sequ-
ences. Þar verða sýndar myndir
eftir ILC, Curver og myndin An
Exquisite Corpse in Nikisialka
eftir sextán íslenska og pólska
listamenn. Svartur svanur eftir þær Gjörningaklúbbssystur. MYND FRÉTTABLAÐIÐ GVA
SVARTIR
SVANIR
HVÍTIR
HRAFNAR
Gjörningaklúbburinn opnar sýningu í dag í Kling &
Bang á Hverfi sgötu 42. The Icelandic Love Corporat-
ion, eins og þær stöllur kalla sig upp á enskuna, sýna
þar skúlptúra. Þá verða þær með á Sequences-hátíð-
inni sem hefst í næstu viku og sýna þar kvikmynd
sem þær hafa gert.
MYNDLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
Myndlist sem umhverfi
Aðalsteinn Ingólfsson skrifar um skúlptúra
Guðrúnar Nielsen. SÍÐA 8
Allt sem er gott
er hættulegt
Viðtal við Þorleif Örn
Arnarsson leikstjóra.
SÍÐA 6
NORRÆN MENNING Í HAUST!
Í ljósaskiptunum 9.–15. nóvember
UPPLESTRARHÁTÍÐ
Á BÓKASÖFNUM
www.bibliotek.org
Norðurlöndin í bíó – Þema: Umburðarlyndi
STUTTMYNDIR
FYRIR SKÓLA
www.nordenibio.org
STUTTMYNDASAMKEPPNI
UM LOFTSLAGSMÁL
Glæsileg verðlaun í boði!
www.reclimate.net
Samband Norrænu félaganna (FNF) með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar, Kulturrådet, Norsk kulturråd, Norsk Filminstitutt, Det Danske Filminstitut og Svenska Filminstitutet