Fréttablaðið - 17.10.2009, Page 36
MENNING 2
S
á siður upphófst snemma
á Tónlistardögum Dóm-
kirkjunnar að Dómkórinn
eða dómorganisti frum-
flutti verk sem samið var
sérstaklega fyrir tónlistardagana.
Ekki verður brugðið út af þeirri
venju í ár, en þessir tónlistardag-
ar markast af því að þeir eru þeir
síðustu undir stjórn Marteins H.
Friðrikssonar. Hann varð sjötugur
24. apríl á þessu ári og ákvað fljót-
lega að hætta afskiptum af Tón-
listardögum, þótt von sé til þess að
Dómkirkjan og kórinn fái að njóta
krafta hans áfram.
Af þessu tilefni ákvað hann
að semja sjálfur tónverk sem að
vanda verður frumflutt laugar-
daginn 24. október kl. 17 og endur-
flutt í hátíðarmessu daginn eftir,
á vígsludegi Dómkirkjunnar, en
henni verður útvarpað á Rás 1.
Á tónleikunum koma einnig fram
afmælisgestirnir Anna Guðný
Guðmundsdóttir, Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Sigurður Snorrason og
fleiri.
Alls verða sex tónleikar og ein
messa á Tónlistardögunum í ár.
Tónleikarnir eru óvenjumargir
vegna þess að þegar afmæli Mart-
eins spurðist út í vor komu fjöl-
margir tónlistarmenn á fund hans
og vildu heiðra hann með tónleika-
haldi. Úr því varð tónleikaröð sem
hefst í dag kl. 17 þegar fyrrver-
andi nemandi Marteins og Dóm-
kórsfélagi, Steingrímur Þórhalls-
son, organisti í Neskirkju, kemur
með kórinn sinn í heimsókn í Dóm-
kirkjuna. Þar verður meðal annars
frumflutt kórverk eftir Steingrím
sem hann tileinkar Marteini.
Á allraheilagramessu, sunnu-
daginn 1. nóvember, verður minn-
ing látinna í Dómkirkjunni milli
kl. 16 og 18 síðdegis. Þá gefst
kirkjugestum tækifæri til að líta
inn í Dómkirkjuna og hlýða á kór-
og orgeltónlist. Þar verða fjórir
kórar auk annarra tónlistarmanna:
Graduale Nobile, Kammerkór
Dómkirkjunnar, Mótettukórinn,
Voces masculorum, Marta Guðrún
Halldórsdóttir, Örn Magnússon,
Kjartan Sigurjónsson og fleiri.
Viku síðar, sunnudaginn 8. nóv-
ember kl. 17, verða tónleikar í
Dómkirkjunni þar sem fram koma
Anna Sigríður Helgadóttir, Guðný
Guðmundsdóttir, Guðrún Birgis-
dóttir, Gunnar Kvaran, Lenka
Mátéová, Martial Nardeau, Skóla-
kór Kársness undir stjórn Þórunn-
ar Björnsdóttur og fleiri afmæl-
isgestir.
Enn líður vika og þá er röðin
komin að Dómkórnum sem verð-
ur með tónleika í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 15. nóvember kl. 17.
Þar flytur kórinn Messu í D-dúr
eftir Antonin Dvorák fyrir ein-
söngvara, kór og orgel og einnig
mótettuna Fest- und Gedenks-
prüche eftir Johannes Brahms.
Flytjendur auk kórsins verða:
Þóra Einarsdóttir sópran, Sesselja
Kristjánsdóttir alt, Gissur Páll
Gissurarson tenór, Ágúst Ólafsson
bassi og Guðný Einarsdóttir orgel-
leikari. Stjórnandi er að sjálfsögðu
Marteinn H. Friðriksson.
Lokatónleikarnir verða svo
í Dómkirkjunni laugardaginn
21. nóvember kl. 17. Þeir verða
í umsjá Kjartans Óskarssonar,
klarinettuleikara og skólastjóra
Tónlistarskólans í Reykjavík, en
auk hans koma þar fram Bergþór
Pálsson, Sesselja Kristjánsdóttir,
Steingrímur Þórhallsson og fleiri
afmælisgestir.
Þess má geta að ókeypis verð-
ur á alla tónleikana nema tónleika
Dómkórsins í Hallgrímskirkju.
Bókmenntir ★★★★
Reyndu aftur – Ævisaga Magnúsar Eiríkssonar
Tómas Hermannsson skráði
Smámyndir þjóðskáldsins
„Það er kominn tími á að loka ferðabók Magnúsar
Eiríkssonar,“ segir í inngangsorðum lokakafla Reyndu
aftur. Orðalagið vekur athygli því ferðasaga, viðtals-
eða samtalsbók upp á gamla mátann er í raun réttari
innihaldslýsing á bókinni. Hér er ekki um eiginlega
ævisögu að ræða. Magnús, einn af vinsælustu dæg-
urlagasmiðum þjóðarinnar, og skrásetjarinn Tómas
Hermannsson keyra um landið meðan spurningar og
svör flæða. Víða er drepið niður fæti, gjarnan tilvilj-
anakennt og ekki hefði skaðað að kafa örlítið dýpra á
köflum (og lengra, því bókin er nánast glæpsamlega
fljótlesin). Undantekningin er sukkið, sem fær sinn skerf og rúmlega til.
Annað er fásinna í popptengdum bókmenntum.
Samt er það þessi kæruleysislegi andi sem fær bókina til að virka svo
vel. Textinn er lifandi og í dynjandi takt við umfjöllunarefnið, en það er
atriði sem of margar bækur um íslenska tónlistarmenn hafa flaskað á
undanfarin ár. Persónuleiki Magnúsar, sem virðist vera æðru- og tilgerðar-
leysið uppmálað, skín í gegn hvort sem tæpt er á ævintýrum messaguttans
Magga á millilandaskipum, fjölskylduerfiðleikum eða sveppatrippi á Höfn í
Hornafirði. Mörgum af bestu textum Magnúsar er svo blandað taktískt inn í
söguna, handskrifuðum af höfundinum, sem er sérlega vel til fundið. Fáum
tekst nefnilega betur að fanga íslenskan veruleika.
Ef bókin væri popplag eftir Magga
Eiríks myndi það flokkast meðal
hans bestu. Sagan snertir, er einlæg
og ofurgrípandi, en kaldhæðnin,
grínið og glensið aldrei langt undan.
Melódíumeistarinn er vel sæmdur
af Reyndu aftur og aðdáendur hafa
ástæðu til að gleðjast.
kjartan@frettabladid.is
Niðurstaða: Ein af bestu bókum
um íslenska tónlistarmenn sem
komið hafa út. Einlæg, áhugaverð
og umfram allt þrælskemmtileg.
MARTEINN KVEÐUR TÓNLISTARDAGA
Marteinn H. Friðriks-
son, dómorganisti
og stjórnandi, lætur
nú af störfum eftir
farsælan feril og er
stór hluti af dagskrá
Tónlistardaga Dóm-
kirkjunnar helgaður
honum í virðingar-
skyni.
Tónlistardagar Dóm-
kirkjunnar hafa verið
fastur liður í tónlistarlífi
Reykjavíkur síðan 1982
en dagarnir eru haldnir
er undir kjörorðinu Soli
Deo Gloria – Guði ein-
um til dýrðar. Nú kveður
stjórnandinn, Marteinn
Hunger Friðriksson,
starfsvettvang sinn á há-
tíðinni sem hefst í dag.
TÓNLIST PÁLL BALDVIN BALD-
VINSSON
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/E
Ó
L
dlandssýn
an krimma
Ný bók eftir höfund Viltu vinna milljarð?
EVRÓPSKI
ÚTVARPSDAGURINN
Evrópski útvarpsdagurinn
verður haldinn hátíðlegur á
morgun. Fléttuþáttur, helgað-
ur íslenskum og grænlensk-
um draugum, verður af því
tilefni fluttur á Rás 1 klukkan
17.25 og í grænlenska ríkisút-
varpinu, KNR, á sama tíma.
Frá árinu 2003 hafa útvarps-
stöðvar víða um Evrópu
tekið þátt í Evrópska útvarps-
deginum. Hugmyndin að
baki deginum er að leiða
saman dagskrárgerðarfólk
frá útvarpsstöðvum ólíkra
málsvæða og menningar,
gefa þeim kost á að vinna
saman að verkefni. Hann er
haldinn annað hvert ár og í
ár er viðfangsefnið fjöltyngi.
Sjö styrkir voru veittir til fram-
leiðslu þátta sem spanna
það hugtak, allir fluttir á
tveimur eða fleiri tungumál-
um Eitt af verkefnunum sem
hlutu styrk í ár er fléttuþáttur
eftir íslensku og grænlensku
útvarpskonurnar Henriette
Rasmussen, Þorgerði E.
Sigurðardóttur og Elísabetu
Indru Ragnarsdóttur. Þáttur-
inn er helgaður draugatrú og
draugasögum.