Fréttablaðið - 17.10.2009, Page 42
„Þetta verður hörkukeppni og ég
býst fastlega við að mjótt verði á
mununum. Ég hef mínar hugmynd-
ir um hver þeirra komi til með að
standa uppi sem sigurvegari, en
gef ekkert upp um það að sinni,“
segir Gemma Magnússon, skipu-
leggjandi keppninnar um sterkustu
konu Íslands sem fram fer í Vetrar-
höll Smáralindarinnar klukkan 14
í dag. Alls keppa tuttugu konur
um titilinn. Allur ágóði af keppn-
inni rennur til Bleiku slaufunnar,
átaksverkefnis Krabbameinsfé-
lagsins sem miðar að því að vekja
athygli á brjóstakrabbameini.
Gemma er þrefaldur sigurveg-
ari í keppninni um sterkustu konu
Bretlands og varð önnur í keppn-
inni um sterkustu konu heims
árið 2005. Hún er gift Benedikt
Magnússyni, fyrrum sterkasta
manni Íslands, og saman reka þau
kraftlyftingastöðina Super-Gym
í Drangahrauni í Hafnarfirði.
„Þegar við byrjuðum með stöð-
ina tók ég eftir því að ekki ein-
asta voru konurnar sem komu til
að æfa hjá okkur í frábæru formi
heldur voru þær margar hverjar
fílsterkar. Það er mikill kraftur í
þessum konum. Þess vegna fannst
mér hreinlega nauðsynlegt að
koma svona keppni aftur á kopp-
inn. Hjalti Úrsus stóð fyrir nokkr-
um slíkum keppnum fyrir nokkr-
um árum, en þær voru smáar í
sniðum og þátttakendur voru oft-
ast í kringum þrír eða fjórir. Það
verður stærri umgjörð í kringum
keppnina í ár,“ segir Gemma.
Gemma er ekki meðal kepp-
enda í dag vegna þess að hún er
breskur ríkisborgari, uppalin í
bænum Thirsk í Norður-Jórvík-
urskíri í norðurhluta Englands.
Hún hefur haft áhuga á krafta-
íþróttum frá unga aldri. „Ég ólst
upp við að fylgjast með mönnum
eins og Jóni Páli Sigmarssyni og
Magnúsi Ver Magnússyni sýna
listir sínar í kraftakeppnum í sjón-
varpinu og síðan hef ég verið mik-
ill aðdáandi Íslands. Mig grun-
ar að sumir Íslendingar geri sér
ekki grein fyrir því hversu mikl-
ar hetjur þessir menn voru víða
um heim.“
Slagorð Super-Gym er „Höldum
Íslandi sterku“. Að sögn Gemmu
felast mikilvæg skilaboð í slagorð-
inu. „Þegar land á í svona miklum
erfiðleikum er mjög mikilvægt að
styrkurinn innra með Íslending-
um smiti út frá sér,“ segir Gemma
Magnússon.
kjartan@frettabladid.is
Íslenskar konur í frá-
bæru formi og fílsterkar
Tuttugu konur keppa í dag um titilinn sterkasta kona Íslands. Skipuleggjandinn, Gemma Magnússon,
spáir hörkukeppni þar sem mjótt verði á munum. Allur ágóði af keppninni rennur til Bleiku slaufunnar.
Meðal annars verður keppt í uxagöngu, dekkjaveltu, bændagöngu og réttstöðulyftu í Smáralindinni í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gemma Magnússon, skipuleggjandi
keppninnar, er þrefaldur sigurvegari í
keppninni um sterkustu konu Bretlands.
Æskuhetjur hennar voru meðal annars
þeir Jón Páll Sigmarsson og Magnús Ver
Magnússon. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LAUGARDALSLAUG verður opin þrisvar á dag dagana
16. til 24. október. Frá 6.30 til 7.30, frá 11.30 til 13.30 og frá
20.30 til 22.30. Þetta er gert vegna Evrópumeistaramóts fatl-
aðra í sundi sem fram fer í lauginni.
Lilja Kristjánsdóttir og Ingunn
Jónsdóttir opna ljósmyndasýn-
ingu í dag.
Ef breytan fólk er tekin út, hvað
gerir þá hús að heimili og hvenær
hættir hús að vera heimili? Að
þessum spurningum spyrja lista-
mennirnir Lilja Kristjánsdóttir og
Ingunn Jónsdóttir á ljósmyndasýn-
ingunni Hús: Heimili sem verður
opnuð í Gallerí Fold við Rauðarár-
stíg í dag.
Þetta er önnur sýning þeirra
Lilju og Ingunnar, sem unnu áður
saman að sýningunni Egglost sum-
arið 2008 og þá ásamt Þórdísi Þor-
leifsdóttur.
Þess skal getið að Lilja Kristj-
ánsdóttir er í ljósmyndanámi við
Fotografskolen í Viborg í Dan-
mörku. Ingunn Jónsdóttir er vöru-
hönnuður og útskrifaðist frá Lista-
háskóla Íslands 2006.
Sýningin verður opnuð klukkan 15
og stendur til 1. nóvember.
Hvenær hættir hús
að vera heimili?
Hvað gerist þegar breytan fólk er tekin út? Að þessu spyrja Lilja Kristjánsdóttir og
Ingunn Jónsdóttur á ljósmyndasýningu sinni. MYND/LILJA KRISTJÁNSDÓTTIR
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...