Fréttablaðið - 17.10.2009, Page 43
LAUGARDAGUR 17. október 2009 3
Frá stofnun Læknafélags Íslands
eru nú liðin 100 ár. Þessara tíma-
móta ætlar stjórn Læknafélagsins
að minnast í dag, 17. október, á Hilt-
on Nordica hótelinu frá klukkan tíu
til klukkan fjögur. Þar hyggjast
læknar setja upp eins konar stöðv-
ar þar sem almenningur getur
komið við og leitað fræðslu um
ýmislegt varðandi heilsufar.
„Og svo getur fólk komið, rabbað
og leitað sér upplýsinga sjálfu sér
til gagns og ánægju,“ segir Högni
Óskarsson, geðlæknir og fyrr-
verandi formaður Læknafélags
Reykjavíkur.
Högni bendir á að saga læknis-
fræðinnar sé talin ná langt aftur
fyrir elstu rituðu heimildir enda
megi slá því föstu að maðurinn hafi
reynt að bæta heilsu sína frá því að
saga hans hófst. Í þessari óralöngu
sögu hafi þó líklega aldrei orðið
jafn stórstígar breytingar til batn-
aðar og á síðustu 100 árum. Margs
sé því að minnast þegar litið sé yfir
farinn veg. Það sé þó ánægjulegt að
í gegnum þessar breytingar hafi
meðlimir Læknafélagsins ávallt
beitt sér á svipaðan hátt. Fræðsla
almenningi til gagns og handa hafi
ávallt verið í fyrirrúmi sem og þátt-
taka læknisins í tengslum við sam-
félagsleg mál og forvarnarstarf.
Vandamálin sem nú steðji að séu
þó önnur en í byrjun síðustu aldar.
„Þá var brýnast að fræða fólk um
gildi ungbarnaeftirlits og hreinlæt-
is en nú eru það annars konar lífs-
stíls vandamál sem þarf að fræða
fólk um,“ segir Högni og tiltekur
nauðsyn þess að sporna við offitu
barna, draga úr sjúkdómum tengd-
um streitu og miðla upplýsingum
um forvarnir gegn krabbameini.
Dagskráin hefst með málþingi
um sögu holdsveiki hér á landi og
í Noregi. Einnig verður haldinn
fyrirlestur um ýmsa frumkvöðla
á sviði læknavísindanna, meðal
annars Jónas Sveinsson lækni á
Hvammstanga.
Að loknu málþingi og fyrirlestri
tekur við viðamikil fræðslu- og
samræðudagskrá undir yfirskrift-
inni Heilsa – ábyrgð okkar allra,
þar sem fjöldi lækna frá sjúkra-
húsunum, heilsugæslustöðvun-
um og læknamiðstöðvunum verð-
ur til staðar til að ræða við gesti
um ýmis mál er varða barnaheilsu,
unglingaheilsu, kvennaheilsu,
karlaheilsu og streitu. Þar verður
til dæmis Bangsaspítalinn, þang-
að geta börn komið með dúkkur í
læknisskoðun, og nokkrar lands-
liðskonur í fótbolta koma og gefa
eiginhandaráritanir.
karen@frettabladid.is
Læknar vilja fræða
almenning um helgina
Haldið er upp á 100 ára afmæli Læknafélags Reykjavíkur nú um helgina. Læknar bjóða fólki að koma á
afmælishátíðina og leita ráða en yfirskrift hátíðarinnar er Heilsa – ábyrgð okkar allra.
Högni Óskarsson læknir segir það ávallt hafa verið í fyrirrúmi í 100 ára sögu Læknafélags Reykjavíkur að miðla upplýsingum til
almennings svo hann geti sjálfur reynt að bæta heilsu sína. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Evrópumeistaramót fatlaðra í
sundi hófst í innilauginni í Laug-
ardal á fimmtudag og stendur til
25. október.
Á mótinu mun Ísland tefla fram
þrettán sundmönnum, fjórum
konum og níu körlum. Fimm sund-
menn koma úr flokki þroskaheftra
en níu úr flokki hreyfihamlaðra
eða blindra.
Um er að ræða stærsta verkefni
Íþróttasambands fatlaðra frá upp-
hafi og jafnframt stærsta alþjóð-
lega sundmót sem haldið hefur
verið á Íslandi. Þetta er auk þess
í fyrsta sinn síðan 2001 sem Evr-
ópumeistaramót á vegum Alþjóða-
ólympíuhreyfingu fatlaðra (IPC)
fer fram og í fyrsta sinn síðan árið
2000 sem þroskaheftir íþróttamenn
fá keppnisleyfi á vegum IPC.
Búist er við 415 sundmönnum og
um 250 aðstoðarmönnum á mótið
að ótöldum erlendum gestum á
borð við fjölmiðla, forsvarsmenn
íþróttahreyfinga fatlaðra í Evrópu
og fjölskyldumeðlimi keppenda.
„Mótið er því mjög gjaldeyrisskap-
andi,“ segir Ólafur Magnússon,
framkvæmdastjóri Íþróttasam-
bands fatlaðra. Hann bendir á að
Íþróttasamband fatlaðra hafi verið
fremst á meðal jafningja í réttlæt-
isbaráttu þroskaheftra íþrótta-
manna og að mikill áfangasigur
hafi verið unninn með framkvæmd
EM á Íslandi þar sem þroskaheftir
munu taka þátt.
Á meðal sundmanna íslenska
hópsins eru þau Eyþór Þrastarson
og Sonja Sigurðardóttir en bæði
kepptu þau fyrir Íslands hönd á
Ólympíumóti fatlaðra í Peking á
síðasta ári. Þá voru þau útnefnd
íþróttamaður og íþróttakona árs-
ins 2008 hjá Íþróttasambandi fatl-
aðra. - ve
Stærsta verkefni Íþróttafé-
lags fatlaðra frá upphafi
Íslendingar munu tefla fram þrettán sundmönnum á mótinu. MYND/ÍF
Sálrænn
stuðningur
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið
Sálrænn stuðningur þriðjudaginn 27. október kl. 17-21
í Hamraborg 11, 2 hæð.
Þátttökugjald er 5000 krónur.
Leiðbeinandi er Margrét Blöndal.
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 www.redcross.is/kopavogur opið virka daga kl. 10-16
Skráning er til 13. okt.
Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings
í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Þátttakendur læra að gera
sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks sem lendir í
sársaukafullum aðstæðum og hvernig þeir geti veitt stuðning
og umhyggju.
i r
Innifalið er þátttökuskírteini og námskeiðsgögn.
Frekari upplýsingar fást í síma 554 6626
með tölvupósti á kopavogur@redcross.is.
Skráning er til 22. október.
Sjálfboðaliðar Kópavogsdeildar fá ókeypis á námskeiðið og
félagsmenn sem greitt hafa félagsgjaldið fá 10% afslátt.