Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 59

Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 59
9 MENNING sem tengdist flóðavörnunum við Thames-fljót. Segja má að þetta nám hafi end- anlega sannfært Guðrúnu um þjóð- félagslegt hlutverk þrívíddarlist- ar og nauðsyn þess að beintengja opinber þrívíddarverk ævinlega við nánasta umhverfi sitt, form- rænt, hugmyndalega og sögu- lega. Hún er því ekki mikið fyrir að framleiða lítil þrívíddarverk til heimilisbrúks. Það gefur auga leið að sjálf laðast hún fyrst og fremst að verkum þeirra listamanna sem mest hafa látið að sér kveða á vettvangi svokallaðra „site-spec- ific“ þrívíddarverka: umhverfis- tengdum verkum Íslandsvinar- ins Richards Serra, makalausu „húsi“ Rachel Whiteread, stærri verkum Anish Kapoor og loks að þeim verkum Anthony Caro sem bera mestan keim af arkitektúr. Sjálfsagt mætti leiða að því líkur að nýlegt verk Guðrúnar, Skylight (þakgluggi/himinskin), samstæða átta hárra pýramída á hvolfi, sem yfirskyggja hvern áhorfanda sem freistar inngöngu í verkið, sé öðrum þræði eins konar hylling til Richards Serra, sem einmitt er þekktur fyrir að setja saman háreistar, níðþungar og þar með mátulega „hættulegar“ stálplötur. Japönsk áhrif Of langt mál væri að telja upp þau verkefni sem Guðrún hefur tek- ist á hendur síðan hún lauk námi árið 1995, jafnt í tengslum við sam- keppnir sem stærri sýningar. Af lýsingum og ljósmyndum að dæma er það þó tvennt sem einkennir öll þessi verkefni; eru þá væntan- lega eins konar höfundareinkenni hennar. Annars vegar er klárlega næmi hennar fyrir sérkennum og sögu þess umhverfis sem henni er uppálagt að vinna fyrir og hæfi- leiki hennar til að finna þessum sérkennum og sögu myndrænt mótvægi við hæfi. Í svokallaðri „Cleveland Lakes Bird Hide Comp- etition“ í Vestur-Englandi gerði Guðrún tillögu að þrívíddarverki í formi tveggja hæða byggingar, þar sem efniviðurinn var steinn, timbur og pressaður leir úr hér- aðinu. Hluti af þessari tillögu var svokallaður „serpentine-veggur“, ævagamalt enskt fyrirbæri, en breski listamaðurinn Andy Golds- worthy hefur einnig notað hann í að minnsta kosti einu verka sinna. En lausnir Guðrúnar eru ekki alltaf eftir bókinni, því í mörgum tilfellum lætur hún hið kunnuglega og framandlega slá neista hvort af öðru, „endurspegla fjarlæga sögu“, svo notuð séu orð hennar sjálfrar. Í grasagarði Háskólans í Leicester brá hún á það ráð að reisa eins konar „óvirkt“ japanskt tehús, en þá hafði hún orðið fyrir mikilli hugljómun í Japansferð- um með manni sínum árin 2003 og 2005. Japansáhrifin nýtti hún sér til enn frekari landvinninga; þau urðu kveikjan að sýningu að öðru „óvirku“ tehúsi í Galleríi Sæv- ars Karls árið 2005 og japönsku tegarðshliði – Amigasamon – í Abbey House Gardens í Malmes- bury árið 2007. Loks má geta um nýlegt (2008) þrívíddarverk Guð- rúnar úr tré fyrir japanskan garð í Bretlandi, gert í japönskum stíl með hangandi „Obi“-lindum. Raunar má segja að Guðrún hafi verið komin til Japans í huganum áður en hún kom þangað í eigin per- sónu, ef svo má segja, því áðurnefnt verðlaunaverk hennar Changes frá 1998, gert fyrir Greenham Comm- on-svæðið, er í eðli sínu risavaxið tilbrigði um japanskan origami- pappírsskúlptúr af herþotu. Þessi Japansáhrif tengjast öðru höfund- areinkenni Guðrúnar, sem vonandi skín í gegnum allt sem hér hefur verið sagt um hana, nefnilega við- varandi áhuga hennar á hreinum og klárum formum og hlutföllum, öllu því sem stuðlar að góðu innbyrð- is skipulagi, léttleika, jafnvægi og samspili, jafnt utan verks sem innan. Eins og margir vita er þetta einmitt einkenni á japanskri þrí- víddarmótun, eins og hún birtist til dæmis í verkum nútíma arkitekta þar í landi. Þessu fylgir sparneytni í efnisnotkun, en það er einnig við- horf sem stendur Guðrúnu nærri. Guðrún hefur verið búsett á Íslandi frá 2003 og verður fróðlegt að fylgjast með því hvort henni tekst að afla hugmyndum sínum um umhverfistengd þrívíddarverk stuðnings í íslensku myndlistarum- hverfi. Alltént hefur hún sambönd sín í Bretland upp á að hlaupa, en þar hefur hún áfram aðgang að vinnuaðstöðu og verkefnum. HVERFI Skilight, átta háir píramídar á hvolfi. Virker fr a dag 1 Fjerner træthed Giver ny energi Kender du fornemmelsen af at være træt på de forkerte tidspunkter? Så skal du prøve Ènaxin, der hver dag hjælper tusindvis af mennesker til at slippe af med trætheden og få ny energi. Ènaxin er et helt specielt naturpræparat, hvor virkningen kommer fra flere urter på en gang. Det giver en mere kraftfuld effekt, som du mærker allerede fra dag 1 - en rigtig god grund til at prøve Ènaxin. Ènaxin fås hos Matas, på apoteket, i helsekostforretninger og på www.mezina.dk. TR ÆT I UTIDE? ER TU SÍÞ REYTT(UR)? Þekkir þú tilfinninguna að vera þreytt(ur) á óheppilegum augnablikum? ÉNAXIN hjálpar þúsundum manna hvern dag að losna við þreytu, leiða og orkuleysi. ÉNAXIN er náttúrulegt efni unnið úr öflugum og heilnæmum jurtakjörnum sem gefur þér orku og kraft strax. Mjög áhrifarík mixtúra eða töflur sem virka frá fyrsta degi – prófaðu ÉNAXIN strax í dag. Þú færð ÉNAXIN í heilsubúðum, apótekum og heilsuhillunum í Fjarðarkaup og Hagkaup. ORKA BEINT FRÁ NÁTTÚRUNNI Virkar fr á fyrsta degi Losar þ ig við þr ytu ÉNAXIN er ein vinsælasta heilsuvaran á Norðurlöndunum og nú fáanleg á Íslandi. SELLÓFON Í ÚTFLUTNINGI Einleikur Bjarkar Jakobs- dóttur um húsmóðurina sem vefur sig sellófaninu heima til að ná af sér aukakílóunum er enn á ferð um heiminn: í síðustu viku var hann frumsýndur á Maxim-leikhúsinu í Stokkhólmi, þar á undan setti Ágústa Skúladóttir hann upp í Úkraínu. Verkið hefur nú verið sett upp þrisvar í Svíþjóð og þrisvar á Finnlandi. Tvær aðrar frumsýningar verða á verkinu í vetur en síðar tilkynnt hvar þær verða. Sellófon í Danmörku fyrir fimm árum. Yfirburðir Fréttablaðsins staðfestir! Fréttablaðið er með 106% meiri lestur en Morgunblaðið. Meðallestur á tölublað, höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009. Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup ótvírætt sýnir. Við erum auðvitað rífandi stolt af þessum góða árangri og bendum auglýsendum á að notfæra sér forskot okkar þegar þeir velja auglýsingamiðill. MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 72% 35% Hjálpaðu umhverfinu með Blaðberanum Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.