Fréttablaðið - 17.10.2009, Side 60
MENNING 10
G
allerí Fold opnar í dag
gáttir sínar og forvitn-
ir geta þar séð nokkur
af verkum íslensku
myndlistarkonunnar
Nínu Sæmundsson. Tilkynning
þess efnis að þar yrði uppi frum-
mynd af hinni frægu styttu Nínu,
Hafmeyjunni, vakti viðbrögð
leiðarahöfunda Moggans. Gamall
borgarstjórnarmeirihluti Sjálf-
stæðisflokksins setti verkið niður
í öðrum Tjarnarhólmanum fyrir
nærfellt sextíu árum við mikinn
kurr margra borgarbúa og lista-
manna. Svo sterkur var andróð-
ur gegn verkinu að á endanum
var stungið undir það dínamíti
og það sprengt í tætlur í látun-
um á gamlárskvöld. Sögusagn-
ir voru reyndar um það í bænum
að nálægt því hefðu komið aðilar
tengdir Mogganum. Löngu seinna
var það flutt hingað og sett niður
í Smáralind. Lífsferill Nínu hefur
lengi verið gáta: hún stökk fram
ung að aldri og varð þjóðfræg hér
á landi fyrir verk sín. Nína (1892-
1965) hóf undirbúningsnám fyrir
dönsku Akademíuna í Teknisk
skole haustið 1915 fyrir tilstuðlan
Holger Wederkinch. Hún stundaði
síðan nám við Akademíuna í fjög-
ur ár og tók þátt í sýningu í Char-
lottenborg 1918. Hún var fígúrat-
ífur listamaður á þeim tíma þegar
mannslíkaminn var að afmyndast
í skynjun listamanna sem lifðu
stríðið fyrra.
Nína fór til Bandaríkjanna 1926
til að sýna í Art Center í New York
og sneri ekki aftur heim fyrr
en 1955, þá 63 ára gömul. Þrátt
fyrir að Nína hafi búið lengst af
í Bandaríkjunum ásamt sambýl-
iskonu sinni hélt hún þó alltaf í
íslenskan ríkisborgararétt sinn.
Hún vann að list sinni vestur í
Hollywood og seldi verk sín þar
víða á þeim stað sem „hefur fram-
ar öðrum borgum veraldar gert
tilslökun við kröfulítinn með-
alsmekk að stóriðju“ eins og
Björn Th. Björnsson orð-
aði það í kafla sínum
um Nínu í Íslenskri
myndlist.
Meðal þekktustu
verka Nínu má
nefna verk-
ið Móðurást sem sett var upp í
Mæðragarðinum 1928. Móður-
ást var fyrsta styttan á opinber-
um vettvangi sem var sjálfstætt
listaverk en ekki minnisvarði. Þá
er verkið Afrekshugur sem stend-
ur yfir inngangi Waldorf Astoria-
hótelsins í New York einnig þekkt.
Það var sett upp eftir að Nína
vann samkeppni um gerð merkis
fyrir hótelið.
Umdeild
VERK NÍNU SÝND
Nína Sæmundsson að vinnu við Hafmeyjuna sína.
Höggmynd
Nínu, Dauði
Kleópötru, vakti
mikla athygli
1925.
Nína Sæmundsson
myndlistarmaður starf-
aði lengst af ævi sinni á
vesturströnd Bandaríkj-
anna. Framlag hennar
til íslenskrar myndlistar
var lengi umdeilt, en
nú verður hún metin
að verðleikum. Í Gallerí
Fold verður opnuð í dag
sýning á verkum hennar.
MYNDLIST PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
Ævisaga Nínu er brot af því undri sem
þjóðlíf okkar og örlög margra einstakl-
inga hafa verið á þessari öld . Hnútar sem virtust
óleysanlegir, röknuðu tíðum eins og af sjálfum
sér, draumar fátæks barns í hlaðvarpanum heima
rættust oft … Björn Th. Björnsson.
Bókmenntir ★★
Fölsk nóta
Ragnar Jónasson
Forvitnileg flétta en vantar dýpt
Ari Þór Arason er ungur háskólanemi sem missti for-
eldra sína áratug fyrr. Faðir hans og alnafni hvarf spor-
laust en móðir hans lést í bílslysi. Dag einn fær Ari
Þór kreditkortareikning frá Bretlandi. Í ljós kemur að
reikningurinn er í raun ætlaður föður hans. Á þessa
leið er söguþráður spennusögunnar Falskrar nótu,
fyrstu bókar Ragnars Jónassonar. Þetta er prýðilega
hugmynd að fléttu og Ragnar vinnur ágætlega með
hana; atburðarásin er sæmilega þétt og endahnútur-
inn er snyrtilega bundinn.
Akkilesarhæll bókarinnar er hins vegar stíllinn
og fábrotin persónusköpun. Textinn er á köflum
stirður og persónurnar flatar. Aðalpersónan er heldur
bragðdauf. Eins er með aukapersónur, engin þeirra er gædd eigindum
sem gera hana eftirtektarverða eða minnisstæðar. Betri persónusköpun
og meiri togstreita hefði ljáð bókinni meiri dýpt. Þetta hlýtur að einhverju
leyti að skrifast á útgefandann; hann hefði að ósekju mátt vera harðari við
höfundinn . Þetta er jú hans fyrsta bók. Fölsk nóta er auðlesin bók og ágæt
dægrardvöl sem slík. hann látið rækilega að sér kveða. Bergsteinn Sigurðsson
Niðurstaða: Ágæt dægradvöl en skilur ekki mikið eftir sig.