Fréttablaðið - 17.10.2009, Síða 61
Hvað gerist ef sólin rís á mann-
lausa jörð einn daginn og mann-
kynið í heild sinni er horfið en alls
staðar má sjá ummerki um það? Um
það fjallar bókin Mannlaus veröld
eftir bandaríska rithöfundinn Alan
Weisman. Í bókinni bregður Weis-
man ljósi á þá staðreynd að maður-
inn er ekki herra náttúrunnar held-
ur hluti, þó að hann hafi beygt hana
undir sig að einhverju leyti.
Mannlaus veröld er þörf áminn-
ing, kannski óþarflega þörf. Mann-
kindin hefur þá tilhneigingu að líta
á sig sem drottnara jarðarinnar.
Weisman fer yfir þróun manns-
ins, frá því að ein tegund mannapa
færði sig úr öryggi skógarins og út
á slétturnar, fór síðan að rækta jurt-
ir, halda húsdýr, kveikja eld, smíða
verkfæri og á endanum skýjakljúfa
og mengandi verksmiðjur.
Weisman tekst vel til í að setja
manninn í rétt samhengi. Text-
inn er lipur og rennur áfram, nán-
ast óaðfinnanlega þýddur af Ísak
Harðarsyni. Framvinda bókarinn-
ar er nánast eins og í spennusögu
og höfundi tekst að flétta mann inn
í sögu sem ætti þó flestum að vera
kunn. Hann kann þá list að búa
til stemmningu; lesandinn fylgir
honum inn í myrkviði forsögulegra
skóga, niður í lestargöng og upp á
risastórar brýr. Weisman dregur
mikinn fróðleik saman og persónu-
gerir hvern kafla með því að kynna
til sögunnar nýja rödd; skógfræð-
inga, sérfræðinga og heimamenn
á hverjum stað. Örstuttar per-
sónulýsingar höfundar um radd-
hljóm og háralit viðmælanda geta
verið þreytandi, en bókin verður
þó margradda fyrir vikið.
Stærsti kostur bókarinnar er
kannski um leið stærsti gall-
inn. Með því að sýna fram á að
ummerki um manninn hverfi á
skömmum tíma - nokkur hundruð
árum - tekst höfundi að taka mann-
inn af stalli sínum og draga hann
niður á jörðina, ef svo má segja.
Um leið ýtir hann hins vegar undir
þá hugmynd að gjörðir mannsins
skipti kannski ekki svo miklu máli
eftir allt, jörðin hristi og þurrki
óværuna af sér og haldi áfram eins
og ekkert hafi í skorist.
Weisman gerir hins vegar vel í
að vekja fólk til umhugsunar um
vandamálin sem steðja að jörð-
inni. Hvort allir skrifa undir eitt-
barn-á-fjölskyldu-lausnina sem
hann stingur upp á skal ósagt
látið. Bókin höfðar til ábyrgðar
mannsins og ekki veitir af. Hún er
því þörf lesning öllum sem byggja
þessa jörð. Kolbeinn Óttarsson Proppé
Niðurstaða: Þörf lesning öllum
Þörf áminning
Umræður um Evrópusambandið
fara einatt fram á sérstöku tungu-
máli þar sem gengur á með hugtök-
um og skammstöfunum sem fæstir
vita líklega hvað þýða nema þeir
hafi lagt sig eftir því að stúdera
uppbyggingu sambandsins ofan
í grunninn. Fréttir um rammaá-
ætlanir, framkvæmdastjórn og
leiðtogaráð, Lissabon-sáttmála,
kol og stál, Rómarsáttmála, EES
fara áreiðanlega fyrir ofan garð
og neðan hjá flestu fólki.
Oft heyrist kallað eftir því að
fræða þurfi almenning um Evr-
ópusambandið svo hann geti tekið
upplýsta afstöðu til spurningarinn-
ar um aðild. Bókin bætir úr þessu
og er upplýsingarit fyrir almenn-
ing, þannig að fólk viti hvaðan á
það stendur veðrið þegar ESB ber
á góma.
bókin nær þessum tilgangi
sínum með sóma, sem er auðvitað
hið þarfasta verk. Nú standa yfir
aðildarviðræður milli Íslands og
ESB. Það á að gera samning sem
almenningur þarf að kjósa um
og þess vegna er brýnt að koma
málinu upp úr skotgröfum þar
sem sannfærðir fylgjendur og
andstæðingur hafast við.
Eiríkur Bergmann, sem er einn
þekktasti Evrópusinni landsins,
er hins vegar ekki í neinum skot-
gröfum í þessari bók heldur í hlut-
verki alþýðufræðarans og tekur
sig ágætlega út sem slíkur. Stíll
bókarinnar er yfirleitt knappur og
skýr og er það nokkurs virði að hér
er sýnt fram á að hægt er að fjalla
um málefni tengd ESB á manna-
mál og á þann hátt að það nýtist
flestum þeim sem geta lesið sér til
gagns á annað borð.
Eiríkur Bergmann fer í gegn-
um grundvallaratriði sem tengjast
sögu Evrópusambandsins, mark-
miðum þess og formlegri upp-
byggingu fyrr og nú; og líka þeim
verkefnum sem aðildarþjóðirnar
sameinast um að fela sambandinu
að sinna. Tveir kaflar eru sérstak-
lega helgaðir samskiptum Íslands
og Evrópusambandsins, samningn-
um um Evrópska efnahagssvæðið
og hvaða niðurstöðu Íslendingar
geta búist við úr aðildarviðræðum.
Pétur Gunnarsson
Niðurstaða: Hið þarfasta verk.
Yfirþjóðlegur
fróðleikur
Bókmenntir ★★★★
Frá Evróvisjón til evru
Eiríkur Bergmann
Bókmenntir ★★★
Mannlaus veröld
Alan Weisman
Reykjavíkurborg og Hönnunarmiðstöð Íslands standa fyrir keppni
um hönnun minjagrips fyrir Reykjavík
honnunarmidstod.is
Keppnin er öllum opin og felst í því að hanna nýjan og einkennandi minjagrip fyrir
Reykjavík. Verðlaunatillagan skal endurspegla vörumerki Reykjavíkurborgar,
Reykjavík - Pure Energy. Vörumerkið vísar til þeirrar hreinu orku sem sem Reykjavík býr
yfir í fleiri en einni merkingu: í náttúrunni, vatninu, menningunni og sköpunarkraftinum.
Minjagripurinn verður einkennisgripur Reykjavíkur, seldur víða í borginni.
Verðlaunahafi hlýtur 600.000 kr. verðlaun.
Dómnefnd
Áslaug Friðriksdóttir, formaður Menningar og ferðamálaráðs
Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu
Guðrún Erla Geirsdóttir, Menningar og ferðamálaráð
Kristján Örn Kjartansson, arkitekt FAÍ
Tinna Gunnarsdóttir, vöruhönnuður
Hörður Lárusson, grafískur hönnuður FÍT
Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar
Keppnin hefst 14. október. Tillögum skal skila fyrir kl. 17.00, föstudaginn 15. febrúar
2010. Úrslit samkeppninnar verða kynnt á HönnunarMars 2010 en sýning á völdum
innsendingum fer fram á sama tíma.
KVIKMYNDATÓNLIST JOHN WILLIAMS
John Williams hefur samið tónlist við fl eiri
ódauðlegar bíómyndir en nokkur annar fyrr eða
síðar og hefur hann verið tilnefndur til alls
45 Óskarsverðlauna. Tónlist hans er oft samin
fyrir stóra og glæsilega sinfóníuhljómsveit þar
sem spennan nýtur sín til fulls.
Þetta eru tónleikar sem engir áhugamenn um
kvikmyndir og góða tónlist mega láta fram hjá
sér fara!
Tryggðu þér miða í síma 545 2500 eða
á www.sinfonia.is
Fim. 22.10. - Uppselt
Fös. 23.10. - Aukatónleikar
„Megi mátturinn vera með þér“
Obi-Wan Kenobi, Star Wars
Fös. 23.10.09 » 19:30