Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 68
17. október 2009 LAUGARDAGUR
Nefndu þrjá staði sem þú getur
heimsótt aftur og aftur.
Kristján Þórður: París. Aðal-
dalur í Suður-Þingeyjarsýslu.
Skaftafell.
Tinna: Hallormsstaður, Vest-
firðir og París.
Ertu orðin/orðinn það sem þú
ætlaðir að verða þegar þú yrðir
stór?
Kristján Þórður: Já. Það má
segja það.
Tinna: Nei, ég ætlaði að verða
búðarkona eða snyrtikona eins og
ég kallaði það. Kannski á ég það
enn eftir. Hvað veit maður?
En hvert er draumastarfið í
dag?
Kristján Þórður: Að stunda rit-
störf.
Tinna: Að vinna við leiklist, í
öllum mögulegum myndum.
Hvað veist þú, sem við hin
vitum ekki?
Kristján Þórður: Ýmislegt. Til
dæmis hvað áhorfendur hlæja
mikið á leiksýningunni „Fyrir
framan annað fólk“. Reyndar vita
þeir sem eru búnir að sjá sýning-
una það líka.
Tinna: Hvernig Hamarinn
endar.
Andi birtist og veitir þér þrjár
óskir. Hvað biður þú um?
Kristján Þórður: 1) Að hann
komi líka til fólks sem mér þykir
vænt um, jafn greiðvikinn. 2) Að
ég megi hvísla að honum einum
helstu óskinni minni. 3) Að hann
komi aftur og heimsæki mig eftir
ár, jafn bóngóður.
Tinna: Alheimsfrið að sjálf-
sögðu og réttlæti. Síðasta óskin
er leyndarmál.
Hver er mest framandi staður-
inn sem þú hefur komið til?
Kristján Þórður: Jamaíka.
Tinna: Hong Kong.
Hvert er þitt uppáhaldsleik-
verk?
Kristján Þórður: Listaverkið
eftir Yasmina Reza.
Tinna: Þessa dagana „Fyrir
framan annað fólk“ í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir?
Kristján Þórður: Eiga góða
stund með mínum nánustu.
Tinna: Get ekki gert upp á milli
þess að vinna við leiklist, ferð-
ast með manninum mínum og
njóta samvista með vinum og fjöl-
skyldu.
En það leiðinlegasta?
Kristján Þórður: Lesa fréttir
um hörmungar.
Tinna: Að efast.
Hver er leiðin út úr
kreppunni?
Kristján Þórður: Hugvit, dugn-
aður, þolgæði, nægjusemi og lífs-
gleði.
Tinna: Að læra af mistökum
fortíðarinnar.
Eftirlætislykt?
Kristján Þórður: Ilmurinn af
birkitrjám eftir rigningu.
Tinna: Lykt af arineldi.
Hver er fyndnasti ættingi
þinn?
Kristján Þórður: Litla dóttir
mín, Thea Snæfríður.
Tinna: Kristján Þórður. Ekki
spurning.
Hvað gerist að loknu þessu
jarðlífi?
Kristján Þórður: Hið óþekkta
tekur við.
Tinna: Ja, ef ég vissi það …
París í uppáhaldi
Kristján Þórður og Tinna Hrafnsbörn eru ekki bara systkini heldur líka
samstarfsfélagar og perluvinir. Tinna leikur eitt af aðalhlutverkunum í leik-
riti Kristjáns Þórðar, „Fyrir framan annað fólk“, sem sýnt er í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu og hefur fengið glimrandi viðtökur. Hólmfríður Helga Sigurðar-
dóttir tók systkinin í þriðju gráðu yfirheyrslu.
ÞÉTT FJÖLSKYLDUBÖND Tinna leikur annað tveggja hlutverka leikverksins „Fyrir framan annað fólk“ eftir bróður sinn, Kristján
Þórð, á móti manni sínum, Sveini Geirssyni. Verkinu leikstýrir svo eiginkona Kristjáns Þórðar, Melkorka Tekla Ólafsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÞR
IÐ
JA
G
R
Á
Ð
A
N
NAFN OG GÆLUNAFN: Tinna Hrafnsdóttir, stundum kölluð
Tinns.
LÍFSFERILLINN Í HNOTSKURN: Það er ekki áfangastaðurinn
heldur ferðalagið sem skiptir máli.
NAFN OG GÆLUNAFN: Kristján Þórður Hrafnsson, kallaður
KÞH.
LÍFSFERILLINN Í HNOTSKURN: Varð gagntekinn af heimi
skáldskaparins sem barn og hef verið það síðan.
Hetjuganga fjölskyldunnar
Komdu í miðbæjargöngu á morgun og kynnstu hetjunum
upp á nýtt. Lagt verður af stað frá styttunni af Jóni forseta
við Austurvöll kl. 14 á sunnudag.
Allir velkomnir!