Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 70
42 17. október 2009 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is Friðarbogin, fyrstu sam- tök sam- og tvíkyn- hneigðra í Færeyjum, voru stofnuð fyrir slétt- um sex árum. Yfirlýst markmið samtakanna er að vinna að bættum pólitískum-, menningar- legum og félagslegum réttindum sam- og tví- kynhneigðra Færeyinga. Samtökin stóðu fyrir fyrstu Gay Pride göng- unni í Færeyjum sumar- ið 2005. Þau eru einn- ig aðili að ANSO, sam- bandi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender nemenda meðal norrænna þjóða. Upphaflegt nafn samtakanna var Ælabog- in, sem er færeyska yfir regnboga. Nafninu var breytt eftir að hljóm- sveit sem ber sama nafn bað samtökin að breyta nafni sínu. Rasmus Rasmuss- en, tónlistar- og út- varpsmaður, var einn af stofnendum samtak- anna. Í viðtali við vef- síðu Samtakanna ’78 í nóvember árið 2006 sagði hann samtök- in hafa unnið gott starf í byrjun en stöðugleika vantaði í starfsemi samtakanna, meðal annars vegna þess að flestir stofnmeðlima hefðu flust til útlanda. ÞETTA GERÐIST: 17. OKTÓBER 2003 Færeysk samtök samkynhneigðra MERKISATBURÐIR 1091 Hvirfilbylur skellur á mið- borg Lundúna með þeim afleiðingum að tveir láta lífið. 1610 Loðvík XIII. er krýndur konungur Frakklands. 1755 Kötlugos hefst með miklu jökulhlaupi og öskufalli og er talið mesta ösku- gos í Kötlu á sögulegum tíma. Gosið stendur fram í febrúar. 1941 Ellefu bandarískir hermenn farast þegar þýskur kafbátur skýtur á bandarískan tund- urspilli vestur af Íslandi. Þetta eru fyrstu bandarísku hermennirnir sem farast í seinni heimsstyrjöld. 1987 Brasilísk hjón eru tekin föst í Hveragerði með 450 grömm af kókaíni. Þetta var mesta magn kóka- íns sem þá hafði fundist í einu lagi á Íslandi. EMINEM FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1972. „Ég er heimskur, ljótur, vit- laus og ég lykta illa. Var ég búinn að minnast á hversu heimskur ég er?“ Eminem er einn vinsælasti rappari sögunnar og hefur selt plötur í bílförmum um allan heim. Hann lék einnig aðalhlutverkið í kvikmyndinni 8 Mile árið 2002 og hlaut Ósk- arsverðlaunin fyrir lagið Lose Yourself úr myndinni. ZIGGY MAR- LEY tónlistar- maður er 41 árs í dag. ZAC EFRON leikari er 22 ára í dag. WYCLEF JEAN tónlist- armaður er 37 ára í dag. KIMI RÄIKKÖNEN ökuþór er þrítugur. Jóhann Pétur Sveinsson, lögfræðing- ur og formaður Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra, hefði orðið fimm- tugur á þessu ári. Af því tilefni býður stjórn Minningarsjóðs Jóhanns Péturs landsmönnum að fagna þessum tíma- mótum á afmælis- og styrktarkvöldi á Kringlukránni í kvöld. „Við stofnuðum minningarsjóðinn ári eftir lát Jóhanns Péturs með það að markmiði að halda minningu hans á lofti og til að halda áfram þeirri bar- áttu sem hann hóf undir orðunum Sam- félag fyrir alla,“ segir Harpa Cilia Ing- ólfsdóttir, ekkja Jóhanns Péturs, sem lést aðeins 35 ára gamall. Tilgangur sjóðsins er að styrkja hreyfihamlaða einstaklinga til náms með ýmsu móti og einnig að styrkja einstök málefni varðandi aðgengi fatlaðra. Jóhann Pétur Sveinsson var einn af merkari mönnum samtímans og braut- ryðjandi á sinn hátt. Hann fæddist 18. september 1959 og fyrsta hluta ævinn- ar dvaldi hann meira og minna á spítöl- um sökum barnaliðagigtar en stundaði nám og félagslíf engu að síður. Hann braust í gegnum menntakerfið og ruddi þannig úr vegi margvíslegum hindrun- um sem á þeim tíma komu í veg fyrir að hreyfihamlaðir einstaklingar hefðu aðgengi að ýmsum menntastofnunum. Hann lauk lagaprófi frá Háskóla Ís- lands og framhaldsprófi í félagsrétti frá Óslóarháskóla. Jóhann Pétur rak lögmannastofu á Seltjarnarnesi ásamt félaga sínum. Hann var formaður Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, og beitti sér kröftuglega í þágu mannréttinda. Þá barðist hann ötullega fyrir „þjóðfélagi án þröskulda“ og fékk meðal annars þá- verandi borgarstjóra, Davíð Oddsson, til þess að ferðast um í hjólastól dag- langt til þess að hann mætti kynnast því hvernig ferlimálum fatlaðra væri háttað í borginni. Hann var einnig harður í stjórnmálum og gegndi til að mynda formennsku í Framsóknarfélagi Seltjarnarness um árabil. Sem sönnum Skagfirðingi var honum söngur í blóð borinn og söng hann með Skagfirsku söngsveitinni um árabil og einnig með sönghópnum Veirunum. Til að halda minningu Jóhanns Pét- urs á lofti verður eins og áður sagði haldið styrktarkvöld í kvöld. „Við verð- um með hliðarsalinn á Kringlukránni og hefst skemmtunin klukkan níu. Þar munu einhverjir segja skemmtilegar sögur en annars snýst þetta bara um að koma saman og gleðjast í minningu Jóhanns Péturs,“ segir Harpa og tekur fram að allir séu velkomnir, enginn að- gangseyrir sé rukkaður en fólki sé gef- inn kostur á að styrkja minningarsjóð- inn. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður á Alþjóðadegi fatlaðra 3. desember 2009. Er það ósk Hörpu og annarra stofnenda sjóðsins að mögulegt verði að veita styrki á hverju ári. Þeim sem vilja styrkja sjóðinn er einnig bent á banka- reikning nr. 342-18-640098. Kennitala er 570269-2169. solveig@frettabladid.is MINNINGARSJÓÐUR JÓHANNS PÉTURS SVEINSSONAR: HELDUR STYRKTARKVÖLD Halda áfram baráttu Jóhanns MINNAST JÓHANNS Harpa Cilia, ekkja Jóhanns, og Jóhann Pétur yngri vilja halda minningu Jóhanns Péturs eldri á lofti og halda áfram baráttu hans fyrir bættri stöðu fatlaðra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON AFMÆLI Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Elskulegur faðir minn, bróðir okkar og mágur, Guðjón Sigurðsson Eskihlíð 26, Reykjavík, er lést þriðjudaginn 6. október sl. verður jarðsunginn mánudaginn 19. október frá Garðakirkju, Álftanesi. Anna Björg Guðjónsdóttir Rafn Sigurðsson Guðrún Nielsen Jónfríður Sigurðardóttir Ólafur Nielsen Guðmunda Lilja Sigvaldadóttir Helga Nielsen og aðrir aðstandendur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ævar Sigfússon fv. verkstjóri og fiskmatsmaður frá Bergholti Raufarhöfn, lést á líknardeild Landspítalans 10. október. Útförin fer fram frá Garðakirkju mánudaginn 19. október kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á LAUF, Landssamtök áhugafólks um flogaveiki. Linda Björk Ævarsdóttir Kristján Steinar Kristjánsson Þórunn Elfa Ævarsdóttir Björn Sigurðsson og barnabörn. Hjördís Geirs söngkona heldur tvenna tónleika í Salnum í Kópavogi á morg- un í tilefni af fimmtíu ára söngafmæli sínu. Þar verður farið yfir söng- feril Hjördísar undanfarin fimmtíu ár. Henni til halds og trausts verða meðal ann- ars Hera Björk dóttir Hjör- dísar, Friðrik Ómar, Labbi í Mánum, systur Hjördísar, Brynhildur og Úlfhildur, og fleiri. Hljómsveitarstjóri verður Pálmi Sigurhjartar- son, sem mætir með vaska sveit sér við hlið. Hjördís hefur gert víðreist á árinu og meðal annars haldið tónleika á Selfossi og nágrenni, Drangsnesi, Laug- um í Reykjadal og í Ráðhús- inu í Reykjavík. Hápunktur- inn eru tónleikar sem Hjör- dís heldur í Salnum. Uppselt er á tónleikana á morgun klukkan 20. Sér- stakir aukatónleikar verða á morgun klukkan 16. Fagnar 50 ára söngafmæli Í HÁLFA HÖLD Hjördís Geirs fagn- ar fimmtíu ára söngafmæli með tvennum tónleikum í Salnum á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.