Fréttablaðið - 17.10.2009, Síða 76

Fréttablaðið - 17.10.2009, Síða 76
48 17. október 2009 LAUGARDAGUR OKKUR LANGAR Í … utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson Það er aftur farið að skína í hold í tískuheiminum. Fyrir haust og vetur 2009 sýndu margir hönn- uðir svart siffon sem leyfir holdi að gægjast í gegn á kynþokkafull- an en ekki of áberandi hátt. Ric- ardo Tisci hjá Givenchy og Stef- ano Pilati hjá Yves Saint Laurent notuðu mikið gegnsæjar blússur með síðum pilsum eða buxum og Roberto Cavalli tók þetta alla leið með alveg gegnsæjum síðkjól sem skildi lítið eftir fyrir ímyndunar- aflið. - amb GEGNSÆTT OG KYNÞOKKAFULLT SVART, SEXÍ SIFFON SEXÍ Gegnsæ blússa með fjöðrum við klassískar svartar buxur frá Givenchy. SÍTT Alveg gegnsær svartur síðkjóll frá Roberto Cavalli. BLÚNDA Hvítur gegnsær kjóll með axla- púðum frá Givenchy. GAMALDAGS Mörg lög af svörtu gegnsæju efni við leggings frá Roberto Cavalli. BERT Fleginn svartur jakki með brjóstahaldara undir frá Givenchy. SEIÐANDI Gegnsæ blússa með svörtum brjóstahaldara undir og leðurhönskum við frá Givenchy. GEGNSÆTT Fallegur kjóll með gegnsærri blússu frá Yves Saint Laurent. > REKIN FYRIR AÐ VERA OF FEIT Tölvuunnar myndir af fyrirsætunni Filippu Ham- ilton í auglýsingu fyrir Ralph Lauren hafa vakið töluverða athygli vestanhafs. Ljósmyndin lætur fyrirsætuna líta út fyrir að vera með mjaðmir sem eru grennri en þvermál höfuðsins. Filippa hefur sagt í fjölmiðlum að hún hafi verið rekin frá Ralph Lauren fyrir að vera feit en þó myndi hún teljast hraustleg og grönn kona í hinum raunverulega heimi. Þessi dá sam- lega ullarkápa lífgar upp á veturinn og fæst í Fabelhaft, Laugavegi. Falleg og drottningarleg handtaska frá Vivienne Westwood. Fæst í KronKron. Flottara augnskuggabox höfum við sjaldan séð. Fullkomið fyrir partíhelgina. Frá Bobbi Brown. Á hverju hausti er einn sjónvarpsþáttur sem allir verða að horfa á og í þetta sinn virðist það vera vampíruþátturinn True Blood sem hefur slegið rækilega í gegn. Þátturinn sá fjallar um vampírur í suðurríkjum Bandaríkja og er stútfullur af ofbeldi, kynlífi og sukki. Þar sem ég hef ætíð heillast af vampírusögum allt frá gömlu þöglu vampírumyndunum með Bela Lugosi upp til vampíruskáldsagna Anne Rice hef ég reynt að sökkva mér niður í þessa bandarísku þætti án árangurs. Mér finnst þeir bara frekar niðrandi fyrir vampírur. Það er eitthvað við þá sem minnir mig á hina hræðilegu Twi- light-mynd þegar allt sem tengist vampírum virðist vera stillt inn á bandaríska „emo“- unglinga. Það vantar allt „goth“ í True Blood, allan Bela Lugosi gotneskan hrylling og alla rómantíkina um hina eilífu ást. Vampírur nefnilega stunda ekki kynlíf og eru aldrei aumingjar á því. Þær eru töff og kynþokka- fullar og fullar af klassa. Ef þið viljið sjá alvöru, svalar vampírur, horfið þá á The Hunger með Catherine Deneuve og David Bowie eða Drakúlumynd Coppola. En það má áætla að mikið vampíru- æði sé hafið á ný enda fullt af kvikmyndum um vampírur á leiðinni. Það má eflaust draga margar samfélagslegar ályktanir af þessu, til dæmis að unglingar séu þunglyndir og sæki í að óhlýðnast foreldrum sínum, vera fúll á móti, drekka áfengi, taka eiturlyf og stunda kynlíf. Eflaust kemur vampíruútlitið eitthvað fram í tískuheiminum á næstu misserum og þá myndi ég forðast að taka True Blood og ömurlega „emo-gothara“ sem fyrirmynd. Best er þá að ímynda sér að maður búi í London sirka 1890 með ívafi af rokki sjöunda áratugarins. Þessi stíll myndi blanda saman þröngum svörtum fatnaði, svörtum ælæner og smá blúndum úr Fríðu frænku eða svipaðri verslun. Ímyndið ykkur Aubrey Beardsley eða Edgar Allan Poe ef þeir hefðu hlustað á Bauhaus. Svartur varalitur og litað hár held ég að sé dálítið of mikið af því góða því að alvöru „goth“- útlitið svokallaða dó eiginlega síðastliðið haust. Ég vona að minnsta kosti að alvöruvampírur eigi sér viðreisnar von eftir True Blood. Vertu alvöruvampíra í vetur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.