Fréttablaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 78
50 17. október 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Tónlistarkonurnar Lára
Rúnarsdóttir og Hafdís
Huld gáfu báðar út nýjar
plötur fyrir skömmu. Þessir
ólíku persónuleikar hittust í
fyrsta sinn í viðtalsherbergi
Fréttablaðsins og fór vel á
með þeim.
Plata Láru Rúnarsdóttur heitir
Surprise og er sú þriðja í röðinni
úr hennar herbúðum. Plata Haf-
dísar er aftur á móti hennar önnur
afurð. Nefnist hún Synchronised
Swimmers, þar sem bæði strákar
og ofurhetjur koma við sögu.
Þrjú ár eru liðin síðan síðasta
plata Láru, Þögn, kom út. Síðan þá
hefur margt á daga hennar drif-
ið. Fyrst fluttist hún til Madríd
á Spáni sem skiptinemi þegar
hún var í kennaranámi. Tón-
listin var að sjálfsögðu ekki
langt undan á hinum suðrænu
slóðum. „Ég tók nokkur gigg og
það var mjög gaman,“ segir Lára,
róleg og yfirveguð. „Þar fær
maður borgað fyrir að spila og það
hjálpaði mjög mikið við að borga
af námsláninu. Ætli það hafi ekki
verið fyrsta borgaða giggið mitt,“
bætir hún við og hlær.
Minni dramatík en áður
Eftir að hún kom heim eignað-
ist hún dótturina Emblu Guðríði
með kærasta sínum, trommar-
anum Arnari Þór Gíslasyni, sem
spilar einmitt á nýju plötunni.
Eins og gefur að skilja hafði dótt-
irin áhrif á tónlistarsköpun Láru,
enda er platan tileinkuð frumburð-
inum. „Hún er svolítið glaðlegri og
poppaðri. Þetta fylgir því hvernig
manni líður,“ segir hún um Sur-
prise. Hún bætir við að dramatíkin
sé minni á nýju plötunni en þeim
fyrri. „Ég er ekki í neinu stráka-
rugli lengur. Ég er búin að velja
minn mann og hann er kominn til
að vera.“
Eitt lag á plötunni, Crystals,
samdi hún fyrir afa sinn þegar
hann varð sjötugur en textanum
var breytt fyrir útgáfuna sem er á
plötunni. Nokkru síðar samdi hún
lag um ömmu sína en það syng-
ur hún eingöngu með hljómsveit-
inni Lifun. „Þau eiga þetta skilið,“
segir hún og greinilegt að henni
þykir mjög vænt um afa sinn og
ömmu.
Ekki eins krúttleg
Lára mun hita upp fyrir Hafdísi
Huld á útgáfutónleikum hennar
á Rósenberg annað kvöld. „Mér
finnst hún flott. Hún er með
skemmtilegan húmor og ég hlust-
aði mikið á fyrstu plötuna hennar,“
segir hún um Hafdísi, sem gengur
skömmu síðar inn í herbergið. Haf-
dís er mun opnari persónuleiki en
Lára og er afar prakkaraleg týpa.
Hún segir að fyrsta platan, Dirty
Paper Cup, hafi verið mjög óraf-
mögnuð og töluvert öðruvísi en sú
nýja. „Á þessari plötu fór ég með
band í gamla hlöðu í Scarborough
og við vorum þar í viku. Þar voru
hænur á vappi og mjög kósý en
ógeðslega kalt,“ segir Hafdís, sem
lagði áherslu á að búa til íslenska
stemningu við upptökurnar. Haf-
dís hefur stundum verið nefnd í
sömu andrá og krúttkynslóðin.
Hún viðurkennir að fyrsta plat-
an hennar hafi verið í þeim anda.
„Það var allt krúttlegt á fyrstu
plötunni en þetta er aðeins full-
orðinslegra núna.“ Breskur kær-
asti hennar, Alisdair Wright spilar
á plötunni, rétt eins og Arnar Þór
gerir á plötu Láru. Alistair semur
einnig með henni nokkur lög. „Við
kynntumst í tónlistarnámi í Lond-
on og hann var í framhaldsnámi í
píanóleik,“ segir hún og er augljós-
lega yfir sig ástfangin.
Köngulóarmaður handtekinn
Vinsælasta lag Syncronized
Swimmers til þessa, Könguló,
hefur vakið mikla athygli enda var
það samið um franska „köngulóar-
manninn“ Alain Robert sem klíf-
ur háhýsi eins og að drekka vatn.
„Það er búið að handtaka hann í
Malasíu,“ segir Hafdís afar ósátt,
enda er Alain orðinn góður vinur
hennar. Er hún meira að segja
með leyninúmerið hans í síman-
um sínum. Hún játar að vinsældir
Köngulóar hafi hjálpað sér mikið
í útlöndum. „Ég er búin að fara í
fimmtán mismunandi útvarpsvið-
töl og fæ alltaf að tala um könguló-
armanninn á milli þess sem krepp-
an kemst að.“
Útgáfutónleikar Hafdísar verða
tvennir. Fyrst á Græna hattinum á
Akureyri í kvöld og síðan á Rósen-
berg á morgun. Útgáfutónleikar
Láru verða í byrjun nóvember og
næsta sumar ætlar hún síðan í tón-
leikaferð um landið.
freyr@frettabladid.is
MEIRI ÁST OG MINNA DRAMA
Mad Men-leikkonan January
Jones var kærasta leikarans Ash-
tons Kutcher á árunum 1998 til
2001. Hún var þá fyrrverandi fyr-
irsæta sem hafði ákveðið að reyna
fyrir sér sem leikkona. Í nýjasta
hefti tímaritsins GQ segir Jones
að hún eigi leiklistarferil sinn
Kutcher að þakka. „Hann studdi
ekki við bakið á mér. Hann sagði
við mig: „Ég held að þú eigir ekki
eftir að verða góð leikkona.“ Núna
getur hann aðeins sagt góða hluti
um leik minn, ef hann hefur á
annað borð eitthvað að
segja. Ég ætti að þakka
honum af því að um
leið og einhver segir
við mig að ég geti
ekki gert eitthvað, þá
fyrst verð ég ákveð-
in í að láta það ræt-
ast.“ Jones hefur
verið tilnefnd til
Golden Globe-
verðlaunanna
fyrir leik sinn í
Mad Men.
Þakkar Ash-
ton fyrir
Leikarinn Robert Pattinson
segist eiga erfitt með að finna
stúlku sem vilji fara með honum
á stefnumót þrátt fyrir vinsæld-
ir sínar meðal ungra kvenna. „Ef
ég á að vera alveg hreinskilinn
þá skil ég eiginlega ekki hvað er í
gangi. Í gær fékk ég mér hádegis-
mat og allt í einu voru um fjögur
hundruð manns fyrir utan veit-
ingastaðinn. Þetta er svo klikkað
og svona er þetta alla daga … ég
bara get ekki tekið þetta alvar-
lega. Stúlkurnar kalla á Edward,
vampíruna úr Twilight, en nafnið
mitt heyrist ekki. Ég hef enn ekki
fundið stúlku sem vill fara með
mér á stefnumót,“ segir leikar-
inn ungi.
Kemst ekki á
stefnumót
TVÆR TÓNLISTARKONUR Hafdís Huld og Lára Rúnarsdóttir hafa gefið út nýjar plötur
sem heita Surprise og Synchronised Swimmers. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
>SELUR KASTALANA
Leikarinn Nicolas Cage hefur sett
kastalann sinn á Bretlandseyjum í
sölu. Kappinn þarf að losa sig
við skuldir upp á 6,6 milljón-
ir dollara, eða rúmlega 800
milljónir íslenskar krónur. Cage
er þegar búinn að selja einn
kastala á árinu og hann er að
reyna að selja villurnar sínar í
Hollywood og New Orleans.
Galgopabandið Hvanndalsbræður var stofnað árið 2002.
Rögnvaldur „gáfaði“ Rögnvaldsson var ávallt í fararbroddi
og þegar hann yfirgaf bandið í vor áttu margir von á að sveit-
in væri í andaslitrunum. Það var nú aldeilis ekki. Bandið hélt
áfram án Rögnvaldar og hefur aldrei verið eins vinsælt og í
dag. Lögin „La-la-lagið“ og „Vinkona“ hafa flogið upp flesta
vinsældalista landsins. „Þetta er eiginlega bara alveg ótrú-
legt. Það er bara alveg brjálað að gera hjá okkur. Eins og
Röggi segir sjálfur þá var hann ekki fyrr búinn að pakka
niður gítarnum að það fór eitthvað að gerast hjá bandinu,“
segir Valur Hvanndal og bætir við: „Við lítum nú reyndar
þannig á að Röggi sé bara í pásu. Að ná áttum og komi svo
tvíefldur til baka. Hann kom reyndar með okkur um síð-
ustu helgi þegar við vorum að spila á Selfossi og í Keflavík.
Hann var í miðasölunni og fannst það æðislegt.“
Valur segir „eitt smellið jólalag“ á leiðinni og svo ný plata
næsta vor. Hljómsveitin er spiluð í spað um þessar mund-
ir á bæði FM, Kananum og Bylgjunni og strákarnir skilja
það ekki. „Einhvern tímann hefði það ekki verið fræðilegur
möguleiki að við værum spilaðir á þessum stöðvum, en tím-
arnir eru greinilega breyttir og mennirnir með,“ segir Valur.
„Við höfum hingað til plumað okkur ágætlega bara á Rás 2.
Okkur finnst það aðallega bara fyndið að við séum spilaðir á
FM957!“
Hvanndalsbræður halda uppi stuðinu frá kl. 22 í kvöld á
Kaffi Rósenberg. - drg
Fyndið að vera spilaðir á FM
VINSÆLIR! Hvanndalsbræður: Vilmar, Valur, Sumarliði, Pétur og Rögnvald-
ur.
Miðasala á salurinn.is og midi.is. Einnig er hægt að kaupa eða panta miða í SALNUM
virka daga milli kl. 14 og 18 og fram að tónleikum á tónleikadögum.
Jón Ólafsson ásamt góðum gestum í Salnum,
Kópavogi. Spjallað og spilað á sviðinu.
Af fingrum fram
MIÐASALA • 5700 400
29.10 Diddú
12.11 Magnús Kjartansson
26.11 Stefán Hilmarsson (örfá sæti laus)
•
S
ÍA
•
9
17
29