Fréttablaðið - 17.10.2009, Side 80
52 17. október 2009 LAUGARDAGUR
Skjár einn hyggst loka dag-
skrá sinni hinn 15. nóvem-
ber. Áskriftargjald verður
innheimt hálfum mánuði
síðar, eða 1. desember.
Sjónvarpsstjóri stöðvarinn-
ar segir þetta vera algjört
neyðarúrræði til að halda
stöðinni gangandi.
„Í mínum huga er það tvennt sem
maður getur gert, svekkt sig yfir
því hvernig aðstæðurnar eru eða
tekið til endurskoðunar allt sem
maður hefur sagt að maður myndi
aldrei gera. Við gerðum það síðar-
nefnda,“ segir Sigríður Margrét
Oddsdóttir, framkvæmdastjóri
Skjásmiðla. Í gær var tilkynnt að
Skjár einn hygðist hætta að vera
ókeypis eftir tíu slík ár í loftinu.
Áskriftargjald verður rukkað frá
1. desember og verður það 2.200
krónur. Sjónvarpsdagskránni verð-
ur hins vegar læst hinn 15. nóv-
ember en þeir sem verða búnir að
skrá sig fyrir áskrift fyrir þann
tíma geta horft á sjónvarpsstöð-
ina endurgjaldslaust. Opinn gluggi
verður hins vegar milli hálf sjö og
átta á kvöldin.
Sigríður kveðst ekki vilja rýna
í baksýnisgluggana og reyna að
kryfja til mergjar hvað hefði getað
forðað sjónvarpsstöðinni frá þessu
neyðarúrræði. En bendir engu
síður á að nú sé ár liðið frá hruni
og enn hafi ekki neinar takmark-
anir verið settar á auglýsingatekj-
ur Ríkissjónvarpsins. Eitthvað
sem hefði gjörbreytt umhverfinu.
„Hefði það getað forðað okkur frá
þessu? Ég veit það ekki. Við vitum
að allir stjórnmálaflokkar vilja
leggja þessu máli lið en þeir eru
bara ekki í aðstöðu til þess núna.
Þetta er spurning sem við höfum
reynt að svara í heilt ár en núna
urðum við bara að grípa sjálf til
aðgerða í stað þess að bíða eftir
ákvörðunum stjórnmálamann-
anna. Ég held að það sé einfaldlega
óraunhæft að ætlast til þess að
þessu verði breytt á næstunni.“
Sigríður er ekki reiðubúin til
að gefa upp hversu marga áskrif-
endur Skjár einn þarf til að halda
stöðinni gangandi. „En það segir
sig sjálft, að við erum með lágt
verð og viljum fá sem flesta. Við
reiknum síðan fastlega með því að
auglýsingamagnið muni minnka í
samræmi við áskriftirnar.“
Sigríður fullyrðir að Skjár einn
hefði lifað af í sinni gömlu mynd
ef ekki hefði orðið bankahrunið,
ókeypis sjónvarpsstöð sé vel raun-
hæfur möguleiki. „Við værum að
skila hagnaði núna. Staðan er bara
þannig að efnisgjöldin hækkuðu
um hundrað prósent, auglýsing-
arnar drógust saman um helming
og RÚV er enn á auglýsingamark-
aði. Þetta hefði bara verið dauða-
stríð ef við hefðum haldið áfram á
sömu braut.“
freyrgigja@frettabladid.is
Neyðarráðstöfun
hjá Skjá einum
DAUÐASTRÍÐ Sigríður Margrét Oddsdótt-
ir segir að það hefði verið dauðastríð ef
Skjár einn hefði haldið áfram að vera
ókeypis í loftinu.
Mikill áhugi var fyrir tónleik-
um norska dúósins Kings of Con-
venience sem voru haldnir í Frí-
kirkjunni í gærkvöldi á vegum
Iceland Airwaves. Löng biðröð
var eftir miðum á tónleikana
fyrir utan Skífuna á Laugavegin-
um og þurftu um hundrað manns
frá að hverfa. „Erlend Øye kom á
sínum tíma hingað með Whitest
Boy Alive. Hann þekkir því hátíð-
ina og varð ástfanginn af henni,“
segir Róbert Aron Magnússon
hjá Airwaves. „Hann óskaði eftir
því að spila hvergi annars staðar
en í Fríkirkjunni eftir að hann sá
gigg þar með Jóhanni Jóhannssyni
árið 2006.“ Enginn annar og fjöl-
mennari tónleikastaður kom því til
greina í þetta sinn en Fríkirkjan
sem tekur um 450 manns í sæti.
- fb
Löng biðröð á Kings
LÖNG BIÐRÖÐ Mikill áhugi var fyrir tón-
leikum norsku hljómsveitarinnar Kings
of Convenience. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON