Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 81
LAUGARDAGUR 17. október 2009 53
Rokksveitin Vonbrigði heldur
sína fyrstu tónleika í um eitt ár
á skemmtistaðnum Amsterdam í
kvöld. Um nokkurs konar útgáfu-
tónleika er að ræða vegna plöt-
unnar Tapír sem hljómsveitin
gaf út í vor. Hún var fyrsta plata
Vonbrigða síðan Eðli annarra
kom út en á henni voru lög með
gömlu efni frá árunum 1981 til
1985. Hljómsveitin sló í gegn með
laginu Ó Reykjavík, sem hljóm-
aði í myndinni Rokk í Reykjavík,
og hefur allar götur síðan haldið
sama fjögurra manna kjarnan-
um. Frítt verður inn á tónleik-
ana í kvöld og mun hljómsveitin
Dýrðin hita upp.
Vonbrigði
með tónleika
VONBRIGÐI Rokksveitin Vonbrigði
heldur sína fyrstu tónleika í langan tíma
í kvöld.
Íslensku dauðarokkararn-
ir í Beneath hafa gert samning
við plötufyrirtækið Mordbrann
Musikk í Kaliforníu. Samningur-
inn kveður á um útgáfu á fyrstu
þröngskífu sveitarinnar, sem
nefnist Hollow Empty Void. Hún
inniheldur sex lög, þar á meðal
tvö aukalög sem voru tekin upp á
tíu ára afmælistónleikum Dord-
inguls í vor. Beneath hefur getið
sér gott orð að undanförnu. Hún
hitaði upp fyrir The Black Dahlia
Murder á sínum fyrstu tónleikum
í janúar og spilaði fyrst íslenskra
hljómsveita á hinni þekktu þunga-
rokks hátíð Wacken Open Air í
Þýskalandi í ágúst.
Bandarískur
samningur
BENEATH Hljómsveitin Beneath hefur
gert samning við plötufyrirtækið Mord-
brann Musikk.
Vinurinn Courteney Cox segist
þurfa að hafa hraðann á vilji hún
annað barn, en hún er nú 45 ára.
„Við erum ekki byrjuð að reyna,
en við vitum að við þurfum að
hafa hraðann á. Ég er
tilbúin til að verða
móðir á ný, en
aðeins af því að ég
veit að klukkan
tifar. Ef ég væri
tíu árum yngri
mundi ég bíða í
eitt ár til
viðbótar.
Mér fynd-
ist fínt að
það væri
smá ald-
ursmun-
ur á milli
barn-
anna því
þá gæti
Coco
hjálpað
mér með
næsta
barn.
Að eiga
eitt er erfitt. Að eiga tvö börn er
örugglega enn erfiðara,“ sagði
leikkonan, en hún og eiginmað-
ur hennar, David Arquette, eiga
saman dótturna Coco Riley sem er
fædd árið 2004.
Vill annað
barn bráðum
Útgáfuhóf var haldið í Eymunds-
son Skólavörðustíg til að fagna
útkomu bókarinnar Samtöl
Matthíasar Johannessen.
Matthías Johannessen skrifaði
samtöl við merka Íslendinga og
valinkunna erlenda aðila er hann
starfaði sem blaðamaður og rit-
stjóri Morgunblaðsins. Almenna
bókafélagið gaf viðtölin út í fimm
viðtalsbókum en þær eru löngu
uppseldar.
Nú hefur Þröstur Helgason
valið áhugaverðustu samtölin
úr öllum bókunum og bætt fleiri
samtölum við til að hafa í þessari
bók, auk þess að skrifa inngang
að samtölunum.
Í hófinu, þar sem margir góðir
gestir litu við, ræddi Þröstur
stuttlega um Matthías og sam-
tölin.
Samtöl Matthíasar gefin út
Í LOPAPEYSU Matthías Johannessen var þjóðlegur í lopapeysunni í útgáfuhófinu. Hér
ræðir hann við Agnesi Bragadóttur, blaðamann Morgunblaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GÓÐIR GESTIR Pálína Magnúsdóttir,
Ingólfur Kristjánsson og Ragnar Steinars-
son voru á meðal gesta í hófinu.