Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 88
60 17. október 2009 LAUGARDAGUR
Iceland Express-deild karla:
Keflavík-Breiðablik 96-74
Stjarnan-Fjölnir 90-67
Stig Stjörnunnar: Jovan Zdravevski 30, Fannar
Helgason 24, Justin Shouse 18, Kjartan Kjartans-
son 8, Birgir Pétursson 5, Birkir Guðlaugsson 2,
Ólafur Ingvason 2, Magnús Helgason 1.
Stig Fjölnis: Magni Hafsteinsson 13, Ægir
Steinarsson 12, Tómas Tómasson 12, Chris Smith
10, Árni Jónsson 6, Arnþór Guðmundsson 5,
Garðar SVeinbjörnsson 5, Sverrir Karlsson 2, Níels
Dungal 2.
Tindastóll-Grindavík 64-95
Stig Tindastóls: Svavar Birgisson 20, Friðrik
Hreinsson 11, Michael Giovacchini 10, Helgi
Margeirsson 8, Helgi Viggósson 5, Sveinbjörn
Skúlason 4, Axel Kárason 3, Hreinn Birgisson 2,
Einar Einarsson 1.
Stig Grindavíkur: Brenton Birmingham 18, Ama-
ani Bin Danish 18, Páll Axel Vilbergsson 17, Arnar
Freyr Jónsson 10, Ómar Sævarsson 10, Ármann
Vilbergsson 9, Björn Steinar Brynjólfsson 5,
Ólafur Ólafsson 4, Þorleifur Ólafsson 2, Þorsteinn
Finnbogason 2.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI KR er án markmanns í
kjölfar þess að Stefán Logi Magn-
ússon var seldur til norska úrvals-
deildarliðsins Lilleström sem hann
samdi við til ársins 2013. Stefán
hefur verið í láni hjá Lilleström
síðustu mánuði og slegið í gegn.
Svo vel hefur Stefán staðið sig
að norska liðið var til í að greiða
meira fyrir hann en gengur og ger-
ist með markverði á Norðurlönd-
unum.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Fréttablaðsins er salan á
Stefáni Loga sú stærsta í sögu
KR og upphæðin yfir 30 milljón-
ir íslenskra króna. Gengið hjálpar
þarna vissulega til en þrátt fyrir
það er Stefán Logi að fara fyrir
talsvert hærri upphæð en gengur
og gerist í sölu markvarða á Norð-
urlöndunum.
„Ég vil ekkert tjá mig um verðið
á Stefáni. Það er bara ánægjulegt
að málinu sé lokið,“ sagði Krist-
inn Kjærnested, formaður knatt-
spyrnudeildar KR, en það er ljóst
að KR-ingar þurfa að finna arftaka
Stefáns Loga.
KR var með Norðmanninn
Andre Hansen að láni frá Lillestr-
öm en lánssamningur hans er á
enda runninn. KR hefur lýst yfir
áhuga á að fá Andre aftur en allt
er óráðið í þeim efnum.
„Við höfum verið að einbeita
okkur að því að klára söluna á
Stefáni áður en við tækjum næstu
skref í málinu. Auðvitað vantar
okkur markvörð og Andre stóð sig
vel og kemur því til greina. Við
verðum bara að bíða og sjá hvað
gerist með það mál en ef það geng-
ur ekki leitum við bara eitthvert
annað eftir nýjum markverði,“
sagði Kristinn.
Andre á ár eftir af samningi
sínum við Lilleström og í kjölfar
kaupanna á Stefáni Loga stefnir
ekki í að hann sé að fara að spila
mikið hjá félaginu.
Stefán Logi var hæstánægð-
ur þegar Fréttablaðið náði tali af
honum í gær enda hefur það tekið
langan tíma að landa þessari sölu,
sem hefur verið í kortunum svo
mánuðum skiptir.
„Ég er mjög stoltur og glaður
enda er þetta mikill áfangi fyrir
mig. Ég hef stefnt að þessu í nokk-
urn tíma en það hefur ekki alveg
gengið. KR setti upp svolítið hátt
verð á mig en ég var ekkert endi-
lega ósáttur við það. Núna eru allir
kátir og hafa fengið sitt,“ sagði
Stefán Logi við Fréttablaðið í gær
en hann veit af því að KR er að fá
verulega góðan pening fyrir sig.
„Ég veit vel að ég var dýr og að
Lilleström greiddi meira fyrir mig
en venjulega er greitt fyrir mark-
menn á Norðurlöndunum. Það
sýnir bara hversu mikið félagið
vildi fá mig og hversu mikla trú
það hefur á mér. Ég þakkaði þetta
traust með því að semja til lengri
tíma við félagið í stað þess að pína
það í 2-3 ára samning,“ sagði Stef-
án.
Stefán segist kveðja KR með
söknuði enda hafi honum liðið vel
þar. „Mér þykir mjög vænt um KR
og alla í kringum félagið. Það var
ekkert auðvelt að yfirgefa félagið
um mitt sumar þegar liðið var að
berjast á toppnum og standa sig
vel í Evrópukeppninni,“ sagði Stef-
án Logi og bætti við að hann skuld-
aði markmannsþjálfaranum Guð-
mundi Hreiðarssyni mikið fyrir
alla þá aðstoð sem hann hefði veitt
sér. henry@frettabladid.is
Stærsta salan í langri sögu KR
Markvörðurinn Stefán Logi Magnússon var í gær seldur frá KR til norska liðsins Lilleström. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins hefur KR ekki áður fengið eins háa upphæð fyrir leikmann.
GULLKÁLFUR Salan á Stefáni Loga Magnússyni hjálpar verulega til við reksturinn á
knattspyrnudeild KR enda fékk KR óvenju hátt verð fyrir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BOX Sögulegur atburður átti sér
stað í vikunni þegar hnefaleika-
kapparnir Mike Tyson og Evand-
er Holyfield hittust í spjallþætti
Oprah Winfrey.
Þetta var í fyrsta skipti sem
þeir hittast síðan Tyson beit hluta
af eyra Holyfields í frægum bar-
daga árið 1997.
Það var enginn hasar hjá
Opruh heldur var Tyson auð-
mjúkur, bað Holyfield ítrekað
afsökunar, tók í hönd hans og
kallaði hann frábæran boxara og
fallegan mann. - hbg
Mike Tyson og Holyfield:
Endurfundir
hjá Opruh
MIKE TYSON Er að mýkjast með aldrin-
um. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
AKSTURSÍÞRÓTTIR Ísland mun nú í
annað sinn í sögunni eiga kepp-
anda í móti í heimsbikarmótaröð-
inni í rallakstri. Daníel Sigurðar-
son mun taka þátt í breska rallinu
sem haldið verður í nágrenni Car-
diff í Wales um næstu helgi. Hann
tekur einnig þátt í keppni í Bret-
landi þessa helgina til þess að búa
sig undir stóra mótið um næstu
helgi.
Daníel er margfaldur Íslands-
meistari í rallakstri en hefur síð-
ustu ár mikið keppt í Bretlandi við
mjög góðan orðstír. Hann hefur
náð frábærum árangri, ekki síst í
ár í keppnisbifreið sinni – Mitsubis-
hi Evo X, árgerð 2009, sem Daníel
tók þátt í að smíða í samstarfi við
keppnislið Mitsubishi í Bretlandi.
Árangurinn hefur vakið mikla eft-
irtekt í breskum rallíheimi.
„Ætli ég sé ekki 100 sinnum
þekktari í Bretlandi en á Íslandi,
eins einkennilega og það kann að
hljóma,“ sagði Daníel við Frétta-
blaðið. „Það hefur komið mér vel.
Ég hef fengið meiri stuðning frá
Bretum en Íslendingum sem er
afar mikilvægt enda þátttaka mín
háð því hversu gott baklandið mitt
er.“
Allir bestu rallíkappar heimsins
munu keppa í Cardiff um næstu
helgi, til að mynda Frakkinn
Sebastian Loeb. Hann keppir þó í
flokki sérútbúinna bíla en Daníel í
flokki lítið breyttra bíla.
„Ég hef gefið það út að ég stefni
á topp tíu í mínum flokki en ég
hef hvíslað því að sjálfum mér að
stefna á efstu fimm sætin,“ sagði
Daníel. Hann veit ekki hversu
margir eru skráðir til leiks um
aðra helgi en í keppninni sem hann
tekur þátt í nú um helgina munu
175 bílar taka þátt.
„Ég veit í raun ekki við hverju
ég á að búast. Mér hefur gengið
vel í Bretlandi hingað til en þar
með er ekki sagt að mér muni
ganga vel í sjálfri heimsmeistara-
keppninni. Þarna verða allir þeir
bestu saman komnir á einum stað
og samkeppin getur ekki orðið
meiri. Þarna skilja oft aðeins sek-
úndubrotin að.“
Keppnin hefst á fimmtudag-
inn og lýkur svo á sunnudegin-
um. Framhaldið ræðst eftir það
en Daníel útilokar ekki að reyna
sig aftur meðal þeirra allra bestu
ef vel gengur. „Hingað til hefur
mér gengið vel en ég ætla að sjá
til hvernig mér gengur gegn þess-
um stóru köllum. Þetta snýst allt
um árangur og það yrði vissulega
erfitt að líta fram hjá því ef ég
myndi ná toppárangri nú.“ - esá
DANÍEL SIGURÐARSON Stefnir langt í
rallakstrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Daníel Sigurðarson keppir ásamt bestu ökuþórum heims í breska rallinu um næstu helgi:
Stefnir hátt í keppni þeirra allra bestu
KÖRFUBOLTI Þrír leikir fóru fram
í Iceland Express-deild karla í
gærkvöldi og er óhætt að segja að
úrslitin hafi verið eftir bókinni.
Meistarakandidatarnir í
Grindavík unnu öruggan sigur á
Fjölni, Stjarnan skellti nýliðum
Fjölnis og Keflavík lagði Breiða-
blik sem er spáð falli í deildinni.
Nýliðar Fjölnis hengu lengi vel í
Stjörnunni en höfðu ekki það sem
til þarf til að leggja lærisveina
Teits Örlygssonar sem eiga lík-
lega eftir að gera það gott í vetur.
- hbg
Iceland Express-deild karla:
Engin óvænt
úrslit