Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 94
66 17. október 2009 LAUGARDAGUR
„Yrsa er kölluð drottning íslensku glæpasög-
unnar. Ég vona að ég geti orðið prinsessan,“
segir Lilja Sigurðardóttir, sem gefur út sína
fyrstu glæpasögu á næstunni. Hún nefn-
ist Spor og er eina íslenska glæpasagan sem
Bjartur gefur út fyrir þessi jól.
Lilja var uppgötvuð eftir að hún sendi inn
handrit að bókinni í samkeppni sem Bjartur
stóð fyrir á síðasta ári þar sem leitað var að
hinum íslenska Dan Brown. Hennar handrit
þótti skara fram úr en taldist þó ekki nógu
líkt þeirri formúlu sem Brown hefur notað í
bókum sínum. „Auðvitað hefði verið gaman
að vinna keppnina,“ segir Lilja, sem var engu
síður ánægð með að fá útgáfusamning. „Þetta
er ekki að öllu leyti hreinræktuð glæpasaga.
Þótt plottið sé þannig byggt upp er þetta líka
þroskasaga manns sem hefur varið lífi sínu
dálítið illa. Þessi atburðarás sem hann lend-
ir í verður til þess að hann fer að endurskoða
marga aðra hluti í lífi sínu. Að því leyti er
þetta saga í sögunni sem er kannski ekki í
þessum hefðbundna glæpasagnastíl.“
Lilja segist vera mjög hrifin af Dan Brown
eins og svo margir aðrir. Hún á þó enn eftir
að lesa nýjustu söguna hans, Týnda táknið.
„Ég er almennt mjög hrifin af glæpasögum og
sögum sem skemmta fólki,“ segir hún. Engir
glæpasagnahöfundar eru þó í mestu uppá-
haldi hjá henni, heldur þeir Ernest Heming-
way og Halldór Laxness.
Lilja er menntaður uppeldisfræðingur en
vinnur við vefumsjónarkerfi. Hún samdi Spor
í frístundum sínum og hlakkar mikið til að sjá
afraksturinn koma út úr prentsmiðju. Þýska
útgáfufélagið Lübbe, sem gefur út Jón Hall
Stefánsson, hefur þegar fengið handritið til
yfirlestrar og virðist vera mjög spennt fyrir
hinni nýju íslensku glæpasagnaprinsessu.
- fb
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT 2. tala, 6. borðaði, 8. tal, 9.
háttur, 11. slá, 12. skaf, 14. vegahótel,
16. hvað, 17. þrí, 18. tímabils, 20.
rykkorn, 21. geð.
LÓÐRÉTT 1. líkamshluti, 3. hljóm, 4.
avókadó, 5. hamfletta, 7. keppikefli,
10. æxlunarkorn, 13. sigað, 15. hljóð-
færi, 16. rámur, 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. tólf, 6. át, 8. mál, 9. lag,
11. rá, 12. skrap, 14. mótel, 16. ha, 17.
trí, 18. árs, 20. ar, 21. skap.
LÓÐRÉTT: 1. háls, 3. óm, 4. lárpera,
5. flá, 7. takmark, 10. gró, 13. att, 15.
líra, 16. hás, 19. sa.
Blúshátíð Reykjavíkur er orðin
meðlimur í hinum virtu banda-
rísku samtökum The Blues
Foundation sem standa á hverju
ári fyrir alþjóðlegri hljómsveita-
keppni. Til stendur að halda blús-
keppni hér á landi og senda sig-
urvegaranna á blúshátíð sem
samtökin halda í janúar á hverju
ári í Memphis.
„Núna tengjumst við 165 blús-
hátíðum og félögum víðs vegar að
úr heiminum. Það eru milljónir
manna í þessum samtökum,“ segir
Halldór Bragason, skipuleggjandi
Blúshátíðarinnar.
Halldór er nýkominn heim frá
Bandaríkjunum þar sem hann
spilaði á einni þekktustu blús-
hátíð heims í Helena í Arkansas
ásamt hinum 96 ára Pinetop Perk-
ins, sem spilaði einmitt í Reykja-
vík í vor. Með þeim á sviðinu var
Willie Big Eyes, sem hefur einnig
komið hingað til lands, og þeir Bob
Margolin og Bob Stroger. Allir
hafa þeir getið sér gott orð fyrir
að hafa spilað með goðsögninni
Muddy Waters. „Það var rosalegur
heiður að fá að gera þetta,“ segir
Halldór. „Þetta eru yndislegustu
tónleikar sem ég hef spilað á með
Pinetop.“ Með Halldóri í för var
Jóhann Vilhjálmsson úr Blúsfélagi
Reykjavíkur. Ferðuðust þeir einn-
ig til blúsborgarinnar Clarksdale í
Mississippi og skoðuðu fæðingar-
stað Muddy Waters. „Maður lifir á
þessu í mörg ár,“ segir Jóhann um
þessa miklu pílagrímsferð. - fb
Tengjast virtum blússamtökum
HALLDÓR BRAGASON Blúshátíð Reykja-
víkur tengist nú blússamtökunum The
Blues Foundation.
LILJA SIGURÐARDÓTTIR Fyrsta bók Lilju, Spor, kemur
út á næstu vikum. Hún vill verða prinsessa íslenskra
glæpasagna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ný prinsessa glæpasagnannaEyþór ÁrnasonAldur: Ég er hundgamall. Fæddur
1954 og því orðinn 55 ára.
Starf: Aðallega
sviðsstjóri í sjón-
varpi.
Fjölskylda: Ég á
konu og þrjú börn
með henni.
Foreldrar: Árni
Bjarnason og Sólveig
Árnadóttir. Þau eru
fyrrverandi bændur
og bjuggu að Uppsölum í Skagafirði.
Búseta: Bý í Vesturbænum í
Reykjavík.
Stjörnumerki: Ljón.
Eyþór Árnason fékk bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar í vikunni fyrir
fyrstu ljóðabók sína, Hundgá úr annarri
sveit.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Haukum frá Hafnarfirði.
2 Níu þingmenn.
3 Skúli rafvirki.
Nanna Rögnvaldardóttir gagn-
rýnir aðferðir Jóhönnu Vigdísar
Hjaltadóttur við eldun spaghett-
ís í síðasta matreiðsluþætti henn-
ar. Sjónvarpskokkurinn fagn-
ar umræðunni. „Ég var ekkert
hífandi brjáluð, síst af öllu út í
Jóhönnu sem er ákaflega skemmti-
leg kona og ég er mjög hrifin af
því sem hún hefur gert,“ segir
Nanna í samtali við Fréttablaðið
en hún setti gagnrýni sína fram á
bloggi sínu. Matargúrúrið Nanna,
sem sjálf hefur gefið út fjölda mat-
reiðslubóka, bætir því við að fólk
hafi skipst í tvö horn í athuga-
semdakerfi hennar, sumir hafi
verið ákaflega hrifnir af því sem
Jóhanna bauð upp á, aðrir ekki.
Nanna gerir mestar athuga-
semdir við hvernig Jóhanna sauð
spagettíið. Og að hún skyldi brjóta
spagettíið, slíkt brjóti nánast í
bága við eðli þess. „Því það er bara
ekki náttúrulegt að brjóta spag-
hettí í tvennt. Sem sannast á því
að ef maður tekur spaghettílengju,
heldur um endana og beygir þar til
hún brotnar, þá brotnar hún nánast
aldrei í tvennt,“ útskýrir Nanna á
bloggi sínu. Og svo er það hvernig
Jóhanna sauð spagettíið. „Maður
notar stóran pott með miklu vatni
sem á að vera bullsjóðandi þegar
pastað er sett út í. Ég endurtek:
Bullsjóðandi,“ skrifar Nanna og
skilur lítið í þeirri pælingu að kæla
spagettíið líkt og Jóhanna gerði í
þættinum.
Jóhanna Vigdís er ánægð með að
fólk skuli ræða sín á milli hvernig
eigi að sjóða spagettí. Sú umræða
sé í það minnsta skemmtileg. „Ég
segi auðvitað bara frá því sem ég
geri og hvað hefur gengið best hjá
mér í gegnum tíðina.“ Jóhanna
skilur að Nanna skuli ekki vera
sátt við brotna spagettíið. „Það eru
margir sem vilja alls ekki gera það
en krökkunum mínum hefur geng-
ið best með spagettíið þannig þótt
auðvitað hafi ég líka soðið það án
þess að brjóta það.“
Sjónvarpskonan bætir því við að
upphaflega hugmyndin með þátt-
unum hafi verið sú að gefa fólki
hugmyndir og tækifæri til að
prófa eitthvað nýtt. „Maður á ekki
endilega að segja að eitt sé rétt
og annað rangt. Fólk á að skipt-
ast á skoðunum og ég hef fengið
mikið af viðbrögðum. Það var til
að mynda ungur strákur sem hafði
samband og spurði hvað hann ætti
að fá sér í morgunmat.“ Jóhanna
segir það hafa komið sér á óvart
hversu mikill áhuginn er á mat-
reiðsluþættinum. „Ég hef skrif-
að um mat í yfir tuttugu ár og hef
alltaf sagt að maður á aldrei að
loka á eitt eða neitt. Það geta allir
tjáð sig um mat og það hafa lang-
flestir gaman af því að borða.“
freyrgigja@frettabladid.is
NANNA RÖGNVALDARDÓTTIR: SVONA GERIR MAÐUR BARA EKKI
Matargúru ósátt við elda-
mennsku sjónvarpskokks
BROTIÐ EÐA
ÓBROTIÐ, ÞAÐ ER
SPURNINGIN
Nanna Rögnvaldardóttir
heldur því fram á blogg-
síðu sinni að það sé ekki
náttúrulegt að brjóta
spagettí áður en það er
soðið. Jóhanna Vígdís segir
krökkunum sínum ganga
betur að borða það
ef það er brotið í
tvennt. Þær eru
ekki sammála
um hvernig eigi
að sjóða þenna
vinsæla, ítalska
mat.
Mugison kom ekki fram á Iceland
Airwaves-hátíðinni í ár, en hún
fer nú fram í miðbæ Reykjavíkur.
Aðdáendur kappans ættu þó ekki
að örvænta því Fréttablaðið hefur
heimildir fyrir því að hann komi
fram í Reykjavík í kvöld. Hann ku
hafa boðað komu sína á Kaffi-
stofuna á Hverfisgötu 42 klukkan
19, á ljósmyndasýningu
Harðar Sveinssonar.
Hörður hefur boðið
upp á tónleika frá því
að sýningin hófst á
miðvikudag og
á hverju kvöldi
hafa leynigest-
ir mætt á
svæðið.
Hjartalaga auglýsingar um að
einhver sé á leiðinni hafa birst í
ýmsum miðlum undanfarið. Erfitt
hefur verið að nálgast upplýsingar
um hver sé á leiðinni og hvað sé
að gerast, en heimildir Fréttablaðs-
ins herma að erlendir aðilar ætli að
halda partí í Reykjavík á miðviku-
daginn. Fjölmörgum Íslendingum
verður boðið, en staðsetningin er
á huldu. Sömu heimildir herma að
hluta af partígestunum verði boðið
í ókeypis ferð á hitabeltiseyju.
Vissulega furðulegt boð, en eftir því
sem komist verður næst er skýring-
in að hluta til sú að erlendir aðilar
standi fyrir partíinu en ekki er vitað
hvað þeim gengur til.
Nicky Byrne og félagar í hljóm-
sveitinni Westlife dvelja nú á
Íslandi og verða hér við mynd-
bandsupptökur næstu daga. Með-
limir hljómsveitarinnar hafa aug-
ljóslega ekki gert sér grein fyrir því
að stærsta tónlistarhátíð landsins
stendur nú yfir því þeir hafa ekki
sett sig í samband við aðstandend-
ur Iceland Airwaves. Uppselt er á
hátíðina, sem nær hápunkti í kvöld
þegar Páll Óskar kemur fram með
Hjaltalín í Hafnarhúsinu, en
það er spurning hvort
þeir gætu reddað sér
miðum ef þeir kærðu
sig um það. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI