Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Júlíu Margrétar
Alexandersdóttur
Í dag er laugardagurinn 17. okt-
óber 2009, 290. dagur ársins.
8.24 13.13 18.00
8.14 12.58 17.40
Gamall kennari minn í íslensku, Bergljót Kristj-
ánsdóttir, tók það sérstaklega
fram eitt sinn í tíma að hún vildi
láta kalla sig kellingu. Hún væri
kelling og kelling skyldi hún
heita. Fólk ætti hreinlega að
kalla hlutunum þeim nöfnum
sem þeir hétu. Auk þess væri
orðið hressandi, gamalt og gott,
og hún bæri það með stolti.
ÞETTA var góð kennsla og
eftir hana hef ég kannski verið
meira vakandi fyrir orðum sem
við höfum talið okkur trú um
að séu vond og rangt að nota.
Eitt þessara orða er feitur. Við
erum auðvitað ýmist hávaxin,
lágvaxin, ljóshærð, dökkhærð,
bláeygð, brúneygð, mjó og jú –
feit. Þrátt fyrir að töluvert stór
hluti þjóðarinnar sé of feitur er
það sjaldan notað. Skilaboðin
síðustu árin í umræðunni hafa
nefnilega verið sú að ein mesta
óhamingja lífsins felist í því að
vera feitur. Og þú vinnur ekki
neinni manneskju það til miska
að lýsa henni sem feitri.
SJÁLF er ég í þyngri kantin-
um núna og hef ekkert stórar
áhyggjur af því að kalla sjálfa
mig feita. Ég er að vísu búin
að drekka nokkra lítra af vatni
þessa vikuna, stúdera fræði
Atkins meðan ég narta í flög-
ur og tek mambóspor í stofunni
með Ágústu Johnson-mynd-
bandi þegar tími gefst til. Fyrst
og fremst til að komast aftur í
gömlu fötin mín, enda ótrúlega
dýrt að endurnýja fataskápinn.
En nefni ég það við fólk að ég sé
í átaki því ég sé orðin of FEIT
í fötin mín sýpur fólk hveljur,
klappar mér á öxlina og roðnar.
Rétt eins og ég hafi sagst þjást
af hvítkornafæð, ofsabjúg eða
lifrarbólgu.
HVERNIG þetta orð komst á
dauðalista tungumálsins má
eflaust, eins og jú svo oft, kenna
útlitsvæðingunni um. Um leið og
við þykjumst vilja vinna gegn
útlitsfordómum og útlitsvæð-
ingunni förum við í hnút ef ein-
hver segir orðið „feitur“ þannig
að við erum yfirleitt stödd í mik-
illi mótsögn við sjálf okkur. Er
svona hroðalegt að vera feitur?
Mér finnst það bara frábært. Ég
virðist hins vegar stödd á rangri
plánetu með það að telja þetta
vera í lagi.
Dauðalisti
tungumálsins
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009.
Hvar er þín auglýsing?
35%
72%