Fréttablaðið - 24.10.2009, Side 8
8 24. október 2009 LAUGARDAGUR
PAKISTAN, AP Alls létu 24 lífið í þrem-
ur hryðjuverkaárásum í Pakistan í
gær. Fjöldi manns er slasaður.
Blóðbað gærdagsins hófst í gær-
morgun á því að sjálfsmorðssprengj-
umaður á reiðhjóli drap sjö við varð-
stöð á leið inn á herflugvallarsvæði
í Norðvestur-Pakistan. Í hópnum
voru tveir hermenn, en þrettán eru
slasaðir.
Þá banaði fjarstýrð sprengja
sautján manns sem voru um borð í
rútu á leið í brúðkaupsveislu í Moh-
mand-héraði síðar um daginn.
Meðal látinna í rútunni eru fjórar
konur og þrjú börn, að sögn Zabits
Khan, talsmanns staðaryfirvalda.
„Svo virðist sem sprengjan hafi
verið fjarstýrð og að ráðist hafi
verið á rútuna fyrir mistök,“ segir
hann í viðtali við fréttastofu AP.
Að auki sprakk svo bílsprengja á
bílastæði við afþreyingarmiðstöð í
Peshawar, stærstu borg norðvestur-
hluta landsins. Þar slösuðust fimmt-
án, en enginn lét lífið.
Árásir herskárra hópa í landinu
í mánuðinum hafa að sögn frétta-
stofu AP haldist í hendur við áhlaup
á sveitir talibana og liðsmanna al-
Kaída nærri landamærunum við
Afganistan.
Alls hafa um 200 manns látist í
árásum í Pakistan í mánuðinum, en
það sem af er október hafa verið
gerðar að minnsta kosti níu stærri
árásir. Flestar hafa þær beinst að
lögreglu eða skotmörkum tengdum
hernaði. - óká
SLASAÐIR EFTIR ÁRÁS Aðstandendur
huga hér að slösuðum ættingjum eftir
að þeir höfðu fengið fyrstu hjálp vegna
meiðsla þegar bíll sprakk á bílastæði í
Peshawar í Pakistan í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ein þriggja árása í Pakistan í gær beindist fyrir mistök að rútu brúðkaupsgesta:
Tuttugu og fjórir létust í sprengjuárás
Sprengja á
bílastæði
Afganistan
Indland
Arabíuhaf
HEIMILD: ESRI/AP
Pakistan
Íslamabad
Kamra
Peshawar
Sprengja
nærri
herstöð
668 kr.á mánuði
Vefhysing_
Pantaðu núna á www.1984.is
ISLENSK VEFHYSING
= MEIRI HRADI >> MEIRA ÖRYGGI >> MUN ODYRARI
Sími 546 1984 ::: info@1984.is
*
M
.v
. 1
5
0
þ
ú
su
n
d
k
r.
in
n
le
n
d
a
ve
rs
lu
n
á
m
án
u
ð
i,
þ
.a
. 1
/3
h
já
s
am
st
ar
fs
að
ilu
m
. /
S
já
n
án
ar
á
w
w
w
.a
u
ka
kr
on
u
r.i
s.
2 flugsæti á ári
fyrir Aukakrónur
Þú getur flogið út í heim og til baka aftur einu sinni á ári með Iceland Express
fyrir Aukakrónurnar sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða eitthvað annað
sem þig langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna.
*
AUKAKRÓNUR | landsbankinn.is | 410 4000
Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is
N
B
I h
f.
(L
an
d
sb
an
ki
n
n
),
k
t.
4
71
0
0
8
-2
0
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
9
3
18
ÁRÁSIR Í PAKISTAN
TOLLAMÁL Tollgæslan hefur tekið á
annað þúsund kannabisfræja sem
reynt var að smygla til landsins á
fyrstu níu mánuðum ársins. Segja
má að um sprengingu sé að ræða,
því allt árið í fyrra voru tekin 390
stykki.
Þá tók tollgæslan á ellefta kíló af
amfetamíni fyrstu níu mánuðina, en
tók á sjöunda kíló allt árið í fyrra.
Einnig hafa 105 vopn verið gerð upp-
tæk það sem af er árinu.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í nýjum tölum Tollstjóra yfir
ólöglegan varning og fíkniefni sem
tollgæslan hefur stöðvað á árinu.
„Þetta er unnið í góðu samstarfi
við lögregluyfirvöld, en lögregla
rannsakar til dæmis öll fíkniefna-
mál,“ segir Karen Bragadóttir, for-
stöðumaður tollasviðs. Hún segir
að sú þróun að tollgæsla hafi tekið
umtalsvert meira af amfetamíni,
en minna af kókaíni á árinu en allt
árið í fyrra geti verið vísbending um
að menn séu að leita í ódýrara efni.
Amfetamínið sé að miklu leyti sent
frá Hollandi og Danmörku.
Hvað varðar margföldun á magni
kannabisfræja sem tekið hefur verið
í ár, miðað við 2008, segir Karen að
líklegt sé að framleiðsla á kannabis
sé að færast hingað til lands, eins
og lögregla hafi bent á í kjölfar töku
margra stórra kannabisverksmiðja.
„Fræin sem tekin hafa verið hafa
nær eingöngu verið í póstsending-
um,“ segir hún. „Í tengslum við stór-
aukið magn þeirra vekur athygli að
lítið virðist vera reynt að smygla
inn hassi og maríjúana. Þarna er
klárlega samhengi í þróuninni.“
Mun færri vopn hafa verið hald-
lögð í ár en í fyrra því þá voru þau
455 talsins á Keflavíkurflugvelli
einum. Ekki liggja fyrir tölur á
landsvísu frá 2008.
„Þessi fækkun er talin að stórum
hluta til komin af því að Íslending-
ar hafa dregið svo mikið úr ferða-
lögum,“ segir Karen. „Mikið af
haldlögðum vopnum hefur komið í
farangri fólks frá Spáni í gegnum
tíðina, svo sem hnúajárn, fjaðurhníf-
ar, loftbyssur, eggvopn, handjárn og
fleira af því tagi.“
Magn stera sem tollgæsla hefur
haldlagt hefur margfaldast á milli
ára, eins og fram hefur komið.
Þeir eru sendir frá Póllandi, Ung-
verjalandi, Rúmeníu, Bretlandi og
Taílandi.
Karen undirstrikar mikilvægi
góðrar samvinnu tollgæslunnar
við meðal annars lögreglu, Lyfja-
stofnun og Matvælastofnun, sem sé
undirstaða góðs árangurs.
jss@frettabladid.is
Sprenging í smygli á
kannabisfræjum
Sprenging hefur orðið á árinu í magni kannabisfræja sem reynt hefur verið að
smygla til landsins en tollgæsla stöðvað. Merki eru um að framleiðslan færist
hingað til lands, segir yfirmaður tollasviðs. Magn amfetamíns hefur stóraukist.
KANNABISFRÆ Aldrei meira magn tekið. VOPN Þessar byssur eru meðal þeirra
vopna sem tollgæsla hefur lagt hald á.
Einnig er mikið um fjaðurhnífa, hnúa-
járn, loftbyssur, eggvopn og handjárn.
Sterar
1.
45
0
m
l.
7.1
04
m
l.
7.1
04
m
l.
Vökvi Töflur
12
.3
64
s
tk
79
.9
13
s
tk
79
.9
13
s
tk
Fíkniefni
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0 Amfet-
amín
Kókaín Gras
6.
71
7
10
.9
8
10
.9
8
5.
99
6
1.
09
8
1.
09
8
4.
02
3
9494
G
rö
m
m Hass
101 gr.
210.486 gr.
* 01.01.2009 - 01.10.2009
Haldlagðar tölur frá tollgæslunni
2008
2009*
Kannabisfræ 1.053
390
KJARAMÁL Blaðamannafélag
Íslands (BÍ) hefur vísað kjara-
deilu við Samtök atvinnulífsins
til Ríkissáttasemjara. Það er í
fyrsta sinn í 25 ár sem slíkt ger-
ist. Samningar hafa verið lausir
í um ár, en viðræður hófust að
nýju 16. september.
Í tilkynningu frá félaginu segir
að í kjölfar hrunsins hafi blaða-
mannastéttin mátt búa við launa-
lækkanir, uppsagnir og aukið
vinnuálag. Félagið hafi gert
kröfu um sambærilegar kjara-
bætur og fengist hafi á almenn-
um vinnumarkaði. Því hafi verið
hafnað „þótt samið hafi verið við
aðrar stéttir á fjölmiðlum um
þessar hækkanir. Á sama tíma
hefur komið fram að lækkun
launa inni á vinnustöðum gangi
ekki til baka.“ - kóp
Blaðamannafélag Íslands:
Vísar deilu til
sáttasemjara
SJÁVARÚTVEGUR Alvarleg staða er
komin upp á meðal smábátasjó-
manna og er rekstur margra báta
að stöðvast. Stjórn Landssam-
bands smábátaeigenda (LS) fund-
aði með Jóni Bjarnasyni sjávar-
útvegsráðherra í vikunni vegna
þessa.
Niðurskurður veiðiheimilda á
ýsu og þurrð á leigumarkaðinum
er mörgum ofviða. Því blasir fátt
annað við en að stöðva veiðar og
segja upp fólki, segir á vef sam-
bandsins.
Á fundinum kom fram gríðar-
leg óánægja stjórnar LS með
hversu lítið mætti veiða í lykil-
tegundum en ráðherra sagði að
kæmi til aukaúthlutunar yrði það
ekki gert öðruvísi en í samráði
við Hafrannsóknastofnunina.
- shá
LS fundar með ráðhera:
Smábátamenn í
miklum vanda
1. Hvaða leikmaður, sem áður
lék með FH, gekk til liðs við
ÍBV?
2. Hversu hár er Sultan Kösen,
hæsti maður í heimi?
3. Hvaða ástsæli leikari lenti
í bílveltu skammt frá Borgar-
fjarðarbrúnni?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 70
VEISTU SVARIÐ?